Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnar Smári er sammála Agnesi: „Held að við mættum alveg ræða meira um hann blessaðan“

Gunnar Smári er sammála Agnesi: „Held að við mættum alveg ræða meira um hann blessaðan“
Gunnar Smári Egilsson.

Gunnar Smári segir ekk­ert skrítið að bisk­upinn vilji tala meira um Guð.

Sós­í­alista­for­kólf­ur­inn Gunnar Smári Egilsson skrif­aði afar djúpa hug­vekju á Facebook-vegg sinn í dag. Þar fer hann á dýpt­ina yfir Guð og heim­inn í dag, sam­fé­lagið og for­feðra­dýrkun svo eitt­vað sé nefnt.

Hér má sjá hug­vekj­una í heild sinni:

„Þurfum við að tala um Guð?

Ég myndi aldrei orða það svo að það væri þöggun um Guð í sam­fé­lag­inu, en ég held að við mættum alveg ræða meira um hann bless­aðan og það sem honum til­heyrir. Þegar ég var settur yfir ung­linga­blaðið Fókus á síð­ustu öld, harð­full­orð­inn mað­ur­inn, benti ég ungum blaða­mönnum á gamla ráð­legg­ingu sem mér var ein­hvern tím­ann sagt að Árni Þór­ar­ins­son hefði gefið óreyndu fólki á leið í við­töl, að spyrja fólk um kyn­líf, áfengi og trú­ar­brögð. Það brást sjaldan að það voru svörin um trú sem voru áhuga­verð­ustu kafl­arnir í við­töl­unum. Þar var helst eitt­hvað óvænt, nýtt og sér­stakt, eitt­hvað sem við­mæl­and­anum fannst mik­il­vægt. Ef ég man rétt suðum við þetta niður og buðum upp á örvið­töl þar sem aðeins var spurt um þetta þrennt.Ég er ekki heit­trú­aður en mér hefur alltaf fund­ist ég þurfa að skilja á ein­hvern hátt frá­sagnir af sam­vistum manns­ins við guð sinn, að í þeim væri stærsti hlut­inn af því sem mann­skepnan hefði hugsað um stöðu sína í heim­inum. Sem er nátt­úr­lega ill­við­ráð­an­leg spurn­ing sem best er að svara með sögum, lík­ingum eða söng. Um hvað við séum eig­in­lega að gera hér, til­hvers sé ætl­ast af okkur og hvernig við getum fundið innri frið og sátt, þakk­læti fyrir það við höfum en við­haldið líka von um meira rétt­læti, mannúð og frið á þessu heim­ili sem við eigum saman.Og ég hef notað Guð eins og hvert annað áhald, til að flytja til egóið svo það þurfi ekki að vera miðja alls. Ég kann ekki betri aðferð til þess. Það fylgir til­vist okkar að vera miðja heims­ins. Það er úr okkur sjálfum sem við sjáum allt og skynjum. Og þá skiljum heim­inn eðli­lega með okkur í miðj­unni. Sem er nátt­úr­lega klikkað sjón­ar­horn og skekkt. Til að varna þessu, eða alla vega vega upp á móti, er snjallt að koma sér upp Guði hið innra svo við þurfum ekki sjálf að sitja þarna í miðj­unni og heimskast af upp­hafn­ingu og ofmetnu mik­il­vægi.For­feðra­dýrkun er líka snjallt áhald til að minna okkur á að flest sem við eigum og njótum var búið til og við­haldið af öðru fólki, gengnu fólki. Það dregur bit úr egóinu að minna sig á slíkt. En það er líka menn­ing­ar­leg við­halds- og vernd­ar­stefna. Minnir okkur á að fara vel með það sem er, að okkar hlut­verk sé að koma sköp­un­ar­verki geng­inna kyn­slóða (nú, eða guðs) til skila til næstu kyn­slóðar ekki í lak­ara standi en við erfðum það.Við lifum enda­lok sög­unnar eins og Fukuyama benti á, þótt hann hafi kannski mis­skilið sýn sína. Þegar Guð hafði legið dauður um langa hríð reis upp tími upp­blá­s­innar ein­stak­lings­hyggju þar sem egóið var í hásæt­inu og miðj­unni og sam­fé­lagið leys­ist upp og varð að engu öðru en safn­haug af ein­stak­lingum, mik­il­feng­legum og alvöldum, og þá hvarf sagan. Enda hefur mann­eskja sem ekk­ert sér nema sjálfa sig ekk­ert að gera við sögu, sam­fé­lag eða Guð. Hver hugsun hennar eða löngun er upp­haf alls, hið heila mark­mið að elta þetta.Við lifum mikla upp­lausn­ar­tíma. Þess vegna er stöð­ug­leik­inn sölu­vara. Það er hunda­blístur til þeirra sem vilja verja stöðu sína. Hin fátæku og for­smáðu biðja ekki um stöð­ug­leika. Og stöð­ug­leik­inn sem er seldur er í reynd áfram­hald­andi nið­ur­brot þess sam­fé­lags sem byggð­ist upp af kröfum skipu­lagðra alþýðu­hreyf­inga á síð­ustu öld, bæði inn­viða, grunn­kerfa og þeirrar lýð­ræðis­virkni sem gat fleytt kröfum hinna eigna­lausu og fátæku áfram.Og til að halda áfram nið­ur­brot­inu þurfa þau sem auðg­ast á því og draga til sín völdin að halda aftur af umræðu um sam­fé­lag og sögu. Og um guð, ef guð er móteitur gegn upp­blás­inni ein­stak­lings­hyggju. Og besta leiðin til að ræða eitt­hvað alls ekki er að sveipa það helgiljóma svo það hefj­ist upp yfir okkur öll, að sagan, sam­fé­lagið og guð séu ekki eld­hús­á­höld til að beita gegn vanda heldur eitt­hvað ósegj­and­legt, óum­ræð­an­legt og óend­an­lega inn­an­tómt í upp­hafn­ingu sinni. Eins og við erum orðin sjálf.Við erum þar. Stand­andi frammi fyrir vanda sem er í grunn­inn and­legur. Þegar við höfum misst sjónar af stöðu okkar í heim­inum og sög­unni, ábyrgð okkar á sam­fé­lag­inu og til hvers við getum notað góðan guð. Og þá er akkúrat ekk­ert skrítið við að biskup telji að það myndi bæta sam­fé­lag okkar ef við æfðum okkur að tala um guð og and­leg mál. Sú sem er kristin eða iðkar aðra trú hlýtur að telja það bestu leið­ina til að lækna hin and­legu mein.Svo er annað fólk öðru­vísi saman sett, með rök­vísi sem botn í sinni sál á meðan aðrir eru byggðir upp frá félags­legum tengslum og til­finn­ingum. En það er æði stór hópur sem funkerar ekki nema finna ein­hvern and­legan þráð. Það má ekki bara sjá af and­legri iðkun heldur hvernig allt hneig­ist til að taka á sig mynd trúar og trú­ar­bragða. Það á ekki síst við um vís­indi og skipu­lagða þekk­ing­ar­söfnun, sem gera kröfu um heil­ag­leika og óskeik­ul­leika, búa til sínar eigin heil­agra manna sögur og ritúöl og vilja for­dæma þau sem ekki falla fram og til­biðja þau.Og það sama á við um hug­mynda­stefnur í sam­tím­anum, hvort sem það er femín­ismi eða nýfrjáls­hyggja, sós­í­al­ismi eða íhalds­semi. Trú­ar­iðkun hefur verið svo afger­andi far­vegir í gegnum ald­irnar að allt sem við gerum og hugsum tekur á ein­hvern hátt mið af því. Hillur með fæðu­bót­ar­efnum út í kjör­búð eru sem alt­ari þar sem hægt er að sækja sér end­ur­nýjun og losna undan synd, ekki með lík­ama Krists heldur því sem hefur tekið yfir hlut­verk hans.En hvað um það. Þessi með and­lega botn­inn í sinni sál telur að besta leiðin til að bæta heim­inn, til að finna merk­ingu í upp­lausn­inni, sé að tala um Guð. En hún lifir í sam­fé­lagi sem hrópar niður slíkar upp­á­stungur, eins og svo sem flest annað. Við erum föst í deilu um dag­skrá og fund­ar­stjórn for­seta, um hvað megi tala um og hvað ekki. Komumst aldrei að því að ræða neitt sem er áhuga­vert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ