Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Edda Falak vildi hlífa sér og þeim sem sýndu henni vanvirðingu: „Ég er breysk eins og annað fólk“

Edda Falak vildi hlífa sér og þeim sem sýndu henni vanvirðingu: „Ég er breysk eins og annað fólk“

Edda Falak tjáði sig í fyrsta sinn opin­ber­lega í gær­kvöldi eftir brott­hvarf af Heim­ild­inni. Setti hún inn færslu á Facebook þar sem hún seg­ist hafa „ein­faldað“ frá­sögn sína af við­horfum sem hún kynnt­ist í fjár­mála­líf­inu í Danmörku bæði til þess að hlífa sjálfri sér og fólki sem sýndi henni van­virð­ingu. Í færsl­unni seg­ist hún hafa mátt þola nei­kvæða umræðu um sig á opin­berum vett­vangi og verið ein þegar fjöl­miðlar hringdu stöðugt og kröfðu hana svara. Pistil­inn má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Kyn­bundið ofbeldi þrífst í sam­fé­lagi þögg­unar – í sam­fé­lagi sem beitir mis­kunn­ar­lausri þöggun á þolendur, aðstand­endur, aktí­vista og stjórn­mála­fólk ef það sýnir minnstu til­burði til að ógna stöð­ug­leika þagn­ar­innar“, sagði Sóley Tóm­as­dóttir þegar hún ávarp­aði druslu­göng­una árið 2015.

Ég var 23 ára, síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Hver bylt­ingin hefur elt aðra og ég fann mig, ásamt ýmsum öðrum konum, óvænt í stafni fem­inískrar bar­áttu. Ég er stolt af því sem ég hef gert.

Mitt aðal­starf und­an­farið hefur verið að gefa brota­þolum rými til að koma sögum sínum á fram­færi þar sem þau skortir oft félags­legt vald til þess. Hluti af þeirri vinnu hefur auk þess verið að benda á þann sam­hljóm sem komið hefur fram í reynslu­sögum þeirra þar sem það sýnir okkur sem sam­fé­lagi að vand­inn er kerf­is­lægur. Þó svo að ég hafi staðið í stafni bar­átt­unnar þá er ég ekki bar­áttan og bar­áttan er ekki ein­göngu mín. Hluti af vanda­mál­inu núna, eins og svo oft áður, er að bar­áttan er per­sónu­gerð og þannig er hægt að ýta til hliðar fjölda upp­lif­ana sem komið hafa fram og áminn­ingum um djúp­stæðan kerf­is­lægan vanda undir þeim for­merkjum að mér sem per­sónu sé ekki treystandi. Ég hef staðið mikið til ein í þessum stafni. Ég stend auð­vitað við hlið ótrú­legs fjölda kvenna sem hefur leyft mér að eiga hlut í þeirra bar­áttu með því að gefa þeim orðið. Eins stend ég við hlið ann­arra kvenna sem standa í sömu bar­áttu á öðrum vett­vangi. En ég hef líka verið ein. Ég er ein alla daga þegar fjöl­miðlar hringja lát­laust og krefja mig svara við öllu og engu. Ég var ein að und­ir­búa her­ferðir og við­töl, mín eigin og ann­arra og bar á því ábyrgð sjálf. Ég stend undir þeirri ábyrgð. Ég hef lært mikið frá því að þessi veg­ferð hófst, ég hef vandað vinnu­brögð mín og gert allt sem ég get til þess að við­halda trú­verð­ug­leika mínum, við­mæl­enda minna vegna.

Áður var ég við nám í Copenhagen Business School þar sem ég var í tengslum við fjár­mála­fyr­ir­tæki, bæði á meðan að á námi mínu stóð og eftir nám. Ég kynnt­ist fjár­mála­líf­inu í gegnum við­burði, verk­efni og námið mitt. Í við­tölum sem ég veitti eftir heim­kom­una reyndi ég að varpa ljósi á menn­ingu og við­horf sem ég mætti þar. Hugsun mín í þeim við­tölum var að ein­falda frá­sögn­ina í þeirri við­leitni að hlífa sjálfri mér og þeim sem sýndu mér van­virð­ingu. Ég er breysk eins og annað fólk. Ég hef beðist vel­virð­ingar á því.

Það sem ég veit fyrir víst er hvaða við­horfum ég mætti þarna úti, sem og hér heima. Ég og allar hinar. Ég mun halda áfram að segja okkar sögur. Alveg sama hvaða gröftur vellur upp. Því kven­fyr­ir­litn­ing og kerf­is­bundið ofbeldi gegn konum á ekki að við­gang­ast í heil­brigðu sam­fé­lagi.

Stað­reyndin er sú að ég hef skrifað þennan pistil áður. Ég skrif­aði hann árið 2021, ég skrif­aði hann árið 2022 og nú skrifa ég hann aftur árið 2023. Síð­ast­liðin tvö ár hef ég þurft að þola linnu­laust áreiti og árásir fyrir það eitt að veita þolendum ofbeldis vett­vang til að segja sína sögu. Ég þarf stöðugt að þola nei­kvæða umræðu um mig sem per­sónu á opin­berum vett­vangi. Ég hef verið upp­nefnd og gerð að skessu af heilu bæj­ar­fé­lagi, dregin fyrir dóm vegna starfa minna, mér hafa borist hót­anir um ofbeldi og ókunn­ugir hafa bankað upp á heima hjá mér. Nafnið mitt hefur verið notað yfir 700 sinnum í fréttir og fyr­ir­sagnir. Fólk hefur með ein­beittum vilja reynt að grafa upp ein­hvern skít, skáldað hann upp þegar hann finnst ekki, rýnt í gamlar rit­gerðir, grafið undan mér, og reynt að mála mig upp sem ótrú­verð­uga og í tor­tyggi­legu ljósi. Allt saman þögg­un­ar­til­burðir sem við þekkjum alltof vel í okkar sam­fé­lagi og alltof margar konur og þolendur ofbeldis hafa þurft að sæta, af hálfu þeirra sem virð­ast eiga þeirra hags­muna að gæta að þolendur þegi. Ég hefði aldrei tekið við­tal við neina þolendur ef ég hefði hlustað á allt sem sagt er til að ófrægja þau.

Eftir allt sem á undan er gengið er nauð­syn­legt fyrir mig að staldra við og hlúa að sjálfri mér. Ég ætla að nýta tím­ann til þess að hvíla mig og ákveða næstu skref. Árásir á mína per­sónu munu ekki stoppa mig né aðra sem standa í sömu bar­áttu fyrir rétt­látu sam­fé­lagi. Sam­taka­máttur okkar er ofbeld­inu yfir­sterkara og við munum ekki leggj­ast niður og láta ofbeldið yfir okkur ganga.

Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hafa sýnt mér stuðn­ing og staðið með mér, þið eruð ómet­an­leg. Það stendur engin ein undir svona og ég gæti þetta ekki án ykkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina