Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Guðjón bjargaði manni úr sjó árið 1984: „Komið með spotta, ég fer og sæki hann“

Guðjón bjargaði manni úr sjó árið 1984: „Komið með spotta, ég fer og sæki hann“
Guðjón Haf­steinn Guð­munds­son

Guðjón Haf­steinn Guð­munds­son vann afrek þegar hann bjarg­aði manni úr sjó árið 1984. Um var að ræða ferju­flug­mann en vélin varð bens­ín­laus með þeim afleið­ingum að hún fór í sjó­inn.

Guðjón Haf­steinn Guð­munds­son byrj­aði ungur að stunda sjó­mennsku. Aðeins 14 ára fór hann sinn fyrsta túr sem messagutti á Gull­fossi og eftir það var hann á ýmsum skipum í tæp 40 ár.

„Það að vera á sjó eru viss for­rétt­indi,“ segir Guðjón. „Ekkert áreiti, engin umferð­ar­ljós, ekki sími eða annar streitu­valdur. Aðeins vinna, sofa og borða.“

Á þessu sjó­mennsku­tíma­bili var eitt atvik öðru fremur sem stóð upp úr. „Það var björgun ferju­flug­manns er flug­vél hans lenti í sjónum stutt frá okkur.

Það var í mars árið 1984 að við vorum á heim­leið eftir að hafa landað í Brem­er­haven í Þýska­landi. Þegar við vorum að nálg­ast suð­aust­ur­landið þá var kallað í kall­kerfið og var kallað: „Flugvél í sjó­inn. Ræs, strákar, ræs, ræs.“ Þegar ég kom upp á dekk sá ég að það var flug­vél í sjónum um 150 metra frá skip­inu,“ segir Guðjón sem var þá háseti á Vigra RE.

„Við sáum flug­mann­inn kom­ast út úr vél­inni og hann lenti í sjónum. Skip­stjór­inn tók þá ákvörðun að kom­ast nær mann­inum. Þegar 30-40 metrar voru í hann þá treysti hann sér ekki nær vegna hættu á að mað­ur­inn lenti undir skip­inu.

Ég sagði þá við Jón yfir­vél­stjóra að flug­mað­ur­inn væri að dreyja fyrir framan nefið á okkur.

Þá svar­aði einn skips­fé­lagi okkar að við gætum ekk­ert gert þar sem við kæm­umst ekki nær honum. Tekið skal fram að eng­inn létta­bátur var um borð sem hægt hefði verið að nota við björgun. Það varð úr að ég sagði við Jón vél­stjóra: „Komið með spotta, ég fer og sæki hann.“

Það var suð­vestan alda og sex vind­stig. Krappur sjór. Einn skips­fé­lagi minn spurði mig hvort ég væri brjál­aður..og að ég dræpi mig. Svaraði ég að það væri ann­að­hvort að hrökkva eða stökkva.

Svo var spott­inn bund­inn utan um mig og ég stakk mér í sjó­inn í galla­buxum og bol. Og ég man það alltaf að þegar ég lenti í sjónum þá hugs­aði ég: Þú hefur nú alltaf verið vit­laus, Gaui minn, en aldrei svona vit­laus.

Flug­mað­ur­inn flaut á bak­inu og var orð­inn með­vit­und­ar­laus. Ég komst undir hann og og gat sett hann framan á bring­una á mér. Þegar hér var komið við sögu fann ég að kuld­inn var að hel­taka mig. Ég náði að krækja löpp­unum utan um hann og halda honum og vorum við þá dregnir að skips­hlið. Þá vand­að­ist málið… það að koma okkur báðum um borð.

Ég tók þá ákvörðun að stinga mér undir mann­inn og grípa í kað­al­stiga sem lá út úr síðu skips­ins og náði Jón vél­stjóri þá að kippa flug­mann­inum um borð og mér á eftir.“

Guðjón Haf­steinn segir að þetta hafi verið töff. Hann seg­ist sjálfur hafa verið í sjónum í tæpar 10 mín­útur og marð­ist hann tölu­vert mikið við atgang­inn. „Spottinn marði mig og var brjóst­kass­inn allur mar­inn. Til að gera langa sögu stutta þá var ég hepp­inn að lifa þetta af.  Það var engin hugsun á bak við þetta. Við hefðum báðir getað drep­ist. Sjórinn var að mig minnir í kringum þrjár gráður.“

Hann seg­ist hafa fengið sjokk þegar hann kom um borð. „Ég grét og grét og réð ekk­ert við það. Ég sagði við sjálfan mig: „Þegiðu, aum­ing­inn þinn. Hættu þessu hel­vítis væli.“ En ég réði bara ekk­ert við þessi við­brögð. Það var nú bara þannig á þessum tíma að maður sá um þetta sjálfur; það var engin áfalla­hjálp, sál­fræð­ingar eða neitt. En ég jafn­aði mig til­tölu­lega fljótt.“

Guðjón segir að það hlýi sér um hjarta­ræt­urnar að hafa getað bjargað manni. „Þetta er dýr­mætt. Hann skrif­aði mér svo bréf; en ég týndi því þegar ég var að flytja. Það þótti mér leitt. En hann er dáinn, þessi maður, en hann var á sjö­tugs­aldri þegar þetta skeði.“

Guðjón Haf­steinn segir að mað­ur­inn hafi verið ferju­flug­maður og að þeim sé skylt að fljúga í flot­galla en mað­ur­inn var ekki í slíkum galla. Hann bætir við að oft sé um að ræða þotuflug­menn sem eigi góð og löng frí og að sumir þeirra noti þau stundum til að ferja flug­vélar fyrir kaup­endur þeirra; Guðjón  segir að mað­ur­inn sem lenti í sjónum hafi sagt sér þetta. Í þessu til­felli hafði ferju­flug­mað­ur­inn milli­lent í Skotlandi til að taka elds­neyti en mót­vind­ur­inn var það mik­ill að elds­neytið klárað­ist og flug­vélin lendir í sjónum.

Hann seg­ist eftir á að hyggja vera stoltur af þessu afreki. „Þetta er búið að vera í minn­ing­unni og oft er maður búinn að hugsa um þetta.“

Guðjón Haf­steinn var svo heiðr­aður fyrir þetta afrek á sjó­manna­dag­inn árið 2022.

Greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum