Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Páll Steingrímsson opnar sig um símamálið: „Þá segir hún „ég vil bara fá að deyja“,“

Páll Steingrímsson opnar sig um símamálið: „Þá segir hún „ég vil bara fá að deyja“,“
Páll Stein­gríms­son

Páll Stein­gríms­son opnar sig í til­finn­inga­þrungnu við­tali í hlað­varps­þætt­inum Á spjalli með Frosta Logasyni.

Viðtalið birt­ist klukkan níu í fyrra­málið á brot­kast.is en þar ræðir Frosti Logason við skip­stjór­ann Pál Stein­gríms­son og lög­mann hans, Evu Hauks­dóttur um „síma­málið“ svo­kallað en er þetta í fyrsta skipti sem Páll ræðir þetta opin­ber­lega, á svo opinn hátt. Páll hefur þó áður sagt frá því að mann­eskja nátengd honum hafi eitrað fyrir honum og í kjöl­farið stolið síma hans og komið honum til starfs­manna RÚV.

Sjá einnig: Páll skip­stjóri: „Fyrir ári síðan greip aðili nákom­inn mér, til örþrifa­ráðs til að þókn­ast öðrum“

Í mynd­broti úr við­tal­inu sem Mannlíf birtir hér, segir Páll frá því er fyrr­ver­andi eig­in­kona hans játar fyrir honum sekt í mál­inu.

„Þá fer hún að segja mér það að hún hafi farið upp í Efsta­leiti og beðið þá að hætta að skrifa upp úr sím­anum,“ segir Páll í klipp­unni og heldur áfram: „Og ég segi „þeir eru ekk­ert að fara að gera það, þeir eru búnir að nota þig og þeir eru búnir að henda þér, það er bara þannig“. En hún vill ekki segja mér hver vís­aði henni út úr húsi.“ Þarna átti Páll við Efsta­leiti. „Talar bara um „hana“ sem hafi vísað henni út.“

Því næst segir Páll frá því er hann kemur að eig­in­konu sinni á túni við kirkju og segir honum að hún vilji bara fara. Frá­sögnin er aug­ljós­lega erfið fyrir Pál og beygir hann af í henni miðri. „Þegar ég er að fara niður í bæ þá sé ég bíl­inn hennar við kirkj­una. Og þegar ég kem til baka er hann þar enn þremur tímum seinna. Ég sný við til að tékka á henni. Þá finn ég hana á tún­inu sunnan við kirkju­garð­inn. Bara í mjög slæmu ásig­komu­lagi. Og þá tek ég hana í fangið og svona reyni að hugga hana. Og þá spyr hún mig „get­urðu fyr­ir­gefið mér?“, og ég segi bara „já, löngu búinn að því“.“ Á þessu augna­bliki í frá­sögn­inni beygir Páll af enda um gríð­ar­lega erf­iðan hlut að ræða. Þegar hann hefur jafnað sig, heldur hann áfram. „Þá segir hún „ég vil bara fá að deyja“. Og ég tala hana ofan af því. En svo segir hún „en ég vil ekki deyja nema þú vitir sann­leik­ann“. Og þá segir hún mér sög­una. Hún segir mér hver tók við sím­anum og þá hugsa ég að þá sé sá hluti leystur, en ég hafði þó alltaf ákveðna hug­mynd um að það væri þessi aðili.“

Frosti: „En þú vilt ekki segja hvað aðili það er?“

Páll: „Nei.“

Frosti: „En það er ein­hver starfs­maður RÚV?“

Páll: „Já.“ Og hann hélt áfram: „Ég hef verið mjög ákveð­inn þegar kemur að rann­sókn­inni. Ég get til dæmis nefnt sem dæmi að þegar ég mætti á lög­reglu­stöð­ina í skýrslu­töku þá rak ég fyrstu tvo rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­ina út. Annar er æsku­vinur minn frá Rauf­ar­höfn og ég sagði bara við hann „Þú kemur ekki nálægt þess­ari rann­sókn“ og þá kom annar. Ég bað hann líka að fara því hann tengd­ist öðrum brota­þola í mál­inu. Ég var þá spurður hvað ég vildi og ég sagði „Ég vil bara fá mann­eskju hingað inn sem hefur engin tengsl við mig og ekki tengsl við Samherja, punktur. Ég vil bara fá rann­sókn þar sem ég get treyst því hún sé ekki lituð af teng­inu við fyr­ir­tækið eða mig.“ Og ég geymdi þetta nafn alveg þar til í des­em­ber,“ sagði Páll bros­andi og leit á Evu lög­mann. „Þá vorum við Eva að ræða saman og hún var að segja eitt­hvað og ég sagði „Nei, þetta er rangt hjá þér“ og þá sagði ég henni þetta og hún sagði „Páll, þetta er ekki í lög­reglu­skýrslu.“ Ég sagði: „Nei, það er lög­reglu­rann­sókn í gangi og ég ætla ekk­ert að fara að benda á ein­hvern, mér finnst það ekki vera mitt hlut­verk í lög­reglu­rann­sókn. Lög­reglan bara rann­sakar mál, punktur“.“

Frosti: „Og þú hefur ekki nefnt þetta nafn í lög­reglu­yf­ir­heyrslum?“

Páll: „Jú, jú, Eva fór fram á að ég myndi gera það. Svo kom það í ljós seinna meir að að aðrir fjöl­skyldu­með­limir vissu þetta.“

Frosti: „Sem þeir höfðu þá heyrt það frá fyrr­ver­andi eig­in­konu þinni?“

Páll: „Já. Og báðar dætur mínar bera fyrir sig 110 grein sml. Þær munu ekki bera vitni. Það kemur bara ekki til greina.“ Þarna beygir Páll aftur af og segir: „Þá bara tapa ég mál­inu, mér er sama. Þú setur ekki börn í þessar aðstæður.“

Eins og áður segir mun við­talið birt­ast í heild sinni klukkan níu í fyrra­málið á brot­kast.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina