Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Árbæjarkirkja stækkuð: „Allt kapp lagt á að endurheimta huggulega nærsvæðið“

Árbæjarkirkja stækkuð: „Allt kapp lagt á að endurheimta huggulega nærsvæðið“
Þór Hauksson, sókn­ar­prestur í Árbæj­ar­kirkju, telur að tíma­bært sé að stækka kirkj­una

Nú stendur til að stækka Árbæj­ar­kirkju og er und­ir­bún­ingur haf­inn. Ein­hverjir íbúar hverfs­ins hafa lýst yfir áhyggjum að fal­legt nærum­hverfi muni eyði­leggj­ast.

„Kirkjan var teiknuð um 1970 þá með þeim for­sendum sem voru þá hvað varðar starf kirkj­unnar. Á þeim tíma voru prestar með skrif­stofu heima. Í dag eru allt aðrar for­sendur fyrir hendi eins og gefur að skilja 50 árum seinna,“ sagði Þór Hauksson, sókn­ar­prestur í Árbæj­ar­kirkju, við Mannlíf þegar hann spurður út í ástæður þess að stækka eigi kirkj­una.   

„Starfs­mönnum við kirkj­unar hefur fjölgað. Tveir prestar, djákni, starfs­menn í barna og ung­linga­starfi, org­anisti, starfs­menn í öldr­un­ar­starfi. Varlega má áætla að í fullu og hluta­starfi og sjál­boða­liðar, með­talin sókn­ar­nefnd, séu um 30 mánns starf­andi við kirkj­una. Starfs­að­staðan var boð­leg í árdaga kirkj­unnar en er sú sama 50 árum seinna.  Sókn­ar­prest­ur­inn er með starfs­að­stöðu í „eld­hús­inu“ sem fyr­ir­hugað var að yrði í á efri hæð kirkj­unnar. Prest­ur­inn er með skrif­stofu sem var notuð sem geymsla. Djákninn er með aðstöðu þar sem áður var fata­hengi. Org­anist­inn hefur enga aðstöðu fyrir nótur og annað sem til­heyrir starfi hans. Frá 1970 til dags­ins í dag hefur orðið mikil breyt­ing á starfi kirkj­unnar. Eitthvað er um að vera í kirkj­unni alla virka daga vik­unar og á tíðum um helgar með börnum, ung­mennum og öldruðum.“

Kirkjan er á tveimur hæðum og er neðri hæðin að mestu notuð sem safn­að­ar­salur. Einnig hafa prestur og djákni aðsetur þar og reyn­ast starfs­að­stæður þeirra erf­iðar þegar erf­is­drykkja er á virkum dögum. Þá er aðgengið milli hæða ein­göngu í hring­stiga sem gerir hreyfi­höml­uðum og öldruðum erfitt að kom­ast á milli. Aðstaðan þyki hrein­lega ekki boð­leg lengur og mun kirkjan vera stækkuð um 400fm.

„Stefnt er að því að ljúka sem fyrst fram­kvæmdum ytra og rask verði lág­markað eftir bestu getu. Um er að ræða for­steyptar veggein­ingar til að rask verði sem minnst á nærum­hverfi kirkj­unnar. Ein­ing­arnar verða settar upp og beinu fram­haldi af því verða „sárin“ lag­færð og trjám plantað fyrir þau sem felld hafa verið. Hvað innra rýmið varðar áætlum við að ljúka eftir því sem fjár­magn fæst en aðal­á­hersla er lögð á að nærum­hverfið kom­ist í lag sem fyrst eftir því sem aðstæður leyfa eins og veð­ur­far og annað. Skilj­an­lega hafa ein­hverjir áhyggjur af nær­svæði kirkj­unnar. Það verður allt kapp lagt á að end­ur­heimta huggu­lega nær­svæðið sem allra fyrst og bæta í frekar heldur,“ sagði Þór um hvenær stæði til að fram­kvæmdum yrði lokið og hvort að fólk þyrfti hafa áhyggjur af umhverfi kirkj­unnar.

Nýja rýmið muni þá bæta þjón­ustu kirkj­unar með stærri safn­að­ar­sal og aðgengi og starfs­að­stöðu kirkju­gesta og starfs­fólks. Þá verði sett upp lyfta og tröppur til að bæta aðgengi milli hæða.

„Varlega má áætla að yfir vet­ur­inn komi á virkum dögum og helgar vel á annað þús­und manns í kirkj­una. Þau sem sækja guðs­þjón­ustur, almennt safn­að­ar­starf, barna, ung­linga, for­eldramorgna, öldr­un­ar­starf, ýmis nám­skeið, frjáls félaga­sam­tök sem áður er nefnd, kórar og annað til­fallandi eins og útfarir, skírnir, hjóna­víglsur, mann­eskjur sem leita sálu­sorg­unar,“ sagði Þór um hvernig aðsókn í Árbæj­ar­kirkju væri. Árbærinn, sem er eitt fjöl­mennsta hverfi borg­ar­innar, er aðeins með eina kirkju en það þykir óvenju­legt miðað við þann fjölda sem býr í hverf­inu.

„Vissu­lega er aðsóknin árs­tíð­ar­bundin má nefna í des­em­ber­mán­uði einum sam­kvæmt tölum okkar eru hátt á fimmta þús­und manns sem sækja kirkj­una vegna ýmissa athafna hvort heldur kirkju­starf eða annað það sem boðið er uppá í kirkj­unni. Það er löngu ljóst að kirkjan hefur fyrir löngu síðan sprengt utan af sér alla þá starf­semi sem í boði er. Hug­myndin að stækkun hefur verið að gerj­ast í mörg mörg ár og löngu aðkallandi. Aðhald í rekstri kirkj­unnar er til fyr­ir­myndar eða eins og lagt var af stað í upp­hafi í byrjun átt­unda ára­tug­ar­ins að ekki var rekin nagli í spýtu  nema eiga fyrir nagl­anum og spýt­unni að ekki sé talað um þá fjöl­mörgu sem lögðu til hendur og fætur við upp­bygg­ingu kirkju­húss­ins.  Það var þá og enn í dag eru fjöl­margir sem hafa lagt við dag og nótt við und­ir­bún­ing stækk­unar fjöl­rýmis við kirkj­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi