Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ögmundur fordæmir ríkisstjórn Íslands: „Þið getið ekki þvegið hendur ykkar af blóði þessa fólks“

Ögmundur fordæmir ríkisstjórn Íslands: „Þið getið ekki þvegið hendur ykkar af blóði þessa fólks“
Mót­mæl­andi á fund­inum Mynd: Björgvin Gunnarsson

Fjöl­mennt var á Aust­ur­velli í gær á úti­fundi til að mót­mæla fjöldamorðum á Gaza-strönd­inni. Ræðumenn voru nokkrir en Sólveig Anna Jóns­dóttir var ein þeirra sem og Ögmundur Jónasson. Þá söng Magga Stína tvö lög af ein­stakri snilld.

Fáni Palest­ínu –

Mikill meiri­hluti mót­mæl­enda voru af íslensku bergi brotnir en þó var nokkuð stór hópur Palest­ínu­manna á fund­inum og settu sinn svip á hann með bar­áttu­söngvum.

Palest­ínskir mót­mæl­endur.

Ögmundur Jónasson hélt sann­kall­aða eldræðu á fund­inum en þar for­dæmdi hann rík­is­stjórn Íslands fyrir að leggja blessuð sína yfir „grimmd­ar­verk, morð og eyði­legg­ingu Ísra­els­hers.“

Eldræð­una má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Í Palest­ínu logar ófrið­ar­bál.

Þarf að taka það fram?

Er ekki öllum aug­ljóst að sú er raunin?
Erum við ekki að fá fréttir af hern­aði á hverjum degi og oft á dag?
Erum við ekki að fá fréttir af grimmd­ar­verkum, morðum, mann­ránum, eyði­legg­ingu á híbýlum manna, sjúkra­húsum, barna­heim­ilum, – og svo enn fleiri morðum?
Eru þetta ekki fréttir af stríðs­víg­velli? Það er að vísu ekki hægt að tala um stríð­andi fylk­ingar, til þess er ójafn­ræðið of mikið,
– en stríð er þetta engu að síður.

Og aftur spyr ég: Þarf að taka það sér­stak­lega fram?
Jú, það þarf að taka það fram.

Það þarf að taka það fram að verið er að heyja stríð vegna þess að frétt­irnar eru af allt öðru.
Frétt­irnar eru af ríki sem er að verj­ast árásum hryðju­verka­manna.

Ríkið er Ísrael, hryðju­verka­menn­irnir eru Palest­ínu­menn.

Og svo er því bætt við að ríkið hafi fullan rétt á því að verj­ast.
Verjast árásum hryðju­verka­manna.

Þannig talar Ísrael, og þannig talar öfl­ug­asta her­veldi jarð­ar­innar, Banda­ríkin, þannig talar NATÓ og þar er Ísland; Ísra­els­ríki hafi rétt á því að verj­ast Palest­ínu­mönnum segir rík­is­stjórn Íslands.

Og ef þið ætlið að halda öðru fram þá bönnum við ykkur að segja það, og ef þið vogið ykkur að sýna fána hryðju­verka­þjóð­ar­innar þá eruð þið ógn við öryggi heims­ins. Seint hefði því verið trúað að þessi yrði veru­leik­inn í Frakk­landi, Þýska­landi og Bret­landi. En þannig er það.

Og það er líka þannig að þegar því er lýst yfir að Ísrael hafi rétt á að verja sig þá þýðir það að Ísra­el­esríki hafi rétt á að verja aðskil­anaðr­stefn­una, að verja land­ráns­byggð­irnar, að verja gegnd­ar­laust ofbeldi til ára­tuga. Það er merk­ingin, það er merkja­málið sem allir skilja. Það er leyfi­legt að gagn­rýna Ísrael ef það fylgir með að Ísra­els­ríki hafi rétt á að verja sig. Og það lætur rík­is­stjórn Íslands og hinn hlut­drægi NATÓ-heimur alltaf fylgja með.

Ef þetta væri ekki veru­leiki heldur bara saga sem okkur væri sögð ein­hvern hvers­dag­inn, helst frá löngu liðnum tíma, hver væru við­brögð okkar?
Og vel að merkja, áróð­urs­menn kæmu hvergi nærri, bara veru­leik­inn lagður á borð; aðeins blá­kaldar stað­reyndir um land­rán, inni­lokun og úiti­lokun, um gömlu versl­un­ar­göt­una í Hebron sem menn höfðu strengt net yfir því uppi yfir göt­unni var varð­turn ísr­ealska her­náms hers­ins sem los­aði eigin úrgang yfir þá sem voru undir, yfir venju­lega fólkið að fara út í búð að kaupa í mat­inn.
Smátt dæmi í ljósi blóð­ugra ofbeld­is­verka sem framin eru á varn­ar­lausu fólki en tákn­rænt og mér eft­ir­minni­legt þvi ég sá þetta sjálfur. Ég sá margt fleira og aðrir hafa séð miklu verri dæmi um blóð­ugt ofbeldi og yfir­gang. En það er ekki alltaf blóði drifið ofbeldið sem meiðir mest,
sem lengst varir,
sem varir alla daga,
á hverjum degi,
í hverri viku,
mánuð eftir mánuð
og ár eftir ár,
á hverjum degi svo lengi sem ég hef lifað, í 75 ár.

Ef allir fengju að heyra slíkar frá­sagnir án þess að burð­ast með fyr­ir­fram gefnar skoð­anir, án þess að hafa fellt dóma að óat­hug­uðu máli, for-dóma,
þá yrðum við öll sam­mála um rang­lætið.

Við erum fyrir löngu öll orðin því sam­mála að þræla­hald átti sér aldrei neina rétt­læt­ingu, eng­inn deilir um að hryll­ingur helfar­farar nas­ista eigi sér vart hlið­stæðu í grimmd.
Nú fella allir tár yfir Kofa Tómasar frænda og Dagbókum Önnu Frank – og allt er þetta óum­deilt.
En allt er þetta liðin tíð.

Við Mið­jarð­ar­afið loga eld­arnir hins vegar núna.

Það var á mið­nætti að stjórn­endum á sjúkra­úsi á Gaza var fyr­ir­skipað að tæma sjúkra­húsið fyrir dögun því til stæði að sprengja það í loft upp við sól­ar­upp­rás.
Eftir tvö hund­ruð ár verða allir sam­mála um að hér var framið níð­ings­verk.

En við bíðum ekki í tvö hund­ruð ár með að láta frá okkur heyra.
Nei, við tölum núna.

Við eigum að tala hátt og skýrt og krefj­ast þess að morð­æð­inu linni.

Við rík­is­stjórn Íslands segi ég þetta:
Þið for­dæmið morð framin af Ham­asliðum, grimmd­ar­verk á hendur sak­lausu fólki.
Ég tek undir þá for­dæm­ingu en ég for­dæmi jafn­framt að þið skulið leyfa ykkur að leggja blessun yfir grimmd­ar­verk, morð og eyði­legg­ingu Ísra­els­hers, ofbeldi á hendur sak­lausum borg­urum, heilu sam­fé­lagi, því það hafið þið gert.

Þið getið ekki þvegið hendur ykkar af blóði þessa fólks.
Það gerið þið aðeins með því að segja afdrátt­ar­laust að Ísra­els­ríki hafi ekki rétt á þessum ofbeld­is­hern­aði, með því að setja fram afdrátt­ar­lausar kröfur um að blóð­bað­inu, árás­ar­stríði Ísra­els­hers, verði hætt þegar í stað og það sem meira er, rofin verði víta­hringur hat­urs og hefndar með því að leggja af ólög­legar land­ráns­byggðir og virða landa­mærin sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa margorft ályktað um, með því að opna stærsta fang­elsi heims­ins, Gazasvæðið, þar sem búa rúm­lega tvær millj­ónir manna á svæði svip­uðu að stærð og Reykja­vík og Kópa­vogur; að leggja af aðskiln­að­ar­stefn­una, að leggja af ras­is­mann.

Aldrei hefðu menn vogað sér að segja að kyn­þátta­stjórnin í Suður-Afríku hefði átt rétt á að verja sig með því að ráð­ast enn harðar að svörtu fólki, ekki bara ANC hreyf­ingu þeirra Nelsons Mandela og Desmonds Tutu – nei, gegn öllu svörtu fólki, bara muna að það verði gert af mannúð! Með öðrum orðum, að hinir sjúku fái ráð­rúm til að yfir­gefa sjúkra­húsin skipu­lega áður en sprengt er við sól­ar­upp­rás.

Ísland á að segja, við for­dæmum ofbeldið, við for­dæmum allt ofbeldi sem beint er gegn heilu sam­fé­lagi, sem beint er gegn gegn varn­ar­lausu og sak­lausu fólki.

Rík­is­stjórn Íslands, Alþingi, hver ein­asti maður verður að rísa upp með þessar kröfur á lofti.
Það gerum við núna.
Við bíðum ekki í hund­rað ár.
Stöðvið morðin.
Stöðvið árás­ar­her Ísraels.
Stöðvið eyði­legg­ing­una.
Stöðvið stríðs­glæp­ina.
Stöðvið þá núna.

Ung­lingur sveiflar fána Palest­ínu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð