Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Gunnar Smári á trúarlegu nótunum: „Þeir guð og Jesús eru að bjarga manninum frá sjálfum sér“

Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson
Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar Smári Egilsson segir guðstrú holla manninum því þar sé hann ekki miðja alls.

Sósíalista­foringinn Gunnar Smári Egilsson skrifaði nokkuð heimspeki­lega Facebook-færslu í gærkvöldi þar sem hann talar um guðstrúnna. Þar segir hann að kosturinn við þá trú sé sá að „innan hennar getur maðurinn ekki að verið miðja alls.“ Bætir hann við að það sé „manninum hollari staða að vera hluti af veröld sem snýst ekki um hann sjálfan.“

Segir Gunnar Smári að menn hafi svo snúið upp á þetta með því að skapa guð í eigin mynd, sem „skapar þeim sess til að horfa niður á alla aðra.“ En hann segir Jesú hafa svarað því: „Svar Jesú var þá að segja fólki að taka ætíð stöðu við hlið hins ofsótta, fátæka, veika og forsmáða. Það væri aðeins þaðan sem hægt væri að sjá veröldina eins og hún sannarlega er.“ Segir Gunnar Smári að feðgarnir Guð og Jesús séu að „bjarga manninum frá sjálfum sér, að skipa honum til tilvistar­legs sætis þar sem egó hans sviptir hann ekki vitinu“ en að fæstir sætti sig við það. „Það er hluti hins mannlega stands að finnast sinn harmur mestur, sín velsæld mikil­vægust og sitt vit æðst. Þess vegna full­vissir Jesús fólk um að það muni stækka, ekki minnka, við að taka egóið sitt úr miðju heimsins. Þú verður meiri þú eftir því sem þú ert minna þú.“

Að lokum segir Gunnar Smári að til þess að taka það skref, þurfi fólk fyrst að trúa. „En til þess að taka það skref þarf fólk að treysta þessari söluræðu. Fólk þarf að trúa fyrst. Og þess vegna feta fáir þessa leið nema þeir sem lent hafa í tilvistar­legum háska, telja sig hafa reynt allt og sjá enga aðra leið út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra