Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mótmæltu brottvísun Yasam litla: „Til helvítis með fólk sem mætir í vinnuna og brýtur á börnum“

Mótmæltu brottvísun Yasam litla: „Til helvítis með fólk sem mætir í vinnuna og brýtur á börnum“
Marg­menni mót­mælti órétt­læt­inu. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Bergþóra Snæ­björns­dóttir flutti sann­kall­aða eldræðu á mót­mælum fyrir framan Alþing­is­húsið í dag. Þar var sam­an­kom­inn fjöldi fólks til að mót­mæla brott­flutn­ingi hins 11 ára gamla Yazam Timimi úr landi en hann er greindur með alvar­legan hrörn­un­ar­sjúk­dóm.

Fjöldi fólks mætti til að mót­mæla órétt­læt­inu.

Tals­verður fjöldi fólks mætti á Aust­ur­völl í dag til að mót­mæla því að hinn 11 ára gamli Yazam Timimi verði kastað úr landi ásamt for­eldrum sínum, Mohsen og Feryal Aburajab Tamimi, sem komu til lands­ins frá Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu fyrir tæpu ári síðan. Búið er að neita þeim um hæli á land­inu en nauð­syn­legum gögn um heilsu drengs­ins var ekki fram­vísað við máls­með­ferð­ina. Yazam er greindur með hinn mjög svo ágenga hrörn­un­ar­sjúk­dóm, Duchenne en dreng­ur­inn þarf á stöðugri lækn­is­að­stoð að halda, svo hann geti lifað bæri­legu lífi en lífslíkur drengja með þennan skæða sjúk­dóm, sé hann ekki með­höndl­aður, er ekki nema 15 til 18 ár.

Margir eru afar óánægðir með barna­mála­ráð­herr­ann.

„Vanhæf rík­is­stjórn, ómennsk rík­is­stjórn,“ var meðal þess sem kallað var á mót­mæl­unum en það var Bergþóra Snæ­björns­dóttir sem flutti kröft­uga ræðu, sem hún byggði á pistli eftir eig­in­mann hennar, Braga Pál Sig­urð­ar­son sem birt­ist í Stund­inni árið 2019 en sú grein fjall­aði um brott­rekstur kasól­éttrar konu úr landi eftir að henni var neitað um hæli. Bergþóra upp­færði pistil­inn lít­il­lega, enda hefur ástandið í málum flótta­fólks hér á landi að hennar sögn ekki breyst mikið.

Hér má lesa ræð­una í heild sinni:

Allir bara að vinna vinn­una sína.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er bara að vinna vinn­una sína. Látið hana í friði. Hún fær skip­anir um miðja nótt og þarf að fram­fylgja þeim. Ekki þeim að kenna. Einhver þarf að gera þetta. Einhver þarf að ýta á takk­ann sem kveikir á blikk­ljós­unum lög­reglu­bíls sem stendur fyrir utan Barna­spít­ala Hrings­ins. Einhver þarf að leyfa bláu ljós­unum að loga. 

Einhver þarf að hunsa til­mæli heil­brigð­is­starfs­fólks um að barnið geti dáið sé það sett í flug­vél og sent úr landi. Einhver þarf að vinna hjá Kæru­nefnd Útlend­inga­mála við að hundsa öll gögn sem eru lögð fyrir nefnd­ina og skrifa úrskurð þess efnis að heilsu­fars­á­stand barns­ins sé í raun ekk­ert ein­stakt. Jafnvel bara hvers­dags­legt. Að minnsta kosti ekki nægi­lega ein­stakt til að beri að taka neitt til­lit til þess. 

Nei, það er ekk­ert ein­stakt við palest­ínskt barn í hjóla­stól með aggressífan og ban­vænan hrörn­un­ar­sjúk­dóm. Barn með sjúk­dóm sem um 0,1 % mann­kyns fær. Við þurfum ekk­ert að taka til­lit til þess. Getur þú dáið við að vera fluttur úr landi? Þar fór í verra. En ekki okkar ábyrgð. Við erum bara að vinna hérna. Við erum bara að vinna við að taka ákvarð­anir um að taka séns­inn á þínu lífi fyrir þína hönd. 

Lög­reglan er bara að vinna vinn­una sína. Þetta er bara verk­efni. Enn eitt verk­efnið sem þarf að vinna. Einhver þarf að koma þess­ari mein­lausu fjöl­skyldu úr landi. Einhver þarf að beita hæl­is­leit­endur og flótta­fólk ofbeldi. Einhver þarf að beita þá sem mót­mæla ofbeldi. Við verðum að þagga niður í ykkur og bera ykkur út, það er bara vinnan okkar.

Starfs­fólk Útlend­inga­stofn­unar er bara að vinna vinn­una sína. Látið þau í friði. Þau starfa sam­kvæmt lög­gjöf íslenska rík­iss­ins og henni ber að fram­fylgja. Engin óvild. Engin inn­byggð mann­vonska. Svona eru bara lögin. Ísköld og svalandi. 

Einhver þarf að taka ákvörðun um að vísa fjöl­skyldum úr landi um miðja nótt. Svona van­þakk­látar ákvarð­anir taka sig ekki sjálfar. Það þarf að skrifa undir fullt af skjölum, stimpla þau, rétta fólki sem fer með þau á staði þar sem börn í hjóla­stólum bíða örlaga sinna. 

Þar sem bláu ljósin blikka þarf að fram­fylgja því sem stendur á skjöl­unum. Þannig bara virkar þetta. Engum að kenna. Bara starfs­fólk Útlend­inga­stofn­unar að vinna vinn­una sína.

For­eldr­arnir hafa verið að vinna sína vinnu og alla yfir­vinnu­tíma heims við að halda barn­inu sínu á lífi. Berjast og berj­ast fyrir hverri ein­ustu sek­úndu með barn­inu sínu. Tíminn er dýr­mætur. Þegar barnið hætti að geta gengið ákváðu for­eldr­arnir að verða fætur þess. Flytja það frá heima­landi sínu. Bera það þvert yfir hnött­inn til örugg­asta lands í heimi fyrir börn. Inter­netið sagði að það væri Íslands. Þau hafa unnið vinn­una sína og alla yfir­vinnu­tíma heims. Þau eru örmagna. En áfram gakk. Út með ykkur. Þið hljótið að redda ykkur. 

Barnið heitir Yazan Tamimi. Lífslíkur drengja sem eru með Duchennes eins og hann eru ekki nema um 15-18 ára án þjón­ustu. En munið – ekk­ert sér­stakt við það! Nú er barnið nýkomið með þá þjón­ustu sem hann þarf. Heilsa hans er verri en drengja almennt á sama aldri. 

Yazan er að verða tólf ára. Hvað eru mörg góð ár eftir? Enginn veit það. En íslensk stjórn­völd ætla að rifa hann upp með rótum og senda hann til Spánar þar sem flótta­manna­kerfið er löngu sprungið. Af því að „lík­lega“ fái hann við­eig­andi þjón­ustu þar. En hversu langt rof mun verða á þeirri þjón­ustu?

Hver ein­asti dagur skiptir máli. Sjúk­dóm­ur­inn herjar á hjarta, lungu, allt stoð­kerfið. Það MUN STYTTA LÍF HANS að brott­vísa honum.

Ellefu ára barn á ekki að þurfa að vera með þá einu vinnu að ein­fald­lega lifa. Líkaminn örmagna, hug­ur­inn örmagna. Stöðugir verkir. Getan alltaf minni og minni. Brothætt ástand. Getur dáið við HNJASK. Góða ferð elsku barn. Við ætlum að senda þig í flug­vél. Hver tekur ábyrgð á því? Ekki við sem erum bara að vinna hérna, svo mikið er ljóst. 

En kerf­inu er nákvæm­lega sama um allt þetta. Það er vinna sem þarf að vinna og ef eng­inn vinnur hana þá vinnur eng­inn neitt. Barnið er búið að eign­ast vini, það fær að ganga í skóla, það er öruggt í örugg­asta landi í heimi fyrir börn. Nei, sorrý, við erum bara að vinna vinn­una okkar. 

Barnið vill ekki borða. Barnið vill ekki taka lyfin sín. Barnið vill ekki lifa. En svona er þetta. Lög­reglan og Útlend­inga­stofnun eru bara að vinna vinn­una sína. Alþing­is­menn­irnir. Ráð­herr­arnir í rán­dýru jakka­föt­unum og drökt­unum. Allir bara að vinna vinn­una sína. Svekkj­andi.

Þetta er engum að kenna. Stundum þarf bara að flytja lífs­hættu­lega veik börn í hjóla­stólum og örmagna for­eldra þess úr landi, gegn vilja þeirra. Einhver verður að gera þetta. Einhver verður að mæta í vinn­una og þvinga þetta fólk úr landi. Það verður að vinna þessa vinnu. Það verður að fylgja þessum lögum. Þetta fólk er bara að vinna vinn­una sína. Allir bara rosa dug­legir að vinna vinn­una sína á meðan við höldum áfram að rústa lífi sak­laus fólks en akkúrat núna ætla ég að mæta í vinn­una mína og hún felur í sér að ég segi fokk þetta. Til fjand­ans með kerfi sem þyk­ist þjóna en er bara að  troða á valda­lausum innan þess og utan. Til hel­vítis með fólk sem mætir í vinn­una og brýtur á börnum án þess að and­mæla yfir­boð­urum sínum.

Fólk sem tekur svona ákvarð­anir þarf að geta svarað fyrir þær. Þið fáið ekki lengur að fela ykkur í myrkr­inu. Val­gerður María Sig­urð­ar­dóttir, vara­for­maður KNÚ, þú tókst þessa ákvörðun upp á þitt eins­dæmi af því að kerfið okkar leyfir fólki eins og þér að fara með svona völd yfir lífi barns. Þú tókst lífs­vilja Yazans frá honum, það eina sem hann mátti aldrei missa. Þor­steinn Gunn­ars­son, for­maður KNÚ, þú hefur breytt kæru­nefnd­inni úr því að vera síð­asta vígi fólks á flótta fyrir rétt­læti í það að vera ein­fald­lega að fram­fylgja rasískri stefnu. Hörður Ólafsson læknir stoð­deildar lög­regl­unnar sem tekur púls í nokkrar sek­úndur á barni með Duchenne til að geta vottað að megi alveg skófla því úr landi. Við­ur­kennir samt að vita ekk­ert um Duchenne. 

Skömmin er ykkar! 

Sorrý ef ég er dóna­leg  en ég bara verð að vinna vinn­una mína og segja ykkur öllum að fara rak­leiðis í rass­gat, sam­visku­lausa jakka­fata­pakk sem stendur í stafni en þyk­ist samt ekk­ert geta gert. Stíg­vélas­leikj­urnar mega líka éta skít, þær sem fram­fylgja radd­lausum skip­unum ykkar eins og síð­asti hlekk­ur­inn í ein­hverjum ömur­legum hvíslu­leik. Lögin sem þið felið ykkur á bak við munu ekki veita neitt skjól þegar þið þurfið að lokum að svara fyrir gjörðir ykkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð