Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sérfræðingar spá þriðju heimstyrjöldinni: „Vesturlöndum er vissara að búa sig undir stríð“

Félagarnir Trump og Putin.
Félag­arnir Trump og Putin.

Klukkan mun hefja nið­ur­taln­ingu sína til þriðju heims­styrj­ald­ar­innar árið 2025 á undan „land­vinn­inga­her­ferð“ Vladimir Putins sem mun neyða Bretland til að beita valdi, varar sér­fræð­ingur í alþjóða­málum við.

Spenna kraumar um allan heim vegna stríðs milli Ísraela og Hamas í Mið­aust­ur­löndum auk átak­anna í Úkraínu á meðan Kína er sakað um njósnir í Bret­landi og öðrum vest­rænum löndum. Og þegar við förum inn í nýtt ár eru tveir sér­fræð­ingar í alþjóða­sam­skiptum sam­mála um að á árinu 2025 sé lík­legt að ástandið versni með komu Donald Trump í Hvíta húsið.

Anthony Glees, pró­fessor frá Háskól­anum í Buckingham telur að Putin muni standa við lang­tíma­á­ætlun sína um að taka til baka öll löndin sem voru hluti af Sov­ét­ríkj­unum. Og John Strawson, pró­fessor frá Háskól­anum í Austur-London segir að árið 2025 muni sjá „stærstu áskor­anir fyrir alþjóða­sam­fé­lagið síðan síð­ari heims­styrj­öld­inni lauk fyrir 80 árum síðan“.

Strawson útskýrði: „Hætt­urnar stafa af auk­inni sam­keppni stór­velda og hnignun alþjóð­legrar sam­vinnu. Árið 1945 stofn­uðu banda­menn Sam­ein­uðu þjóð­irnar jafn­vel áður en stríð­inu lauk með það að mark­miði að stuðla að nýrri heims­skipan, á þriðja ára­tug ald­ar­innar hefur sú skipan í raun hrunið eins og við sjáum í stríð­inu í Úkraínu, Mið­aust­ur­löndum og spenn­unni um Taívan. Sigur Trumps í kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum er ein­kenni þess að alþjóð­legur óstöð­ug­leiki er að hafa áhrif á inn­an­land­s­póli­tík. Alþekktur ófyr­ir­sjá­an­leiki Donalds Trumps táknar þetta og und­ir­strikar hvernig inn­lend staða helstu ríkj­anna hefur áhrif á alþjóða­sam­skipti. Allt þetta gerir 2025 að hættu­legu ári.“

Glees er viss um að Trump muni leit­ast við að koma á friði á Rússland og Úkraínu en hann telur að samn­ingur muni ekki hafa áhrif á útþenslu­á­huga Putins. Og að Vest­ur­löndum sé viss­ara að búa sig undir stríð, sem hann segir að sé það „mik­il­væg­asta sem við getum gera til að koma í veg fyrir slíkt.“

Trump sagði ítrekað í kosn­inga­bar­áttu sinni að hann gæti útkljáð deil­una í Úkraínu á aðeins einum degi. Og oft hefur verið haft eftir starfs­mönnum hans að áætlun hans sé að frysta núver­andi víg­línu á milli Rúss­lands og Úkraínu og koma á 800 mílna varn­ar­svæði milli land­anna tveggja.

Annar mik­il­vægur þáttur í meintri til­lögu væri sam­komu­lag um að Úkraína myndi ekki ganga í NATO í 20 ár í við­bót. Sagt hefur verið að þetta myndi bjarga and­liti fyrir Putin, ekki síst þar sem það myndi nokkurn veg­inn tryggja að Úkraína gangi ekki í NATO á hans lífs­leið. Og það myndi lík­lega þýða að Banda­ríkin myndu vopna Úkraínu svo mikið að Rússar reyndu ekki að ráð­ast inn í landið aftur.

En Glees trúir því að við munum fær­ast nær stríði árið 2025, jafn­vel þótt það brjót­ist ekki út svo fljótt. „Ég trúi ekki í eina sek­úndu að Putin muni hætta eftir þennan samn­ing. Putin sagði einnig í dag að Rússland væri nú vel í stakk búið til að „ná okkar meg­in­mark­miði í Úkraínu,“ sagði hann. „Vin­sam­leg­ast athug­aðu orðið „megin“ vegna þess að það eru líka önnur mark­mið. Þau eru jafn­vel hræði­legri en „meg­in­mark­mið“ hans. Árið 2027 mun hann vera iðinn við að grafa undan úkra­ínska rík­inu á allan vana­legan hátt og ég held líka að hann muni leggja sig allan fram við að drepa Zelensky.“

Bætti hann við: „Og þá mun Putin fram­kvæma „stóru land­vinn­ings­her­ferð“ sínu sem mun leiða til þriðju heim­styrj­ald­ar­innar. Hann mun snúa sér að hern­að­ar­á­ætlun sinni um að end­ur­reisa Sov­ét­ríkin og gervi­hnatta­kerfi þess að öllu leyti nema nafni þess, með því að snúa sér að öllum ríkj­unum sem gengu í NATO eftir 1997,“ hélt hann áfram. „Hann hefur sagt að það sé ætlun hans að þvinga þau til að yfir­gefa NATO og ég tel að við ættum að taka hót­un­ina mjög alvar­lega, eins og við hefðum átt að taka öllum hót­unum hans alvar­lega en hefur greini­lega mis­tek­ist að gera.“

Sagði Glees að lokum: „Við erum að tala um Finnland, Svíþjóð, Pólland, Tékkland, Ung­verja­land, Búlgaríu, Eistland, Lettland, Litháen, Rúmeníu, Slóvakíu og Slóveníu; Albaníu, Króatíu, Svart­fjalla­land og Vestur-Makedóníu. Með öðrum orðum, virki­lega stór land­vinn­inga­her­ferð hjá Putin, svo stór að ég er viss um að við munum and­mæla honum með valdi og þannig mun þriðja heim­styrj­öldin þró­ast. Þetta mun móta versn­andi sam­skipti okkar við Rússland. Heimsku­legur og falskur frið­ar­samn­ingur Trumps mun hefja nið­ur­taln­ing­una fyrir stríð.“

Mirror fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana