Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Runólfur undrast kjaradeilu Borgarleikhússins

„Hvernig gerð­ist það að Leik­fé­lag Reykja­víkur varð við­skila við leik­ar­ana?“ spyr félags­maður í Leik­fé­lagi Reykja­víkur.

Runólfur undrast kjaradeilu Borgarleikhússins
Borg­ar­leik­húsið Kjara­deila leik­ara stendur nú yfir Mynd: Ljósmynd: borgarleikhusid.is

Runólfur Ágústs­son, félags­maður í Leik­fé­lagi Reykja­víkur og fyrrum Rektor Háskól­ans á Bifröst, birtir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu til leik­ara í kjara­deilu þeirra við Borg­ar­leik­húsið.

Í færslu þess efnis á Facebook undir titl­inum „Til stuðn­ings leik­urum í Borg­ar­leik­hús­inu í kjara­deilu“ seg­ist hann horfa á kjara­deil­una með „nokk­urri undran“.

„Það er ekki annað hægt en að horfa á kjara­deilu leik­ara í Borg­ar­leik­hús­inu við félagið sem rekur það hús með nokk­urri undran. Hvernig má það vera að leik­arar hjá Leik­fé­lagi Reykja­víkur séu með lægstu með­al­laun þeirra starfs­manna sem starfa í leik­hús­inu?“

Það er fleira sem Runólfur furðar sig á. Til að mynda hvers vegna Leik­fé­lag Reykja­víkur hafi ekki hags­muni lista­fólks­ins í for­gangi.

„Hvernig má það vera að Leik­fé­lag Reykja­víkur, sem á sínum tíma var fyrst og síð­ast félag leik­ara og starfs­fólks, skuli ekki hafa hags­muni lista­fólks­ins, sem starf­semi Borg­ar­leik­húss­ins snýst um, í for­gangi? Á hverju heldur stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur að starf­semi leik­húss­ins byggi? Mark­aðs­fólki, mannauðs­stjórum eða þeim sem selja vín eða nammi í hléi?“ spyr hann.

Runólfur spyr einnig hvenær Leik­fé­lag Reykja­víkur hafi orðið við­skila við leik­ar­ana og af hverju félagið sé aðili að Samtökum atvinnu­lífs­ins.

„Hvernig gerð­ist það að Leik­fé­lag Reykja­víkur varð við­skila við leik­ar­ana sem starfa fyrir félagið? Þegar ég var starfs­maður félags­ins fyrir ára­tugum síðan, var Leik­fé­lag Reykja­víkur fyrst og síð­ast félags­skapur leik­ara og starfs­fólks í Iðnó. Hvað breytt­ist og hvenær?

Af hverju er Leik­fé­lag Reykja­víkur aðili að Samtökum atvinnu­lífs­ins og beitir þeim fyrir sig í kjara­við­ræðum við eigið fólk og félags­menn? Borg­ar­leik­húsið er í grunn­inn starfs­manna­rekið leik­hús þar sem félags­skapur þess og ann­ars áhuga­fólks um leik­list rekur leik­húsið. Stjórn þess starfar í umboði félags­manna í þágu list­ar­innar og á að geta mætt leik­urum, starfs­fólki og félags­mönnum milli­liða­laust án milli­göngu atvinnu­lífs­ins og sam­taka þeirra sem hafa öðru hlut­verki að gegna í sam­fé­lag­inu.“

Í nið­ur­lagi færsl­unnar fer Runólfur yfir til­gang leik­húsa og segir að borga skuli leik­urum laun sem þeir eigi skilið.

„Til­gangur leik­húsa er leik­list. Hug­myndin að baki Leik­fé­lagi Reykja­víkur var sú að afrakstur sýn­inga og leik­hús­starfs rynni til leik­ara og ann­ars starfs­fólk í eðli­legu hlut­falli. Leik­fé­lag Reykja­víkur er ekki og á ekki að vera hagn­að­ar­drifið félag, þótt gott sé í slíkum félögum og stofn­unum að eiga góðan vara­sjóð.

Borgum leik­urum þau laun sem þeir vinna fyrir, eiga skilið og félagið hefur fjár­ráð til.“

Undir bréfið skrifar Runólfur sem fyrr­ver­andi leik­hús­rit­ari Leik­fé­lags Reykja­víkur og félags­maður í Leik­fé­lagi Reykja­víkur. Sömu­leiðis var Runólfur blaða­full­trúi leik­fé­lags­ins á níunda ára­tugnum.

Ýmsir nafn­tog­aðir ein­stak­lingar hafa tjáð sig í athuga­semdum við færsl­una og lýsa stuðn­ingi sínum við leik­ara. Edda Björg­vins­dóttir, stór­leik­kona, deildi færsl­unni og skrifar „Nákvæm­lega“.

Egill Helgason, fjöl­miðla­maður og list­unn­andi skrif­aði ein­fald­lega: „Heyr." Guð­mundur Andri Thorsson skrif­aði svip­aða athuga­semd: „Tek undir þetta“.

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og leik­kona er mjög sam­mála Runólfi og skrifar: „Já, þetta er alveg fárán­legt. Leik­húsið, lista­gall­erý, tón­leika­hallir, allir með hærri laun en sjálfir lista­menn­irnir. Hið tvenna síð­ar­nefnda er nú gjarnan reynt að lóðsa inn í sjálf­boða­vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ