Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Andri Snær ósáttur: „Apaheilar“

Brota­lamir í samgöngum á Kefla­víkur­flugvöll.

Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason Rit­höf­und­ur­inn er alls ekki sáttur.

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er allt annað en ánægður með rútu­fyrirtæki sem auglýsir ferðir á Kefla­víkur­flugvöll frá Skógar­hlíð.

Á sama tíma og misbrestur er í rútu­samgöngum hefur Isavia ráðlagt fólki að panta bílastæði fyrirfram um páskana.

Andri Snær varð fyrir því óláni að mæta í Skógar­hlíðina snemma morguns til að taka rútu til Kefla­víkur samkvæmt plani. Rútan hins vegar mætti ekki og hafði Andri Snær aðeins eitt um starfs­menn fyrir­tækisins að segja, kallaði hann þá apaheila, í Facebook-færslu sem hann birti í dag í hópnum Bakland ferða­þjónustunnar:

„Ætlaði að taka þessa rútu hér til Kefla­víkur frá Skógar­hlíð, skv plani færi rútan kl 5, (hentaði betur Flybus 4:30 og 5:30 hjá BSí) Kem þangað og allt er óvenju tómlegt. Þá er bara engin rúta í förum og engin tilkynning um það á vefsíðunni. Apaheilar.“

Margir tóku undir færslu Andra Snæs og kvörtuðu sáran yfir þjónustu­leysinu. Einn þeirra, Ingimar Eydal skrifaði: „Eina landið í veröldinni þar sem þú þarft eiginlega að vera skyggn til að vita hvernig þú átt að komast til og frá alþjóða­flug­vellinum ef þú ætlar að nota einhvers konar almennings­samgöngur...“

Skortur á bíla­stæðum á Kefla­víkur­flugvelli

Varðandi Kefla­víkur­flugvöll þá sendi Isavia frá sér frétta­tilkynningu í dag þar sem fólk er ráðlagt að bóka bílastæði fyrirfram á flug­vellinum um páskana.

Þar segir að búist sé við mikilli umferð um Kefla­víkur­flugvöll um komandi páska en frá og með fimmtudeginum 10. apríl næst­komandi og fram yfir páska er ekki hægt að leggja bílum á betri og almennum stæðum, P1 og P3 við flug­völlinn án þess að búið sé að bóka þau fyrirfram á vef KEF.

„Fyrir­sjáanlegt er að bíla­stæðin verði fullnýtt fyrir og yfir hátíð­arnar og því er þetta gert til að tryggja að farþegar sem eiga bókuð stæði fái þau. Það er mikilvægt að benda farþegum á að frá fimmtudeginum næsta verður ekki hægt að fá bílastæði á P1 og P3 nema þau séu bókuð.

Bókunar­kerfið vefsíðu Kefla­víkur­flugvallar tryggir farþegum stæði um páskana. Ferða­löngum sem ekki eru með bókuð bílastæði er bent á aðra samgöngu­máta til og frá KEF,“ segir meðal annars í frétta­tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra