Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Engin tilkynning hefur borist Hopp um líkamsárás leigubílstjóra

„Tekið verður á mál­inu á við­eig­andi hátt þegar þær ber­ast frá yfir­völdum“

Engin tilkynning hefur borist Hopp um líkamsárás leigubílstjóra
Garðabær Leigu­bíl­stjóri réð­ist á karl­mann með hnefa­höggum í gær. Mynd: Garðabær

Samkvæmt svörum frá Hopp leigu­bílum seg­ist fyr­ir­tækið ekki bera ábyrgð á leigu­bíl­stjórum sem þjón­ustar far­þega í gegnum fyr­ir­tækið. Séu lögin skoðuð kemur í ljós að Sam­göngu­stofa ber ábyrgð­ina.

Í gær sagði Mannlíf frá því að karl­maður hafi verið fluttur á sjúkra­hús eftir lík­ams­árás leigu­bíls­stjóra en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs er bíl­stjór­inn skráður sem leigu­bíl­stjóri hjá Hopp og hjá sjálfum sér

Mannlíf sendi fyr­ir­spurnir á Hopp leigu­bíla og spurðu eft­ir­far­andi spurn­inga:

  1. Hvernig mun Hopp bregð­ast við komi í ljós að mað­ur­inn er skráður á stöð­ina?
  2. Hversu margir bíl­stjórar hafa misst leyfi til að starfa hjá Hopp síðan stöðin var stofnuð?

Í svari sem barst frá Hopp kemur fram að fyr­ir­tæk­inu hafi ekki borist neinar upp­lýs­ingar um atvikið en að „tekið verður á mál­inu á við­eig­andi hátt þegar þær ber­ast frá yfir­völdum“.

Hvað varðar svar við seinni spurn­ing­una, þurfti Mannlíf að ganga aðeins eftir svari en í fyrstu barst það svar að allir leigu­bíl­stjórar hér á landi séu sjálf­stætt starf­andi verk­takar og fái miðlað til sín ferðum frá þeim leigu­bíla­stöðvum sem þeir eru skráðir á og að allir leigu­bíls­stjórar séu rekstr­ar­leyf­is­hafar sem keyri á eigin leyfi frá Sam­göngu­stofu.

Hér má lesa svarið í heild:

„Allir leigu­bíl­stjórar á Íslandi eru sjálf­stætt starf­andi verk­takar og fá ferðum miðlað til sín frá þeim stöðvum sem þeir eru skráðir á eða afla sér þeirra sjálf­stætt. Enginn leigu­bíl­stjóri keyrir á vegum Hopp nema þegar þeir fá ferð í gegnum Hopp appið. Allir leigu­bíl­stjórar eru rekst­ar­leyf­is­hafar og keyra á eigin leyfi frá Sam­göngu­stofu. Missi bíl­stjóri leyfi frá Sam­göngu­stofu dettur hann sjálf­kraf út úr Hopp app­inu. 

Hopp gerir strangar gæða­kröfur á þá bíl­stjóra sem fá ferðir í gegnum Hopp appið, þar er ekki hægt að breyta verði því allar greiðsur fara í gegnum Hopp appið ásamt því að rekj­an­leiki gagna er í app­inu, fyrir bíl­stjór­ann, not­and­ann og Hopp.“

Mannlíf hafði aftur sam­band við Hopp leigu­bíla til að ýta eftir svari við hinni spurn­ing­unni, hversu margir bíl­stjórar hefðu misst leyfi til að starfa hjá Hopp eftir að fyr­ir­tækið var stofnað.

Í svar­inu sem barst kemur fram að erfitt sé að svara spurn­ingu sem í raun eigi ekki við fyr­ir­tækið, þar sem bíl­stjórar keyri allir á eigin rekstr­ar­leyfum.

„Það er erfitt að svara spurn­ingu sem á í raun ekki við okkur, Hopp er ekki leyf­is­hafi né eru bíl­stjórar að keyra á leyfi Hopp þeir keyra á sínum rekst­ar­leyfum.“

Svarið kom síðan en þar kemur fram að engin til­kynn­ing hafi borist fyr­ir­tæk­inu um alvar­leg atvik og hefur því „engum reikn­ingum verið lokað vegna sak­næmrar hátt­semi bíl­stjóra í Hopp ferð“.

Hér má lesa seinni helm­ing svars­ins:

„Hér reynum við að svara spurn­ing­unni þinni:

Við ítrekum að bíl­stjórar eru sjálf­stæðir verk­takar með leyfi hjá Sam­göngu­stofu. Sé leyfi bíl­stjóra ekki lengur gilt, af hvaða ástæðu sem kann að búa að baki, er það Sam­göngu­stofa sem aft­ur­kallar leyfi við­kom­andi. Það er því rétt­ast að hafa sam­band við Sam­göngu­stofu til að læra meira um leyf­is­mál bíl­stjóra. Hopp hefur ekki fengið neina til­kynn­ingu um alvar­leg atvik frá eft­ir­lits­að­ilum eða öðrum stjórn­völdum og engum reikn­ingum hefur verið lokað vegna sak­næmrar hátt­semi bíl­stóra í Hopp ferð.“

Lögin skýr

Séu lög um leigu­bíla­rekstur skoð­aðar má sjá að Hopp hefur rétt fyrir sér. Sam­göngu­stofa ber ábyrgð á leyf­is­veit­ingum og svipt­ingum leigu­bíl­stjóra, sam­kvæmt lögum um rekstur leigu­bíla. Eins og sjá má í 16. grein þriðja kafla um rekstur leigu­bif­reiða, er Sam­göngu­stofu heim­ilt að svipta leyf­is­hafa leyfi þar til end­an­leg ákvörðun hefur verið tekin í mál­inu, hafi leigu­bíl­stjór­inn sann­an­lega gerst sekur um víta­verða hátt­semi.

16. gr.:Séu ríkar ástæður til að ætla að skil­yrði fyrir svipt­ingu leyfis séu fyrir hendi og að töf á svipt­ingu geti haft almanna­hættu í för með sér, svo sem ef leyf­is­hafi hefur sann­an­lega gerst sekur um víta­vert hátt­erni og telja verður var­huga­vert að hann njóti leyfis áfram, er Sam­göngu­stofu heim­ilt að svipta leyf­is­hafa leyfi þegar í stað til bráða­birgða þar til end­an­leg ákvörðun í mál­inu hefur verið tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi