Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þingkonan þreytuleg í ræðustól

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók þátt í umræðu um leigu­bíla­akstur eftir langan dag.

Þingkonan þreytuleg í ræðustól
Áslaug Arna í ræðu­stól. Þing­konan þótti nokkuð þreytu­leg. Mynd: Alþingi

Myndband af ræðu þing­manns­ins Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur síð­ast­liðið þriðju­dags­kvöld hefur gengið á milli fólks á sam­fé­lags­miðlum. Þar sést þing­konan blanda sér í umræður í ræðu­stól á Alþingi um frum­varp um leigu­bíla­akstur. Störf þings­ins teygðu sig inn í kvöldið frá miðjum degi og var þeim lokið skömmu fyrir mið­nætti.

Mikið álag hefur verið á þing­mönnum vegna kom­andi þing­frest­unar. Þingmenn vinna nú að því að ljúka vinnu fyrir sum­ar­frí, sem áætlað er að hefj­ist 13. júní. Aðeins 11 starfs­dagar eru eftir á þingi fram að því, sam­kvæmt starfs­á­ætlun. Klukkan var orðin tíu mín­útur gengin í 11 þegar Áslaug Arna steig þreytu­leg í ræðu­stól. Að baki henni reis úr sæti Ingvar Þór­odds­son, annar vara­for­seti Alþingis, til að kynna hana í pontu.

Áslaug Arna hafði fyrr um dag­inn birt af sér mynd á Instagram sitj­andi með vin­konu sinni, fyrr­ver­andi lög­fræð­ingi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, við spilið backgammon í bak­garði Jóm­frú­ar­innar við Lækj­ar­götu, með hvítvíns­glas sér við hlið, síðla seinni parts.

Hita­bylgja hefur riðið yfir landið síð­ustu daga og í sjálf­virkri mæl­ingu Veð­ur­stof­unnar í Hljóm­skála­garð­inum, sem næst er mið­borg Reykja­víkur, náði hita­stigið 16,7 gráðum klukkan 15 í hægri, breyti­legri átt og heið­skíru. Var hiti enn 14 gráður í bak­garð­inum þegar skuggi náði þar yfir klukkan 19 þann dag­inn.

Frumvarp rík­is­stjórnar var lagt fram af Eyjólfi Ármanns­syni inn­við­a­ráð­herra og gengur það að hluta gegn lögum sem sett voru í tíð fyrri rík­is­stjórnar, sem Áslaug Arna var aðili að og átti að auka frelsi í leigu­bíla­akstri, með umdeildum afleið­ingum.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttirÞing­konan birti mynd af sér með drykk á þriðju­dag áður en hún hélt áfram þing­störfum.
Ræða Áslaugar á þingiÁ þriðju­dags­kvöld­inu kvaddi Áslaug Arna sér máls og undrað­ist fjar­veru ráð­herra.

Áslaug Arna vakti snemma athygli á stjórn­mála­ferli sínum með bar­áttu fyrir rýmkun á sölu áfengis. Sem for­maður Heimdallar, félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, tjáði sig í við­tali við Frétta­tím­ann 2013, um að ef fólk vildi fá sér rauð­vín með steik eða hvítvín með humri ætti það að geta farið út í verslun, sama á hvaða tíma dags, og keypt vínið. Ummælin vöktu mikla athygli og umræðu um stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ekki síst vegna for­gangs­röð­unar sam­tímis og upp­gjör vegna efna­hags­hruns stóð yfir.

Áfeng­is­neysla þing­manna á dögum þar sem þing­fundir standa yfir hafa hins vegar verið við­kvæmt umræðu­efni. Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, baðst afsök­unar í upp­hafi þing­fundar árið 2009 á þeim „mis­tökum“ að hafa drukkið létt­vín áður en hann mætti á Alþingi, en þar hélt hann ræðu sem vakti athygli af sökum fram­sög­unnar. Hann kvaðst þó hafa drukkið en ekki kennt áhrifa.

Áslaug Arna hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Mannlífs um efnið.

Breyt­ingar eru að verða á högum Áslaugar Örnu. Hún bauð sig fram til for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum á lands­fundi í byrjun mars. Rúmlega tveimur mán­uðum fyrr hafði Áslaug vakið lands­at­hygli þegar hún bjarg­aði mat­ar­gesti frá köfnun á veit­inga­staðnum Kastrup við Hverf­is­götu, með beit­ingu Heimlich-aðferð­ar­innar. Í fram­boðs­ræðu sinni fyrir lands­fundi nefndi Áslaug að sitj­andi rík­is­stjórn stæði á önd­inni, en kynni ekki Heimlich-aðferð­ina.

Veit­inga­stað­ur­inn Kastrup var síðan inn­sigl­aður í byrjun maí vegna skatta­skuldar og gestum vísað út frá hálf­kláruðum mál­tíðum. Svo vildi til að sama dag til­kynnti Áslaug Arna um tíma­bundið brott­hvarf sitt úr stjórn­málum.

Ingvar Þórdds­son, annar vara­for­seti þings­ins, átti eftir að koma við sögu í frétta­flutn­ingi þegar hann til­kynnti í morgun að hann hefði tekið sér frí frá þing­störfum til að sækja sér áfeng­is­með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­inu Vogi.

Áslaug tap­aði naum­lega for­manns­kosn­ing­unni og flytur til New York í sum­ar­lok til náms í opin­berri stjórn­sýslu og alþjóða­leið­toga­fræðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum