Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Get lofað því að ef Þjóðkirkjan væri að breytast í múslímska kirkju er mér að mæta“

Biskup Íslands segir ekki gott að vera sökuð um að boða villu­trú og að löngu sé orðið tíma­bært að upp­færa hand­bók kirkj­unnar, en þar er nú talað um öll kyn og má einnig finna sálma á erlendri tungu

„Get lofað því að ef Þjóðkirkjan væri að breytast í múslímska kirkju er mér að mæta“
Guðrún Karls Helgu­dóttir Biskup Íslands vill ekki láta kenna sig við villu­trú Mynd: Biskupsembættið

Guðrún Karls Helgu­dóttir biskup Íslands segir óþægi­legt að vera sökuð um að boða villu­trú og það sé svo sann­ar­lega ekki rétt, en Guðrún greinir helst gagn­rýni í umræðu á sam­fé­lags­miðlum eftir að drög að nýrri hand­bók kirkj­unnar voru kynnt á presta­stefnu nýverið.

Hand­bók­ar­drögin vöktu tals­verð við­brögð. Fóru breyt­ingar fyrir brjóstið á ein­hverjum, en í drög­unum eru nú sálmar á erlendum tungum - meðal ann­ars á arab­ísku, og þá er talað um öll kyn.

Í kjöl­farið var bisk­upinn sak­aður um að boða villu­trú, af séra Geir Waage, fyrr­ver­andi presti Þjóð­kirkj­unnar í Morg­un­blað­inu.

Guðrún var gestur í Morg­un­út­varp­inu.

Hún segir athygl­is­vert að Morg­un­blaðið hafi rætt við prest sem hætti að þjóna í Þjóð­kirkj­unni fyrir fimm árum. Hafi aug­ljós­lega ekki kynnt sér vel hand­bók­ar­drögin.

„Og að fá hann til að kynna þau fyrir fólki, það er svona ákveðin upp­lýs­inga­óreiða sem felst í því,“ segir Guðrún. „Það má saka mig um ýmis­legt en villu­trú er ekki alveg rétt.“

Guðrún segir í drög­unum sé verið að auka fjöl­breytni tungu­taks­ins í helgi­haldi. Gagnrýni snúi meðal ann­ars að sálmi sem er á arab­ísku, en Guðrún bendir á að hann hafi verið þýddur í sálma­bók árið 2013, og í raun séu tugir sálma á öðrum tungu­málum en íslensku.

Hún segir marga við­kvæma fyrir hug­tak­inu allah, er þýðir ein­fald­lega guð á arab­ísku og hún segir sálm­inn sjálfan varla geta verið kristn­ari, hann sé sam­inn af kaþ­ólikka frá Nasaret.

„Það virð­ist vera ákveðin hræðsla hjá mörgum við múslima og íslamska trú. Ég ber bara virð­ingu fyrir því og það er ekki gott. En það hefur ekk­ert með íslensku sálma­bók­ina að gera, hún er ramm­ís­lensk og hákristin,“ segir Guðrún. „En ég get alveg lofað ykkur því að ef Þjóð­kirkjan væri að breyt­ast í ein­hvers konar múslímska kirkju þá væri mér að mæta. Það er ekki það sem þetta snýst um. En ástæðan fyrir því að það eru sálmar á fleiri tungu­málum er sú að það er mjög mikið af fólki sem kemur í kirkju íslensku þjóð­kirkj­unnar sem talar ekki íslensku.“

Hún segir síð­ustu hand­bók kirkj­unnar hafa komið út á níunda ára­tug síð­ustu aldar og því eðli­legt að upp­færa þau.

„Ég var nú svo sem ekk­ert að kynna neitt nýtt á presta­stefnu heldur hófst þessi vinna fyrir þremur árum og ég hef verið að koma inn í þetta á loka­metr­unum sem biskup. En það er hand­bóka­nefnd sem er að vinna þessa hand­bók,“ segir Guðrún.

Drögin verði til kynn­ingar og reynslu í kirkjum lands­ins næstu tvö árin og fólk geti komið athuga­semdum um hand­bók­ina áleiðis til nefnd­ar­innar. Guðrún segir að með nýrri hand­bók sé ekki verið að fjar­lægja neitt heldur að bæta við, til dæmis með fjöl­breytt­ara tungu­taki, til þess að allt fólk sem komi í kirkju upp­lifi að það sé ávarpað. Þá sé einnig verið að auka fjöl­breytni í því hvernig guð sé ávarp­aður í bænum.

„Það sem sumir hafa rætt um er að það sé notað hug­takið ljós­móðir lífs­ins yfir guð og það er til dæmis mjög gam­alt hug­tak sem hefur verið notað um guð í fornum sálmum okkar Íslend­inga, til dæmis hjá Hall­grími Pét­urs­syni, þannig þetta er nú ekk­ert sem hand­bóka­nefnd var að finna upp á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ