Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Andri Snær rífur blaðamann Morgunblaðsins í sig

„Stefán er að hengja bak­ara fyrir að vera ekki smiður“

Andri Snær rífur blaðamann Morgunblaðsins í sig
Andri Snær Magnason Stefán E. fær það óþvegið frá rit­höf­und­inum

Rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason svarar harð­lega umfjöllun Stefáns Einars Stef­áns­sonar blaða­manns í Morg­un­blað­inu, þar sem list­rænn fer­ill hans var dreg­inn saman í „fimm bækur á 25 árum fyrir 137,8 millj­ónir eða 106.957 krónur á blað­síðu“.

„Nákvæmni töl­fræð­innar upp á krónu er aðdá­un­ar­verð og hefur yfir­bragð vand­virkni en því miður er þetta röng tala,“ skrifar Andri Snær. Hann gagn­rýnir blaða­mann­inn fyrir að end­ur­birta upp­lýs­ingar frá hags­muna­sam­tökum án sjálf­stæðs mats: „Hlutverk blaða­manna er að leggja sjálf­stætt mat á slíkt efni en það á ekki við að þessu sinni.“

Höf­und­ur­inn segir að starfs­fer­ill sinn sé mun víð­tæk­ari en fram kom í grein­inni. „Stefán er að hengja bak­ara fyrir að vera ekki smiður,“ skrifar Andri Snær og bendir á að hann hafi ekki ein­ungis starfað sem bóka­höf­undur heldur einnig sem leik­skáld og kvik­mynda­gerð­ar­maður. „Í umsóknum mínum um starfs­laun hafa leik­rit og leik­ritun verið hluti eða kjarn­inn í mínu list­ræna starfi ásamt hand­ritum fyrir heim­ild­ar­myndir.

„Öll þessi verk­efni eru til­greind í umsóknum mínum,“ segir hann og nefnir í fram­hald­inu fjölda verka sem hafi fengið við­ur­kenn­ingar eða verið sýnd víða um heim. Þar á meðal eru Blái hnött­ur­inn, sem settur hefur verið upp á fjöl­mörgum sviðum víða um heim, Úlf­hams­saga sem hlaut sjö Grímutil­nefn­ingar, Drauma­landið sem naut mik­illar aðsóknar sem heim­ild­ar­mynd og fékk Eddu­verð­laun, og Um tím­ann og vatnið, sem hefur komið út á 30 tungu­málum og hlotið alþjóð­leg verð­laun.

Hann segir að með því að sleppa leik­verkum, kvik­myndum og öðrum verk­efnum hafi blaða­maður dregið upp vill­andi mynd. „Fyrir að taka áhættur eða vinna þvert á list­form er fer­ill minn not­aður gegn mér,“ skrifar hann og bendir á að hann hafi einnig tekið þátt í alþjóð­legum list­sýn­ingum, verk­efnum með Kronos Quartet og Yo-Yo Ma, sem og við­burðum fyrir stærstu ráð­stefnur í heim­inum.

Andri Snær gagn­rýnir jafn­framt stjórn­sýslu­kæru sem Stefán Einar hafi lagt fram árið 2016 til að fá aðgang að umsóknum hans til Launa­sjóðs rit­höf­unda. „Miðað við fram­setn­ingu um ,krónur á blað­síðu‘ og van­talin leik­rit þá getur hver maður ímyndað sér hví­líku tjóni Stefán Einar hefði valdið ef hann hefði kom­ist í umsóknir mínar,“ segir hann og bætir við að það hefði getað ógnað útgáfu bók­ar­innar Um tím­ann og vatnið.

Í færsl­unni bendir rit­höf­und­ur­inn á að bók­verk hans hafi selst í 110 þús­und ein­tökum á Íslandi, sem sam­svari 550 millj­óna króna veltu „sem skipt­ist á prent­smiðjur, bóka­búðir, virð­is­auka­skatt, bóka­for­lag og höf­und­ar­laun“. „Af hverju gat Stefán ekki reiknað út fram­lag okkar höf­unda – hverju við skil­uðum í stað þess að reikna út hversu mikil byrði við erum á sam­fé­lag­inu?“ spyr hann og heldur áfram: „Af því að það - lét okkur líta of vel út? Að auk list­ræns fram­lag væri beinn fjár­hags­legur ávinn­ingur af starfi okkar? Talaði hann um fimm Íslands­met? Alþjóð­leg verð­laun? Að vel­gengi okkar inn­an­lands og utan væru rök til að efla sjóð­inn? Nei Stefán Einar er svo rasandi á sóun­inni í feril minn, líkir því við að hann sjálfur hefði bara ,,mætt í vinn­una, einu sinni í mán­uði alla mína starfsævi". Já ég hefði svo sann­ar­lega viljað sjá mínar helg­ustu hug­myndir í hans höndum. Ég segi og skrifa: Helgustu hug­myndir.“

Hann endar á því að leggja áherslu á gæði verka sinna og þann tíma sem hann leggur í þau: „Það eina sem skiptir mig máli er gæði verk­anna og TÍMINN sem ég gef þeim. Það er for­senda þess að þau fari um heim­inn. Þá er von til þess að þau lifi mig – og ekki síst Stefán.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð