Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gadzhi frá Dagestan skrifar Kristrúnu eftir brottvísun

Við biðjum aðeins um rétt­læti, öryggi og mann­lega reisn“

Gadzhi frá Dagestan skrifar Kristrúnu eftir brottvísun
Tví­bura­syst­urnar Bréf föð­urs­ins var lesið upp fyrir fund­ar­gesti Mynd: Facebook

Á opnum fundi Sam­fylk­ing­ar­innar um helg­ina var lesið upp bréf frá Gadzhi Gadzhiev, manni frá Dagestan í Rúss­landi sem vísað var úr landi ásamt eig­in­konu sinni, tveggja ára syni þeirra og nýfæddum tví­burum. Í bréf­inu, sem beint var til Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, lýsir Gadzhi erf­iðum ofsóknum í heima­landi sínu og þeirri með­ferð sem fjöl­skyldan seg­ist hafa orðið fyrir af hálfu íslenskra yfir­valda.

No Borders Iceland gagn­rýndu í færslu á Facebook að Kristrún hafi ekki viljað koma neinum skila­boðum áleiðis til fjöl­skyld­unnar þegar hún var innt eftir því.

Í upp­hafi bréfs­ins segir Gadzhi:

„Ég heiti Gadzhi, og ég er frá Dagestan, hér­aði sem enn er undir her­námi Rúss­lands. Það er með sárs­auka í hjarta sem ég ávarpa þig, ekki sem stjórn­mála­mann, heldur sem mann­eskju.“

Hann segir frá því að hafa verið num­inn á brott árið 2016 og fang­els­aður í Síberíu:

„Af þeim tíma sem ég varði í fanga­búð­unum í Síberíu eyddi ég tæp­lega fjórum árum í ein­angr­un­ar­vist, þar sem ég var pynt­aður, lík­am­lega, kyn­ferð­is­lega og and­lega. Ég var kerf­is­bundið nið­ur­lægður vegna upp­runa míns.“

Eftir að hafa sloppið úr haldi árið 2021 segir hann að fjöl­skyldan hafi flúið til Tyrk­lands og síðar til Íslands, í þeirri trú að fá vernd. Þar hafi hann sótt um alþjóð­lega vernd, en umsókn­inni hafi verið hafnað þrátt fyrir að móðir hans og systk­ini hefðu þegar fengið vernd hér á landi.

Gadzhi full­yrðir að starfs­maður rík­is­lög­reglu­stjóra, „Olga að nafni,“ hafi komið fram við fjöl­skyld­una af hörku:

„Hún sagði ítrekað við mig og eig­in­konu mína, sem þá var ófrísk af tví­burum og á áhættu­með­göngu, að ‘hún skuli ekki fá að fæða hér.’“

„Í við­ur­vist eig­in­konu minnar […] sagði Olga að við værum hér í ólög­legri dvöl og að hún myndi per­sónu­lega sjá til þess að við yrðum send til Rúss­lands.“

Síðar í bréf­inu lýsir hann brott­vísun fjöl­skyld­unnar úr landi 30. sept­em­ber:

„Við fengum 20 mín­útur til að taka saman eigur okkar og vorum flutt í varð­hald á óþekktum stað. Að morgni 30. sept­em­ber vorum við flutt með leynd um sér­stakan inn­gang á Kefla­vík­ur­flug­velli, sett í einka­þotu og vísað úr landi til Króatíu, án dóms­úr­skurðar, án sam­skipta við lög­mann, og án nokk­urrar til­kynn­ingar.“

Gadzhi segir að brott­vís­unin hafi verið fram­kvæmd þegar eig­in­kona hans var nýbúin að fæða með keis­ara­skurði:

„Flugið var áhættu­samt gagn­vart heilsu hennar og lífi, en starfs­menn­irnir vissu þetta og fram­kvæmdu samt brott­vís­un­ina.“

Hann lýsir ástand­inu í Króatíu sem mjög bág­bornu:

„Við vorum vistuð í flótta­manna­búðum, í lok­uðu her­bergi þar sem kakka­lakkar gengu lausir. Þar fengum við í fyrsta sinn afhent íslensk fæð­ing­ar­vott­orð dætra okkar, útgefin 18. sept­em­ber, skjöl sem höfðu verið í vörslu Olgu og með­vitað haldið frá okkur.“

Í bréf­inu kallar Gadzhi eftir því að íslensk stjórn­völd rann­saki málið og leyfi fjöl­skyld­unni að snúa aftur til Íslands:

„Ég biðla til ykkar af ein­lægni um að þið beitið ykkur í máli okkar, rann­sakið gjörðir starfs­manna rík­is­lög­reglu­stjóra, og leyfið fjöl­skyldu minni að snúa aftur til Íslands, þar sem móðir mín, bróðir og systir búa.“

Hann lýkur bréf­inu með því að segj­ast ekki vera að biðja um vorkun.

„Við biðjum ekki um neina vorkun. Við biðjum aðeins um rétt­læti, öryggi, og mann­lega reisn.“

„Eðlileg vinnubrögð“

For­sæt­is­ráð­herra var spurð í lok fund­ar­ins hvort henni þætti brott­vísun fjöl­skyld­unnar vera eði­lega og hvort hún vildi koma ein­hverjum skila­boðum áleiðis til fjöl­skyld­unnar. Kristrún sagði að eftir því sem hún best vissi hefðu verið stunduð eðli­leg vinnu­brögð þegar fjöl­skyld­unni var vísað úr landi en ef í ljós komi að svo er ekki, þurfi að skoða það. Sagði þakk­aði einnig fyrir þessar spurn­ingar og sagði að mál sem þessi hreyfi bæði við fólki og kerf­inu en að það þýði ekki að hún stígi inn í ein­stök mál, það verði að vera hægt að treysta þeim stofn­unum sem fara með mál hæl­is­leit­enda.

Einn af með­limum No Borders Icelands, sem var á fund­inum spurði Kristrúnu aftur hvort hún vildi skila ein­hverju til rúss­nesku fjöl­skyld­unnar.

„Mér finnst ég hafa talað ansi almennt um þessi mál hérna,“ svar­aði Kristrún en No Borders-með­lim­ur­inn skaut þá inn í:

„Þannig að [fjöl­skyldan er] bara eðli­legur fórn­ar­kostn­aður?“

Kristrún svar­aði:

„Það var ekki það sem ég sagði.“

„Eðlileg vinnu­brögð heyrði ég,“ svar­aði þá mað­ur­inn um hæl.

„Ég hef ekki for­sendur til að svara fyrir það, ég hef ekki séð rann­sókn þessa máls,“ svar­aði for­sæt­is­ráð­herra og bætti við: „Auðvitað finn ég gríð­ar­lega til með stöðu þessa fólks eins og stöðu mjög margra í við­kvæmri stöðu víða í heim­inum.“

Annar með­limur No Borders Iceland spurði þá Kristrúnu hvort hún þyrfti ekki að skoða mál fjöl­skyld­unnar og því ját­aði hún. „Jú, það eru ýmsir að skoða það og það er ekki við­eig­andi að ég sé að tjá mig um smá­at­riði í máli ein­stak­lings og ég læt þar við sitja. Það þýðir ekki að ég sé ekki full­kom­lega með­vituð um erf­iða stöðu þessa fólks og það hefur alla mína samúð. Við getum ekki stjórnað með þeim hætti að við förum alltaf inn í stök mál sem ráða­menn en það er hlustað og þess vegna ber ég full­komna virð­ingu fyrir ykkar bar­áttu og það hefur oft í gegnum tíð­ina skilað sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum