Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið

Leik­konan segir frá tveggja ára bar­áttu við RÚV.

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið
Dóra Jóhanns­dóttir Ósátt við að vera ekki nefnd í kredit­lista þátt­anna Húsó á RÚV. Mynd: Leiklistarvefurinn

Leik­konan og hand­rits­höf­und­ur­inn Dóra Jóhanns­dóttir gagn­rýnir Rík­is­út­varpið harð­lega í færslu á Facebook og segir nafn sitt enn og aftur hafa vantað í kredit­lista yfir þætt­ina Húsó í sýn­ingu þeirra á RÚV síð­ast­lið­inn föstu­dag klukkan 18, tveimur vikum eftir að hún hlaut Íslensku sjón­varps­verð­launin fyrir besta hand­rit sem einn höf­unda sömu þáttar­aðar, sem hún segir byggða á eigin reynslu.

Dóra segir að á sama tíma hafi Kastljós unnið innslag um nýja fram­leiðslu hjá sömu fram­leið­endum. Hún lýsir rúm­lega tveggja ára bar­áttu „fyrir því m.a. að fá það kredit sem ég á rétt á og sann­gjarnar greiðslur fyrir vinnu mína.“

Vildi dulnefni

Dóra hafði farið fram á að vera merkt fyrir þátt­unum með dul­nefn­inu Hekla Hólm, sem ekki var sam­þykkt og end­aði því með ekk­ert nafn á kredit­list­anum.

„Eftir allt sem á undan er gengið var bæði óraun­veru­legt og sárt að sjá að nafn mitt eða dul­nefni birt­ist hvergi, hvorki í byrjun né í lok þáttar,“ skrifar hún og bætir við að hún hafi „viku áður tekið á móti íslensku sjón­varps­verð­laun­unum fyrir besta hand­rit.“

Dóra bendir á að Húsó sé „nær alfarið fjár­magnað með opin­beru fé í gegnum RÚV og iðn­að­ar­ráðu­neytið“ og að RÚV hafi verið upp­lýst um málið „frá upp­hafi“ án þess að ábyrgð hafi verið tekin, að hennar sögn.

„Ég hef ítrekað sýnt vilja til sátta og lausna, en veru­legur lög­fræði­kostn­aður hefur safn­ast upp við að reyna að leysa málið,“ segir hún og kveður sig enn ekki hafa fengið „sann­gjarnar greiðslur né leið­rétt kredit í fjöl­miðlum eða erlendum til­nefn­ingum, hvað þá bætur fyrir skað­ann.“

Dóra skaut á fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Glass­ri­ver þegar hún tók á móti íslensku sjón­varps­verð­laun­unum og vitn­aði til fyrri ummæla leik­stjór­ans Baldvins Z, sem hafði sagt í umræðu um gervi­greind­ar­leik­ara að þeir færu ekki á túr, áður en hann baðst afsök­unar á ummæl­unum.

„Og svo bara langar mig til að segja sorrý Glass­ri­ver. Það er engin afsökun að ég fari á túr, stundum. Takk fyrir mig,“ sagði Dóra í ræðu sinni.

Ekki persónulegar deilur

Í færsl­unni und­ir­strikar Dóra að málið snú­ist ekki um „ósætti né per­sónu­legar deilur“ heldur „vernd höf­unda­réttar, ábyrgð rík­is­stofn­ana og fram­leið­enda rík­is­styrktra verk­efna.“

„Þetta snýst um virð­ingu fyrir lista­mönnum, hug­verkum og lögum. Þetta snýst um rétt­læti og traust til stofn­ana sem eiga að gegna ábyrgð­ar­hlut­verki gagn­vart þjóð­inni. Þegar þögnin verndar valdið, er vand­inn kerf­is­lægur,“ skrifar hún.

Dóra vísar jafn­framt á grein eftir sjálfa sig, „Réttlæti fylgir fjár­magni,“ um gjaf­sókn, höf­und­ar­rétt og kerf­is­lægt mis­rétti, auk grein­ingar sem hún segir byggða á dag­settum vinnu­skjölum og náms­efni úr rit­list­ar­námi sínu við Háskóla Íslands og nám­skeiðum hjá The Second City. Samkvæmt færsl­unni er hlekkur á efnið í fyrsta kommenti hjá henni.

RÚV og við­kom­andi fram­leið­endur hafa ekki brugð­ist við færslu Dóru. Fréttin byggir á umræddri Facebook-færslu leikkon­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu