Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Skömm íslenskra stjórnvalda, fyrr og nú, er mikil“

Jódís Skúla­dóttir húð­skammar rík­is­stjórn­ina vegna nýju sam­göngu­á­ætl­un­ina.

„Skömm íslenskra stjórnvalda, fyrr og nú, er mikil“
Jódís Skúla­dóttir Jódís stendur með Seyð­firð­ingum Mynd: Alþingi

Jódís Skúla­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Vinstri grænna, fer hörðum orðum um bæði núver­andi og fyrri rík­is­stjórnir í færslu á Facebook þar sem hún segir að stjórn­völd hafi ítrekað brugð­ist Aust­ur­landi, sér­stak­lega Seyð­is­firði en í fyrra­dag kom í ljós að enn einu sinni stendur til að fresta Fjarð­ar­heið­ar­göngum.

„Það skiptir engu máli hver stjórnar!“ skrifar hún og gagn­rýnir síð­ustu rík­is­stjórn fyrir að „klára ekki Axarveg og byrja á Fjarð­ar­heið­ar­göngum“. Hún segir Framsókn, VG og Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa sýnt „full­komið áhuga­leysi“ gagn­vart þessum verk­efnum.

Hún sakar Framsókn um „sið­laust kjör­dæma­pot“ og vísar til þess að Vega­gerðin hafi „hundsað fjár­veit­inga­valdið ítrekað“. Þá segir hún for­ystu VG hafa „sama og engan áhuga á lands­byggð­inni“, meðal ann­ars vegna „aðgerð­ar­leysis þegar kom að rót­spylltum fisk­eld­is­á­formum í Seyð­is­firði“.

Um Sjálf­stæð­is­flokk­inn segir hún að flokk­ur­inn hafi staðið vörð um hags­muni stór­út­gerðar og lax­eld­is­fyr­ir­tækja: „hug­myndir þeirra um lands­byggð­ina virð­ist vera að allt utan suð­ur­landsund­ir­lend­is­ins geti bara verið ver­búð far­and­verka­fólks.“

Jódís gagn­rýnir einnig harð­lega núver­andi rík­is­stjórn, Viðreisn, Sam­fylk­ingu og Flokk fólks­ins, og segir hana ekki ráð­ast í nauð­syn­legar fram­kvæmdir: „Hún er að lengja í heng­ing­aról íbúa og fresta því að starta þeim vélum sem eru til­búnar að byrja.“

Hún beinir sér­stak­lega orðum sínum til Eyjólfs Ármanns­sonar, inn­við­a­ráð­herra Við­reisnar: „Hvar eru nú fingras­mellir þínir og félags­legt rétt­læti óháð búsetu kæri Eyjólfur?“

Jódís biður les­endur að setja sig í spor Seyð­firð­inga, sem hún segir hafa orðið fyrir „stórum áföllum, ham­förum, ofbeldi af hálfu stjórn­sýsl­unnar og útgerð­ar­innar og aðför að íbúa­lýð­ræði.“

Hún minnir á að Seyð­firð­ingar hafi enga aðra leið úr firð­inum í ham­förum: „Það mun­aði svo litlu að fólk lok­að­ist inni þegar aur­skrið­urnar féllu.“

Að lokum segir hún: „Skömm íslenskra stjórn­valda, fyrr og nú, er mikil og þessi sam­göngu­á­ætlun kór­ónar skeyt­ing­ar­leysi þeirra gagn­vart íbúum Seyð­is­fjarðar og Aust­ur­landi í heild sinni.“

Jódís tekur fram að hún hafi sjálf barist fyrir hags­munum Seyð­firð­inga á sveit­ar­stjórn­ar­stigi og sem þing­maður: „Ég firri mig ekki ábyrgð á veg­ferð fyrri stjórnar … en það verður aldrei um mig sagt að aðförin að Seyð­is­firði úr öllum áttum … hafi verið í mínu nafni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum