Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Atli Þór gefur út aðra plötu í skugga heilaæxlis

Rétt náði mark­miði sínu og gefur út lag með Júlí Heiðari

Atli Þór gefur út aðra plötu í skugga heilaæxlis
Atli Þór og fjöl­skylda Atla Þór tókst að gefa út tvær plötur á einu ári Mynd: Aðsend

Eins og fram kom í grein sem birt var þann 1. febr­úar á nýliðnu ári ákvað Atli Þór, þriggja barna faðir í Graf­ar­vog­inum að gefa út tvær plötur í kjöl­farið af grein­ingu sinni á óskurð­tæku heila­æxli og floga­veiki sem hann fékk í kjöl­farið á aðgerð. Við heyrðum í Atla Þór þann 9.júlí til þess að taka púls­inn á heils­unni og þessu risa verk­efni sem hann ætl­aði sér árið 2025, að gefa út tvær plötur og þá upp­lýsti hann að nafnið á fyrri plöt­unni yrði Heila­kvel (með k) og var hún gefin út þann 24. ágúst.

Nú í byrjun árs 2026 liggur bein­ast við að spyrja, hvernig er heilsan og náð­ist mark­miðið að gefa út tvær plötur á einu ári?

„Heilsan er þokka­leg miðað við aðstæður og er alltaf á leið­inni upp, smátt og smátt. Það eru ákveðnir hlutir sem ég á erf­ið­ara með að sætta mig vita en aðra en það „tekur stundum mán­uði, stundum mörg ár”, segir Atli Þór og vitnar þar í texta úr lag­inu Söku­dólgur af fyrri plötu sinni, Heila­kvel. Hann heldur áfram:

„Er búinn að fá flog í alls­konar aðstæðum og er því miður að fá þau svona þrjú í mán­uði en það bjargar miklu að fá þessa fyr­ir­boða. Vitandi af aðdá­and­anum í höfð­inu er líka alltaf smá ógn­andi en þeim hug­myndum fækkar.“

Hvað varðar mark­miðið segir Atli Þór það hafa tek­ist þar sem seinni platan hafi komið út annan í jólum.

„Já mark­miðið slapp sem betur fer. Seinni platan kom út þann 26.des­em­ber og er ég gríð­ar­lega sáttur með útkom­una á báðum plöt­unum. Samtals gaf ég út 13 ný lög árið 2025 og eitt stakt lag sem samið var 2006 þannig að í heild­ina gaf ég út 14 lög sem er sami fjöldi og hjá Laufey held ég en því miður eru mín lög á íslensku og þess vegna náði ég ekki sama flugi og hún,“ segir Atli Þór og hlær.

Hvernig voru við­brögðin við fyrri plöt­unni, Heila­kvel?

„Við­brögðin voru í raun framar vonum. Ég fór í nokkur útvarps­við­töl og nokkur lög röt­uðu inn á ein­hverja Spoti­fylista. Það sem ég fæ helst að heyra er að text­arnir séu ein­lægir og að fólk tengi mikið við þá í flestum lögum. Þegar fólk veit bak­sög­una þá rista text­arnir aðeins dýpra. Ég hef einnig fengið skila­boð að utan um að text­arnir séu flottir og að þetta verk­efni hafi veitt við­kom­andi inn­blástur í að gera eitt­hvað sem var alltaf á döf­inni hjá þeim.“

Atli Þór hélt útgáfu­tón­leika fyrir fullu húsi og salan á plöt­unni og varn­ingi gekk mjög vel.

„Sem heild þá er þetta áhuga­verð frá­sögn frá upp­hafi til enda að mati margra. Ég fékk Raven til vera heila­æxlið mitt í lag­inu Aðdáandi og KK setti munn­hörpu­hljóm á tvö lög. Ég var svo pepp­aður fyrir þessu að ég ákvað að halda útgáfu­tón­leika á hverf­is­barnum og var þar fullt hús af gömlum og góðum vinum. Ein­hverjir komu senni­lega af vor­kunn og ein­hverjir af ást en kannski ein­hverjir til að heyra lögin flutt í beinni. Ég gaf einnig út plöt­una á Vínyl sem er ansi dýrt í litlu upp­lagi en það seld­ist sem betur fer upp. Einnig fór fram sala á bolum frá KH vinnu­fötum með text­anum “Þú stýrir ekki vind­inum en getur breytt segl­unum”. Seldi ég um það bil 40 boli og ágóð­inn rann til Krafts þannig að þetta gaf mér meira en ég hefði getað ímyndað mér í upp­hafi.“

Hvernig er seinni platan frá­brugðin þeirri fyrri og hvernig hafa við­brögðin verið við henni?

„Í stuttu máli get ég sagt að þetta sé sjálf­stætt fram­hald af Heila­kvel. Platan heitir Síðasta púslið og kápan á plöt­unni myndar síð­asta púslið á káp­unni á Heila­kvel. Lögin eru fimm tals­ins og eru aðeins hrárri en lögin á fyrri plöt­unni en við­brögðin við henni hafa líka verið góð. Hún er líka sett upp sem ákveðin tíma­lína þar sem í fyrstu tveimur lög­unum er ég lif­andi, í þriðja lag­inu er ég á mörk­unum og í síð­ustu tveimur lög­unum er ég far­inn. Sandra Dögg Vign­is­dóttir fær þann vafa­sama heiður að gegna hlut­verki floga í lag­inu Algrímur en Algrímur er í raun­inni orðið Algrím sem er íslenska orðið yfir algorithm en það ein­kennir einmitt flogin mín að þau eru mjög handa­hófs­kennd og óút­reikn­an­leg. Dóttir mín syngur á móti mér í lagi sem heitir Ef ég væri til þar sem ég er lát­inn að syngja til hennar en hún er í for­svari fyrir börnin mín og konu, og að lokum kemur eitt lag út með Júlí Heiðari þann 16. jan­úar. Ég er ekki búinn að ákveða hvort lagið verði stakt eða hluti af plöt­unni en það heitir 1 í einu og er í raun­inni smá hugg­un­ar­lag. Þannig að í þessu ferli bjó ég til tvö orð, Heila­kvel og Algrímur og er ég gríð­ar­lega stoltur af þessu öllu saman. Ég gekk meira að segja svo langt, fyrst ég var byrj­aður, að óska eftir til­nefn­ingu á plötu umslagi árs­ins. Já, þetta er sem­sagt í stuttu máli,“ segir Atli Þór hlæj­andi.

Er þá tón­list­ar­ferl­inum lokið þegar lagið með Júlí Heiðari kemur út?

„Enginn veit sína ævi fyrr en öll er þannig að ég hvorki játa né neita. Ég er kom­inn með nokkur önnur lög sem eru með svip­uðu sniði, per­sónu­legir textar sem tengj­ast þessu öllu á ein­hvern hátt en hvort þau verði kláruð og gefin út síðar kemur í ljós þegar líða fer á árið. Það er að minnsta kosti mjög skemmti­legt að búa til tón­list og hvað þá þegar það er í svona sögu­formi og að fá að vinna með færasta tón­list­ar­fólki Íslands er líka ótrú­lega skemmti­legt. Núna mun ég aðeins fylgja seinni plöt­unni eftir og lag­inu með Júlí Heiðari og ef vel gengur þá er ansi lík­legt að ein­hver lög verði gefin út árið 2026. En það sem mér finnst skemmti­leg­ast við þetta, fyrir utan að fá að knúsa Júlí Heiðar, er að geta gefið af mér, gefið öðrum inn­blástur, komið til­finn­ingum að ein­hverju leyti í orð og per­sónu­gera djöfl­ana.“

Atli Þór og Júlí HeiðarLagið með Júlí kemur út í jan­úar

Hvar er hægt að fylgj­ast með fyrir áhuga­sama?

Það væri þá helst á Instagram. Eins leið­in­legir og mér finnst þessir sam­fé­lags­miðlar þá finnst mér gaman að setja inn mynd­bönd með mínum lögum og reyni að vera virkur og halda smá lífi í þessu. Annars er eitt­hvað á Facebook líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu