Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísrael bannar starfsemi tugi alþjóðlegra hjálparsamtaka á Gaza

„Heil­brigð­is­kerfi Palest­ínu­manna er í rúst, mik­il­væg inn­viði eyði­lagðir og fólk á í erf­ið­leikum með að upp­fylla grunn­þarfir. Fólk þarf meiri þjón­ustu, ekki minni“

Ísrael bannar starfsemi tugi alþjóðlegra hjálparsamtaka á Gaza
Börn á Gaza Ástandið á Gaza er hreint út sagt skelfi­legt Mynd: OMAR AL-QATTAA / AFP

Ísrael sætir vax­andi gagn­rýni á alþjóða­vísu eftir að bann við starf­semi tuga alþjóð­legra hjálp­ar­sam­taka, sem veita lífs­nauð­syn­lega aðstoð Palest­ínu­mönnum á hinu stríðs­hrjáða Gaza-svæði, hefur tekið gildi.

Í gær for­dæmdu 17 mann­rétt­inda- og hags­muna­sam­tök í Ísrael bannið og sögðu það „grafa undan grund­vall­ar­reglum mann­úð­ar­að­stoðar, stofna starfs­fólki og sam­fé­lögum í hættu og draga úr skil­virkni hjálp­ar­starfs“.

„Ísrael, sem her­náms­ríki, ber skylda til að tryggja palest­ínskum borg­urum nægj­an­legar birgðir. Ekki aðeins bregst ríkið þeirri skyldu, heldur kemur það jafn­framt í veg fyrir að aðrir fylli í skarðið,“ sögðu sam­tökin.

Ísraelsk stjórn­völd hafa aft­ur­kallað starfs­leyfi 37 hjálp­ar­sam­taka, þar á meðal Lækna án landamæra (MSF) og norska Flótta­manna­ráðs­ins, vegna þess að þau upp­fylli ekki nýjar reglur stjórn­valda.

Nýju regl­urnar kveða á um að alþjóð­leg frjáls félaga­sam­tök sem starfa á Gaza og hernumda Vest­ur­bakk­anum verði að veita ítar­legar upp­lýs­ingar um starfs­fólk sitt, fjár­mögnun og starf­semi.

Ísrael hefur varið aðgerð­ina með því að saka alþjóð­leg sam­tök sem starfa á Gaza um tengsl við Hamas og palest­ínsku íslamska jihad-hreyf­ing­una, án þess að leggja fram sann­anir.

Sér­fræð­ingar segja hins vegar að kröf­urnar brjóti í bága við grund­vall­ar­reglur mann­úð­ar­að­stoðar og séu hluti af langvar­andi her­ferð ísra­el­skra stjórn­valda til að rægja og að lokum tor­velda starf hjálp­ar­sam­taka sem aðstoða Palest­ínu­menn.

„Nýja skrán­ing­ar­kerfið brýtur gegn kjarna mann­úð­ar­reglna um sjálf­stæði og hlut­leysi,“ sögðu ísra­elsku sam­tökin, þar á meðal B’Tselem og Læknar fyrir mann­rétt­indi í Ísrael, í yfir­lýs­ingu sinni á fimmtu­dag.

„Að skil­yrða aðstoð við póli­tíska afstöðu, refsa fyrir stuðn­ing við laga­lega ábyrgð og krefj­ast afhend­ingar við­kvæmra per­sónu­upp­lýs­inga um palest­ínskt starfs­fólk og fjöl­skyldur þeirra felur allt í sér brot á umönn­un­ar­skyldu og setur starfs­fólk í hættu vegna eft­ir­lits og skaða.“

„Mynstur ólögmætra takmarkana“

Bannið kemur á sama tíma og Ísrael hefur háð það sem mann­rétt­inda­sam­tök hafa lýst sem þjóð­ar­morðs­stríði gegn Palest­ínu­mönnum á Gaza-svæð­inu, þar sem settar hafa verið miklar hömlur á afhend­ingu matar, lyfja og ann­arrar mann­úð­ar­að­stoðar.

Ofbeldi Ísraels hefur jafn­framt auk­ist veru­lega á hernumda Vest­ur­bakk­anum, þar sem her­inn hefur þvingað tug­þús­undir Palest­ínu­manna á flótta frá heim­ilum sínum, aðgerðir sem Human Rights Watch hefur lýst sem stríðs­glæpum og glæpum gegn mann­kyni.

Í ljósi þessa sagði Volker Türk, mann­rétt­inda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, fyrr í vik­unni að bann Ísraels við starf­semi hjálp­ar­sam­taka væri „nýjasta dæmið í mynstri ólög­mætra tak­mark­ana á mann­úð­ar­að­gangi“ á hernumdu palest­ínsku land­svæð­unum.

Læknar án landamæra sögðu í færslu á sam­fé­lags­miðlum að sam­tökin biðu enn, frá og með mið­viku­degi, eftir end­ur­nýjun skrán­ingar sinnar til að starfa á Gaza og Vest­ur­bakk­anum sam­kvæmt nýju ísra­elsku regl­unum.

„Heil­brigð­is­kerfi Palest­ínu­manna er í rúst, mik­il­væg inn­viði eyði­lagðir og fólk á í erf­ið­leikum með að upp­fylla grunn­þarfir. Fólk þarf meiri þjón­ustu, ekki minni,“ sagði MSF.

„Ef MSF og önnur alþjóð­leg hjálp­ar­sam­tök missa aðgang munu hund­ruð þús­unda Palest­ínu­manna verða úti­lok­aðir frá lífs­nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Fyrr­ver­andi mann­úð­ar­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, Martin Griffiths, sem situr í stjórn norska Flótta­manna­ráðs­ins, sagði í sam­tali við Al Jazeera að hann væri ekki bjart­sýnn á fram­haldið.

„Raun­veru­leik­inn er sá að þessi sam­tök eru ómissandi fyrir afhend­ingu hjálpar, sér­stak­lega á Gaza-svæð­inu,“ sagði Griffiths. „Þau eru síð­asta hlekk­ur­inn, eins og það er kallað í mann­úð­ar­starfi, þeir sem raun­veru­lega koma hjálp­inni til fólks­ins sem á henni þarf að halda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta