Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Vill skipta út allri borgarstjórn Reykjavíkur

„Það er komin mikil vald­þreyta í Ráðhúsið“

Vill skipta út allri borgarstjórn Reykjavíkur
Egill Helgason Er einn þekkt­asti stjórn­mála­skýr­andi lands­ins. Mynd: RÚV

Fjöl­miðla­mað­ur­inn og stjórn­mála­skýr­and­inn Egill Helgason er orð­inn þreyttur á núver­andi borg­ar­full­trúum ef marka má nýjan pistil sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum. Þar telur hann að það sé lít­ill mun­ur­inn á flokk­unum en borgin sé þjökuð af skrifræði.

„Ég hef ekki farið dult með þá skoðun að þurfi að skipta út í borg­ar­stjórn­inni í Reykja­vík og fá inn nýtt fólk,“ skrifar Egill um málið en tekur fram að honum sé eig­in­lega sama hvaðan fólkið komi því flokk­arnir séu sam­mála um flesta hluti.

„Þetta teng­ist líka því að langstærstur hluti af fé borg­ar­stjórn­ar­innar fer í fyr­ir­fram ákveðin og að miklu leyti lög­bundin verk­efni,“ segir fjöl­miðla­mað­ur­inn og það sé fjarska lít­ill sjóður sem borg­ar­full­trúar hafi til að ráð­stafa að vild.

„En það er komin mikil vald­þreyta í Ráðhúsið, sama fólk situr þar ár út og ár inn í sama þras­inu,“ heldur hann áfram. „Borgin virð­ist býsna þjökuð af vax­andi skrifræði - það er held ég nauð­syn að ein­falda kerfið. Að öllu óbreyttu ótt­ast ég að borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor verði mjög harðar en að umræðan fyrir kosn­ing­arnar verði ekki að sama skapi frjó. Að því er lýtur að mínum áhuga­málum finnst mér nauð­syn­legt að fari fram ein­hvers konar upp­gjör gagn­vart skelfi­legri öfug­þróun í skipu­lags­málum og bygg­inga­list. Það er reyndar langt í frá bara bundið við Reykja­vík - dæmin sjáum við víðar um höf­uð­borg­ar­svæðið.“

Þá hvetur hann borgar- og bæj­ar­full­trúa til að lesa nýj­ustu bók Andra Snæs Magn­ús­sonar en hún nefn­ist Jöt­un­steinn.

„Þess utan eiga borg, bæir og ríki hæg­lega að geta komið sér saman um aðgerðir í hús­næð­is­málum - sér­stak­lega fyrir ungt fólk og leigj­endur. Og það þarf að end­ur­skoða álagn­ingu fast­eigna­gjalda - þar verður ríkið líka að koma að. Gengur ekki að síhækk­andi fast­eigna­gjöld séu svo mik­il­vægur tekju­stofn,“ skrifar Egill að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Pólitík

Pólitík

Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

„Gætum við vinsamlegast fengið betri þingmenn takk?“
  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

  • Pólitík

    Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“