Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Lygin er ekki bilun í kerfinu, hún er prófsteinn á hollustu“

Karen Kjart­ans­dóttir varar við nýsta­lín­isma og fasískri hugsun.

„Lygin er ekki bilun í kerfinu, hún er prófsteinn á hollustu“
Frá vett­vangi morðs­ins Renee Nicole Good var skotin til bana af full­trúa ICE Mynd: STEPHEN MATUREN / GETTY IMAGES VIA AFP

Karen Kjart­ans­dóttir almanna­teng­ill og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­kona varar við því sem hún kallar nýsta­líníska og fasíska hugsun í póli­tískri umræðu sam­tím­ans. Í færslu á sam­fé­lags­miðlum segir hún að fas­ismi snú­ist ekki um hefð­bundna hægri stefnu um lög og reglu, heldur um afnám laga í nafni valds­ins sjálfs.

„Fasismi er ekki hægri stefna um lög og reglu. Hann er afnám laga í nafni hug­myndar for­ingj­ans og rík­is­valds­ins. Og þeir sem fagna því, sama hvað þeir kalla sig, eru ekki að verja sam­fé­lagið. Þeir eru að verja vald sem hefur þegar ákveðið að stað­reyndir skipti ekki lengur máli,“ skrifar Karen.

Hún segir að í stalínískri og fasískri hugsun skipti ekki lengur máli hvað ger­ist í raun, heldur hver hafi vald til að skil­greina atburð­ina. Gögn, vitn­is­burður og mynd­skeið verði auka­at­riði nema þau styðji opin­bera frá­sögn.

„Í stalínískri og fasískri hugsun skiptir ekki máli hvað gerð­ist í raun. Það sem skiptir máli er hver hefur vald til að skil­greina atburð­inn. Mynd­skeið, vitni og gögn eru ekki afsönnun heldur auka­at­riði, gild aðeins ef þau styðja frá­sögn­ina,“ segir hún og er þá að tala um það þegar banda­rísk kona, Renee Nicole Good, var skotin til bana af full­trúa ICE í Minn­ea­polis í gær en atvikið náð­ist á mynd­band.

Karen tekur dæmi þar sem rík­is­valdið full­yrði að kona hafi ekið yfir liðs­menn ICE, þrátt fyrir að mynd­skeið sýni annað.

„Mynd­skeið sýnir að það gerð­ist ekki. Nið­ur­staðan er samt ekki að rík­is­valdið hafi rangt fyrir sér, heldur að mynd­skeiðið skipti ekki máli. Stað­reyndir lýsa ekki lengur veru­leik­anum. Veru­leik­inn er skil­greindur ofan frá,“ skrifar hún.

Að hennar mati er þetta ekki lygi í hefð­bundnum skiln­ingi heldur hluti af vald­hyggju þar sem holl­usta við frá­sögn­ina er mæli­kvarði á hvar borg­ar­inn standi.

„Lygin er ekki bilun í kerf­inu – hún er próf­steinn á holl­ustu. Sá sem sam­þykkir frá­sögn­ina þrátt fyrir eigin augu sýnir að hann sé „réttu megin“. Sá sem trúir því sem hann sér er orð­inn and­ófs­maður,“ segir Karen.

Hún tengir þessa þróun við ummæli JD Vance, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, um að Donald Trump sé til­bú­inn að ganga „eins langt og nauð­syn­legt er“ gagn­vart Græn­landi.

„Vance rök­styður örygg­is­hlut­verk Græn­lands í loft­vörnum, en sleppir algjör­lega að rök­styðja hvers vegna það leiði til þess að Banda­ríkin verði að fara með yfir­ráð. Það bil er ekki fyllt með gögnum, heldur með valdi,“ skrifar hún og bætir við að Danmörk sé sett í stöðu sak­born­ings með ásök­unum um að hafa „ekki staðið sig“ og vera „föst í for­tíð­inni“.

Að lokum segir Karen að í slíkri hugsun hverfi hefð­bundin hægri–vinstri skipt­ing og í stað­inn taki við vald­hyggja þar sem orð leið­tog­ans séu lög.

„Þarna hverfur hægri–vinstri aðgrein­ingin. Það sem tekur við er fasísk hugsun: leið­tog­inn hefur rétt fyrir sér af því hann er leið­tog­inn. Ofbeldið er rétt­mætt af því það þjónar „góðum til­gangi“. Og sá sem spyr er ekki gagn­rýn­inn borg­ari, heldur ógn,“ skrifar hún.

„Fasismi er afnám laga í nafni orða for­ingja rík­is­ins. Nýsta­línist­arnir þurfa ekki lengur að færa rök. Reiði og ásökun duga. Þau koma í stað sönn­unar, umræðu og ábyrgðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina