Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Vandinn er ekki ofbeldið“

Karen Kjart­ans­dóttir segir athuga­semdir við pistil sem hún skrif­aði um vald­hyggju og blinda for­ingja­dýrkun í póli­tískri umræðu hafi sannað mál sitt.

„Vandinn er ekki ofbeldið“
ICE-full­trúi Karen svarar athuga­semda­kerf­inu Mynd: CHARLY TRIBALLEAU / AFP

Karen Kjart­ans­dóttir, almanna­teng­ill og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­kona, gagn­rýndi í gær harð­lega það sem hún kallar „nýsta­lín­isma“ í póli­tískri umræðu í færslu sem hún birti á Facebook og Mannlíf fjall­aði um. Þar lýsti hún hug­mynda­fræði sem að hennar mati ein­kenn­ist af for­ingja­dýrkun, vald­hyggju og því að stað­reyndir víki fyrir holl­ustu við vald og leið­toga.

Í morgun skrif­aði Karen aðra færslu þar sem hún segir frá fyrri pistli sínum um þetta fyr­ir­bæri og að fjöl­mið­ill (Mannlíf) hafi síðar tekið pistil­inn upp og birt hann á vef sínum og á Facebook. Í kjöl­farið hafi umræðan tekið nákvæm­lega þá stefnu sem pistill­inn fjall­aði um.

„Og þá gerð­ist nákvæm­lega það sem pistill­inn fjall­aði um.
Prótótýp­urnar mættu,“ skrifar Karen.

Að hennar sögn sner­ist umræðan ekki um mynd­skeið, vitn­is­burði eða stað­reyndir heldur um að leið­rétta hana sjálfa. Hún segir að gagn­rýnendur hafi ekki efast um frá­sögn vald­hafa heldur ein­fald­lega aðlagað skynjun sína að nýj­ustu útgáfu frá­sagn­ar­innar.

„Ekki til að ræða mynd­skeið, vitni eða stað­reyndir, heldur til að leið­rétta mig. Ég væri með rang­færslur í garð hins mikla leið­toga. Hann hafi aldrei sagt að konan hafi ekið yfir ICE-liða, heldur bara reynt það. Enginn virt­ist hafa horft á mynd­böndin. Enginn virt­ist hafa lesið orð leið­tog­ans. Enginn spurði sig hvort full­yrð­ing­arnar stæð­ust. Skynj­unin var ein­fald­lega upp­færð í raun­tíma, í takt við nýj­ustu útgáfu frá­sagn­ar­innar.“

Í færsl­unni vitnar Karen orð­rétt í yfir­lýs­ingu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta vegna atviks­ins, sem hún segir að stand­ist ekki mynd­skeið sem hafi farið í dreif­ingu.

„The woman dri­v­ing the car was very dis­orderly, obstructing and res­ist­ing, who then violently, willfully, and viciously ran over the ICE Officer, who seems to have shot her in self defense,“ segir í yfir­lýs­ingu Trumps, sem Karen birtir orð­rétta.

Hún bendir á að for­set­inn segi ekki að konan hafi reynt að aka á lög­reglu­mann heldur full­yrði að hún hafi ekið yfir hann, þvert á það sem sjá­ist á upp­tökum.

„Mynd­skeiðið sýnir annað. Það vita allir sem hafa horft á það. En það skiptir ekki máli í þessu kerfi,“ skrifar hún og segir að í þeirri hugsun sem hún lýsir sé það dyggð að hafna eigin skynjun til að sýna holl­ustu.

Karen segir að í slíkum kerfum fær­ist umræðan frá sjálfu ofbeld­inu yfir í að ráð­ast á gagn­rýn­ina sjálfa.

„Umræðan fær­ist frá morð­inu yfir í mein­tan skaða gagn­rýn­innar. Vandinn er ekki ofbeldið, heldur þeir sem neita að sam­þykkja frá­sögn­ina.“

Hún gagn­rýnir jafn­framt notkun á vafasömum „heim­ildum“ í umræð­unni og segir að þar sé ekki um upp­lýs­inga­leit að ræða heldur trú­ar­iðkun.

„Þetta er ekki upp­lýs­inga­leit. Þetta er trú­ar­iðkun. En á trú sem býr ekki yfir neinni visku. Hún leit­ast ekki við að skilja heim­inn, aðeins við að verja fyrir fram ákveðna frá­sögn.“

Að lokum varar Karen við þróun sem hún segir leiða til þess að lög og stað­reyndir víki fyrir hreinu valdi.

„Fasismi er ekki hægri­stefna um lög og reglu. Hann er kerfi þar sem lögin eru leyst upp í valdi. Og þegar fólk lærir að leið­rétta eigin skynjun sam­stundis eftir því hvað for­ing­inn segir, þá er ekki lengur verið að verja sam­fé­lagið. Þá er verið að verja vald sem hefur þegar ákveðið að stað­reyndir skipti ekki lengur máli.“

„Og það var einmitt það sem pistill­inn fjall­aði um,“ segir Karen að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ