Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sakar Ísrael um áform um nauðungarflutning Palestínumanna til Sómalílands

„Ísrael hefur lengi haft mark­mið og áætl­anir um að skipta ríkjum upp, kannski í 20 ár, og vill end­ur­móta kort Mið­aust­ur­landa og hafa stjórn á ríkjum þar.“

Ahmed Moalim Fiqi
Ahmed Moalim Fiqi Sómalar eru ugg­andi yfir áformum Ísraela Mynd: AMISOM Public Information/Wikipedia

Varn­ar­mála­ráð­herra Sómalíu, Ahmed Moalim Fiqime, hefur sakað Ísrael um að hafa í hyggju að flytja Palest­ínu­menn með valdi til aðskiln­að­ar­svæð­is­ins Sóma­lílands og for­dæmdi hann meint áformin sem „alvar­legt brot“ á alþjóða­lögum.

Í við­tali við Al Jazeera á gær sagði Fiqi að Sómalía hefði „stað­festar upp­lýs­ingar um að Ísrael hafi áform um að flytja Palest­ínu­menn og senda þá til Sóma­lílands“.

Ummæli hans koma í kjöl­far langvar­andi áhyggja sómal­skra stjórn­valda af því að Ísrael hygð­ist flytja Palest­ínu­menn nauð­ung­ar­flutn­ingum frá Gaza til Sóma­lílands. Slíkum full­yrð­ingum hafa bæði yfir­völd í Sóma­lílandi og Ísrael hafnað.

Sóma­líland lýsti yfir sjálf­stæði frá Sómalíu árið 1991 en hefur aldrei hlotið við­ur­kenn­ingu Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í des­em­ber varð Ísrael fyrsta ríkið til að við­ur­kenna Sóma­líland sem sjálf­stætt ríki.

Utan­rík­is­ráð­herra Ísraels, Gideon Saar, sagði í síð­ustu viku í við­tali við sjón­varps­stöð­ina Channel 14 að nauð­ung­ar­flutn­ingur Palest­ínu­manna til Sóma­lílands „hefði ekki verið hluti af sam­komu­lagi okkar“.

„Ég tel að við eigum fjöl­mörg mál sam­eig­in­leg á sviði stjórn­mála, öryggis, þró­unar og fleiri þátta sem við munum vinna áfram með Sóma­lílandi … og ég get sagt að þetta sé ekki hluti af sam­komu­lagi okkar,“ sagði Saar.

Hann greindi þó ekki nánar frá því hvað sam­komu­lagið fæli í sér og hvorki ísra­elsk né sóma­lí­lensk stjórn­völd hafa gefið frek­ari upp­lýs­ingar frá því við­ur­kenn­ingin var til­kynnt. Heim­ild­ar­maður í Sóma­lílandi, sem sagð­ist standa rík­is­stjórn­inni nærri og óskaði nafn­leyndar, sagði einnig að flutn­ingur Palest­ínu­manna hefði ekki verið hluti af neinni til­slökun eða skil­yrði af hálfu Sóma­lílands, án þess þó að fara nánar út í málið.

Forseti Sómalíu, Hassan Sheikh Mohamud, hefur áður sagt í við­tali við Al Jazeera að Sóma­líland hafi sam­þykkt þrjú skil­yrði Ísraels: nauð­ung­ar­flutn­ing Palest­ínu­manna, stofnun her­stöðvar við strönd Aden-flóa og að ganga í Abraham-sátt­málana til að normalísera sam­skipti við Ísrael.

Fiqi hvatti for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, Benjamin Net­anyahu, til að draga til baka diplómat­íska við­ur­kenn­ingu sína á „aðskiln­að­ar­svæð­inu“ og lýsti ákvörð­un­inni, sem tekin var seint á síð­asta ári, sem „beinni árás“ á full­veldi Sómalíu.

Hann hélt áfram gagn­rýni sinni og sak­aði Ísrael um að fylgja stefnu sem miði að því að sundra ríkjum á svæð­inu og sagði við­ur­kenn­ingu Sóma­lílands falla að stærra mynstri.

„Ísrael hefur lengi haft mark­mið og áætl­anir um að skipta ríkjum upp, kannski í 20 ár, og vill end­ur­móta kort Mið­aust­ur­landa og hafa stjórn á ríkjum þar. Þess vegna fundu þeir þennan aðskiln­að­ar­hóp í norð­vest­ur­hluta Sómalíu,“ sagði Fiqi við Al Jazeera.

Herstöð Ísraels við Aden-flóa

Varn­ar­mála­ráð­herr­ann sak­aði Ísrael einnig um að vilja koma á fót her­stöð við Bab al-Mandab-sundið, sem tengir Aden-flóa við Rauða­hafið, og sagði Ísrael „vilja stofna her­stöð til að grafa undan stöð­ug­leika á svæð­inu“.

Emb­ætt­is­maður í Sóma­lílandi sagði að slíkar við­ræður væru í gangi, sem gengur gegn fyrri afneit­unum utan­rík­is­ráðu­neytis Sóma­lílands. Deqa Qasim, emb­ætt­is­maður í utan­rík­is­ráðu­neyti Sóma­lílands, sagði við ísra­elsku sjón­varps­stöð­ina Channel 12 að her­stöð Ísraels væri „á borð­inu og til umræðu“, en að stofnun hennar færi eftir skil­málum sam­komu­lags.

Leið­togar Húta-hreyf­ing­ar­innar hafa sagt að þeir myndu líta á hvers kyns nær­veru Ísraels í Sóma­lílandi, beint á móti Aden-flóa, sem ógn og hugs­an­legt hern­að­ar­legt skot­mark.

Forseti Sóma­lílands, Abdira­hman Mohamed Abdullahi, sem gengur undir nafn­inu Cirro, reyndi að draga úr áhyggjum nágranna­ríkja og sagði að við­ur­kenn­ing Ísraels á Sóma­lílandi væri ekki beint gegn neinum, í ræðu þar sem hann fagn­aði stofnun stjórn­mála­sam­bands við Ísrael.

Þegar Gideon Saar heim­sótti höf­uð­borg­ina Hargeisa í síð­ustu viku sagði í til­kynn­ingu frá Sóma­lílandi að örygg­is­mál hefðu verið meðal umræðu­efna á fund­inum.

Heim­sóknin vakti strax for­dæm­ingu 22 ríkja og Samtaka íslamskra ríkja (OIC), sem í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu köll­uðu ferð Saar 6. jan­úar „aug­ljóst brot“ á full­veldi og land­helgi Sómalíu.

Ummæli Fiqi koma sam­hliða áfram­hald­andi alþjóð­legum mót­mælum vegna ákvörð­unar Net­anya­hus í des­em­ber um að við­ur­kenna Sóma­líland, aðskiln­að­ar­svæði Sómalíu sem nær yfir norð­vest­ur­hluta fyrrum bresks vernd­ar­svæðis.

Á laug­ar­dag héldu Samtök íslamskra ríkja, sem telja 57 aðild­ar­ríki, auka­fund í Sádi-Arabíu um við­ur­kenn­ingu Ísraels á Sóma­lílandi og sam­þykktu þar tvær álykt­anir, aðra þar sem ákvörðun Ísraels var for­dæmd og hina þar sem stuðn­ingur við Palest­ínu var ítrek­aður.

Utan­rík­is­ráð­herra Tyrk­lands, Hakan Fidan, sagði í við­tali við TRT Haber að Tyrkland, ásamt fleiri múslíma­ríkjum, hefði sam­hæft aðgerðir til að koma í veg fyrir að önnur ríki við­ur­kenndu Sóma­líland og gaf í skyn að fleiri ríki hefðu íhugað slíkt skref.

Í kjöl­far full­yrð­inga stjórn­valda í Sóma­lílandi um að fleiri ríki myndu fylgja for­dæmi Ísraels, og orðróms um að Indland kynni að gera slíkt hið sama, dró tals­maður ind­verska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins úr slíkum vænt­ingum.

„Indland á langvar­andi tengsl við Sómalíu. Við höfum áfram lagt áherslu á mik­il­vægi þess að virða full­veldi lands­ins og land­helgi,“ sagði tals­mað­ur­inn.

Á föstu­dag hvatti for­seti Sómalíu, Hassan Sheikh Mohamud, í ávarpi til þjóð­ar­innar leið­toga Sóma­lílands til að hefja við­ræður við Moga­d­ishu og end­ur­skoða sam­skipti sín við Ísrael.

Hann sagði að ef mark­miðið væri að skilja Sómalíu end­an­lega að, væri víð­tæk alþjóð­leg við­ur­kenn­ing ómögu­leg án sam­þykkis sómal­skra stjórn­valda og myndi skilja Sóma­líland eftir í diplómat­ískri óvissu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu