Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ragga nagli þakkar 19 ára sjálfri sér fyrir styrkinn

„Takk fyrir að svífast einskis í að ná mark­mið­unum að verða sterk og mössuð“

Ragga nagli þakkar 19 ára sjálfri sér fyrir styrkinn
Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir Ragn­hildur er algjör nagli Mynd: Aðsend

Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, sál­fræð­ingur og einka­þjálf­ari, sem flestir þekkja undir nafn­inu Ragga nagli, birti í dag per­sónu­lega Facebook-færslu þar sem hún beinir orðum sínum til 19 ára útgáfu af sjálfri sér. Í færsl­unni rifjar hún upp upp­hafið að ævi­langri ást á styrkt­ar­þjálfun og lík­am­legri seiglu, og þakkar sjálfri sér fyrir hug­rekkið að velja þá leið.

„Kæri 19 ára Nagli. Ég skrifa til þín úr fram­tíð­inni sem mið­aldra 46 ára á breyt­inga­skeiði. Þetta bréf er þakk­ar­bréf,“ skrifar Ragn­hildur í upp­hafi færsl­unnar.

Hún segir ungu útgáfu sína hafa lagt grunn­inn að lík­am­legum og and­legum styrk sem hún nýtur enn í dag. Hún þakkar sér­stak­lega fyrir að hafa orðið „ást­fangin af járn­ríf­ingum“ og fyrir að hafa haft kjark til að feta sig inn í rækt­ar­um­hverfi sem þá var að mestu karllægt.

„Takk fyrir að hafa hug­rekkið til að spíg­spora með hök­una upp og kass­ann fram inn í strákagerið í rækt­inni, og munda gal­vaníser­aðar stangir og lóð. Takk fyrir að finn­ast það kúl og töff að vera sterk,“ skrifar hún.

Í færsl­unni lýsir Ragn­hildur einnig hvernig hún mót­aði sjálfs­mynd sína með því að hafna hefð­bundnum feg­urð­ar­stöðlum og í stað­inn sækj­ast eftir styrk og vöðvum.

„Takk fyrir að finn­ast vöðvaðir vogskornir kvenskrokkar eft­ir­sókn­ar­vert útlit,“ segir hún og rifjar jafn­framt upp hvernig hún sökkti sér í fræðslu um þjálfun.

„Takk fyrir að kaupa ógrynni af vöðva­blöðum með helj­ar­mennum á for­síð­unni og lús­lesa spjald­anna á milli til að fræð­ast um prógramma­gerð, lyft­inga­tækni, bæti­efni og mik­il­vægi prótína – en ekki síður til að smyrja blóði á tenn­urnar í inn­blæstri fyrir næstu æfingu.“

Hún dregur enga dul á að leiðin hafi kraf­ist fórna og seiglu.

„Takk fyrir að svífast einskis í að ná mark­mið­unum að verða sterk og mössuð. Takk fyrir að vera drull þó þú rymjir eins og hryssa með hríðir í sett­unum,“ skrifar hún og bætir við að rækt­ar­ferð­irnar hafi verið negldar sem órjúf­an­leg heilsu­venja í lífi hennar.

Ragn­hildur segir árang­ur­inn enn skýran rúmum ald­ar­fjórð­ungi síðar.

„Þökk sé þér er ég ennþá sterk, með dúnd­ur­hraða og snerpu. Ennþá að lyfta þungt eins og jakuxi, spretta eins og gasella, hoppa á kassa, djöfl­ast í burpees, wall balls, ket­il­bjöllum og tapa gleð­inni á assault (ass­hole) hjól­inu.“

Hún lýkur færsl­unni á léttum og sjálf­hæðnum nótum:

„46 ára gæti ég sigrað þig í öllu lík­am­legu nema mögu­lega vodka­drykkju. Virð­ing­ar­fyllst, Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una