Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Listi Péturs

Þrátt fyrir að Heiða Björg Hilmis­dóttir borgar­stjóri og fylgis­fólk hennar hafi lagt mikla áherslu á að senda ekki lista á kjósendur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík um helgina, hefur stuðnings­hópur fyrir Pétur Marteinsson dregið skýrar línur.

Í lista sem stuðnings­fólk Péturs byggir á, en hann hafnar ábyrgð á sjálfur, er hann í fyrsta sæti. Í öðru sæti er Steinunn Gyðu- og Guðjóns­dóttir, fyrr­verandi talskona Stígamóta. Í þriðja sæti er Bjarnveig Birta Bjarna­dóttir, rekstrar­stjóri Tulipop úr Grafar­voginum. Í fjórða er félagi hennar úr ungliða­hreyfingunni, norsk­ættaði stærðfræði­kennarinn Stein Olav Romslo. Í því fimmta er þá Rúnar Logi Ingólfsson, verslunar­stjóri og menntaður arkitekt, og því sjötta er Valný Óttars­dóttir, iðju­þjálfi í Breið­holtinu.

Á slíkum lista er því lítið pláss fyrir fram­bjóðendur eins og Skúla Helgason borgar­fulltrúa, Magneu Marinós­dóttur, sérfræðing í alþjóða­öryggis­málum, Guðmund Inga Þóroddsson, formann félags fanga, og Dóru Björt Guðjóns­dóttur borgar­fulltrúa, sem tók það veðmál að yfirgefa Pírata eftir að hafa bakkað frá formanns­framboði þar.

Veðbankar Epicbet hafa spáð Heiðu Björg sigri, en það hefur nú snúist við þegar þetta er skrifað. Ekki er víst að stuðningur jafnaðar­félagsins Rósarinnar og gamla Þjóð­vakans nægi Heiðu Björg eftir að 2.800 manns nýskráðu sig í Samfylkinguna í smölun fyrir próf­kjörið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Slúður