Hlaðvarpið Tvær taktlausar hefur verið að fá meiri og meiri athygli en þáttastjórnendur eru þær Íris Kristín Smith, grunnskólakennari og grínisti, og Kristín Viðarsdóttir, kjarnastjóri á leikskóla.
Þátturinn þykir vera með þeim fyndnari sem eru í gangi í dag en í nýjasta þættinum ræða Kristín og Íris meðal annars um besta skyndibitann, skíðaferð til Akureyrar og mini-pils skvísur í Kaupmannahöfn.
Í þættinum greina þær frá sínum þremur uppáhalds skyndibitum. Kristín setur KFC í efsta sætið, Subway í annað og Nings í þriðja sætið. Hins vegar hjá Írisi eru pítsastaðir eins og Eldofninn og Eldsmiðjan og „allur sá pakki“ í efsta sæti, Subway var svo í öðru sæti og Hamborgarabúlla Tómasar er í því þriðja.
Þá eru þær sammála um að Subway fái óþarfa hatur og það hatur komi frá fólki með minnimáttarkennd.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir