Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einn af eigendum Íslands fordæmdur fyrir orð sín um innflytjendur

Millj­arða­mær­ing­ur­inn Jim Ratcliffe er kraf­inn um afsök­un­ar­beiðni vegna ummæla sem ala á inn­flytj­enda­hatri.

Einn af eigendum Íslands fordæmdur fyrir orð sín um innflytjendur
Jim Ratcliffe Ratcliffe á um 1400 til 1500 fer­kíló­metra af landi á Norð­aust­ur­landi Mynd: RUDY CAREZZEVOLI / GETTY IMAGES VIA AFP

Andy Burnham, borg­ar­stjóri Stór-Manchester-svæð­is­ins, hefur gagn­rýnt harð­lega ummæli Jim Ratcliffe, hlut­hafa í Manchester United, þar sem hann hélt því fram að Bretland hefði verið „numið af inn­flytj­endum“. Burnham segir ummælin ganga gegn grunn­gildum Manchester og lýsir þeim sem „óná­kvæmum, móðg­andi og egn­andi“.

Ratcliffe lét ummælin falla í við­tali við Sky News á mið­viku­dag. Þar sagði hann að Bretland gæti ekki rekið hag­kerfi með „níu millj­ónir manna á bótum og gríð­ar­legan fjölda inn­flytj­enda sem streymir inn“. Ratcliffe býr sjálfur í Mónakó, sem er skatt­frjálst ríki, og er stofn­andi INEOS. Samkvæmt Sunday Times er hann sjö­undi rík­asti maður Bret­lands, með um 17 millj­arða punda eignir. Þá á Ratcliffe um 1,4% af flat­ar­máli Íslands í gegnum gríð­ar­leg landa­kaup á Norð­aust­ur­landi.

Í yfir­lýs­ingu sinni sagði Burnham meðal ann­ars:

„Þessi ummæli ganga gegn öllu því sem Manchester hefur staðið fyrir í gegnum tíð­ina: borg þar sem fólk af öllum kyn­þáttum, trú­ar­brögðum, eða engum, hefur unnið saman í aldaraðir að upp­bygg­ingu borg­ar­innar og stofn­ana hennar, þar á meðal Manchester United. Að kalla eftir tak­mörk­unum á inn­flytj­enda­málum er eitt; að lýsa fólki sem kemur hingað sem fjand­sam­legu inn­rás­ar­liði er eitt­hvað allt annað. Þetta er óná­kvæmt, móðg­andi, egn­andi og ætti að draga til baka.“

Burnham minnti jafn­framt á að inn­flytj­endur væru ómissandi hluti af sam­fé­lag­inu, bæði í knatt­spyrnu og í opin­berri þjón­ustu.

„Knatt­spyrnu­menn sem hafa komið hvaðanæva að úr heim­inum til að spila í Stór-Manchester hafa auðgað líf borg­ar­svæð­is­ins, líkt og fjöldi fólks sem starfar í NHS og öðrum lyk­il­þjón­ustum. Við erum þekkt fyrir hlýjar mót­tökur og metum fram­lag þeirra,“ sagði hann.

Hann bætti við að gagn­rýni ætti fremur að bein­ast að öðrum hópi:

„Ef ein­hver gagn­rýni á við, ætti hún að bein­ast að þeim sem hafa lagt lítið af mörkum til lífs­ins hér og í stað­inn varið árum í að soga auð úr einni stolt­ustu stofnun okkar.“

Ratcliffe sagði í við­tal­inu við Sky News:

„Þú getur ekki haft hag­kerfi þar sem níu millj­ónir eru á bótum og gríð­ar­legur fjöldi inn­flytj­enda streymir inn. Bretland hefur verið numið. Þetta kostar of mikla pen­inga. Bretland hefur í raun verið numið af inn­flytj­endum, er það ekki? Íbúa­fjöld­inn var 58 millj­ónir árið 2020, nú er hann 70 millj­ónir.“

Opinber töl­fræði styður þó ekki þessa full­yrð­ingu. Íbúa­fjöldi Bret­lands var um 67,1 milljón árið 2020 og 69,3 millj­ónir árið 2024. Landið var síð­ast með um 58 millj­ónir íbúa árið 2000.

Dóms­mála­ráð­herra Bret­lands, Jake Richards, gagn­rýndi orða­lag Ratcliffe og sagði:

„Hann hefur rangt fyrir sér í stað­reyndum og það er dálítið hræsnara­legt að maður sem flutti til Mónakó til að spara sér um fjóra millj­arða punda í sköttum sé nú að haldar fyr­ir­lestur fyrir okkur um inn­flytj­enda­mál.“

For­sæt­is­ráð­herr­ann Keir Starmer tók í sama streng og skrif­aði á sam­fé­lags­miðlum:

„Móðgandi og rangt. Bretland er stolt, umburð­ar­lynt og fjöl­breytt land. Jim Ratcliffe ætti að biðj­ast afsök­unar.“

Samtökin Kick It Out, sem berj­ast gegn mis­munun í knatt­spyrnu, köll­uðu ummælin „sví­virði­leg“ og sögðu slíkt orða­lag „enga fram­tíð eiga í enskri knatt­spyrnu“.

Ratcliffe keypti minni­hluta í Manchester United seint á árinu 2023 og hefur INEOS síðan tekið yfir rekstur knatt­spyrnu­mála félags­ins. Ákvarð­anir hans hafa vakið deilur meðal stuðn­ings­manna, einkum vegna miða­verðs og fram­boðs. Fyrir leik Manchester United gegn Fulham fóru fram mót­mæli gegn eig­endum félags­ins, í fyrsta sinn einnig beint gegn Ratcliffe sjálfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife