Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Glowie og Guðlaugur selja græna íbúð á Gufunesi

Svans­vottuð með geggj­uðu sjáv­ar­út­sýni

Glowie og Guðlaugur selja græna íbúð á Gufunesi
Jöf­urs­bás Litríkt er það Mynd: fasteignir.visir.is

Söng­konan Sara Pét­urs­dóttir, betur þekkt sem Glowie, og maki hennar Guð­laugur Andri Eyþórs­son, klipp­ari og ljós­mynd­ari, hafa sett til sölu þriggja her­bergja íbúð sína í vist­vænu íbúða­hverfi í Gufunesi. Söluverð er 53.412.464 kr.

Um er að ræða 55,4 fer­metra íbúð á annarri hæð í Jöf­urs­bás 11E, íbúð 203, í húsi sem nefn­ist Sif. Húsið er hluti af byggð Þorpsins vist­fé­lags, þar sem reist hafa verið Svans­vott­aðar íbúðir með áherslu á hag­kvæmni, grænar lausnir og sjálf­bært umhverfi fyrir ungt fólk.

Íbúðin skipt­ist í for­stofu, tvö svefn­her­bergi, opið eld­hús og stofu, auk bað­her­bergis með tengi fyrir þvotta­vél og þurrkara. Úr stofu er útgengi á svalir sem snúa í suð­vestur og njóta góðrar birtu. Eldhúsið er í opnu rými með inn­rétt­ingu sem nær upp í loft og span­hellu­borði, en svefn­her­bergin eru bæði með fata­skápum og par­k­eti á gólfi.

Sérstaða eign­ar­innar felst meðal ann­ars í þeim kvöðum sem fylgja byggð­inni. Kaup­endur þurfa að vera á aldr­inum 18 til 40 ára og hámarks sölu­verð eign­ar­innar fylgir vísi­tölu innan hverf­is­ins, sem þýðir að ekki er heim­ilt að yfir­bjóða ásett verð. Þá eru gælu­dýr vel­komin í Jöf­urs­bás.

Byggðin í Jöf­urs­bási sam­anstendur af 137 íbúðum í fimm húsum, á þremur til fimm hæðum, sem raðað er um mið­lægt torg og garð­rými. Hönnun leggur áherslu á góða rým­isnýt­ingu, skjól­góð úti­svæði og algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Frá svæð­inu er útsýni yfir Geld­inga­nes og Viðey, auk þess sem göngu- og hjóla­stígar liggja með­fram strand­lengj­unni og tengja hverfið við Graf­ar­vog.

Íbúð­ar­húsin eru verk­smiðju­fram­leidd úr for­steyptum ein­ingum og byggð með það að mark­miði að tryggja gæði, end­ingu og vist­vænar lausnir. Í tengslum við byggð­ina eru einnig mat­jurta­garðar á landi Reykja­vík­ur­borgar sem íbúar geta nýtt til rækt­unar.

Deiliskipu­lag Gufuness byggir á verð­launa­til­lögu hol­lensku arki­tekta­stof­anna jvantspi­jker og Felixx, sem unnu alþjóð­lega hug­mynda­sam­keppni árið 2016. Þar er Gufunes lýst sem „ventli“ fyrir ungt fólk sem sæk­ist eftir borg­ar­brag, grósku og sam­fé­lags­legri nálgun frekar en hefð­bundnum úthverfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Fólk

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD