Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Andrew er sagður kenna tveimur fjölskyldumeðlimum um allt

„Hann er stað­fastur í þeirri trú að hann geti og muni hreinsa mann­orð sitt“

Andrew Mountbatten-Windsor
Andrew Mountbatten-Windsor Andrew er æfur út í bróður sinn og frænda Mynd: JUSTIN TALLIS / AFP

Andrew Mountbatten-Windsor hafnar alfarið þeim ásök­unum sem hafa verið bornar á hann og er sagður telja tvo með­limi bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar bera ábyrgð á þeirri stöðu sem hann er nú í. Samkvæmt heim­ildum er hann afar ósáttur við hvernig komið hefur verið fram við hann eftir að hann var sviptur titlum sínum og gert að yfir­gefa heim­ili sitt í Royal Lodge.

Vinur Andrews segir, Richard Eden, sér­fræð­ingi í kon­ungs­fjöl­skyld­unni, að hinn fyrr­ver­andi prins sé sann­færður um að hann hafi orðið fyrir rang­læti. „Hann er stað­fastur í þeirri trú að hann geti og muni hreinsa mann­orð sitt,“ er haft eftir heim­ild­ar­mann­inum.

Þetta kemur í kjöl­far þess að Andrew var hand­tek­inn í febr­úar og færður til yfir­heyrslu vegna gruns um mis­ferli í opin­beru starfi, en honum var síðar sleppt á meðan rann­sókn máls­ins heldur áfram.

Richard Eden skrifar í Daily Mail að þrátt fyrir að Karl III hafi haldið áfram að styðja bróður sinn fjár­hags­lega og boðið honum afnot af fimm svefn­her­bergja hús­inu Marsh Farm á Sandring­ham-eign­inni í Norfolk, upp­lifi Andrew það sem svik. Að hans mati beri kon­ung­ur­inn sjálfur ábyrgð á því sem hann kallar harð­neskju­lega og ósann­gjarna með­ferð.

Samkvæmt vini hans lætur Andrew reið­ina oft bitna á fleiri en kon­ung­inum einum og ræðst einnig á erf­ingja krún­unnar, Vil­hjálmi prins, í heift­ar­legum útrásum. Hann er sagður verja stórum hluta dags­ins í að krauma af gremju gagn­vart fjöl­skyldu sinni og loka sig af frá umheim­inum.

Mikil reiði Andrews teng­ist einkum því að hann missti heim­ili sitt í Royal Lodge, sem þrátt fyrir að vera til­tölu­lega hóf­legt miðað við aðrar kon­ung­legar hallir, með um 30 her­bergjum, var honum afar kært. Í sam­an­burði nýtur systir hans, Anna prinsessa, bæði Gatcombe Park í Gloucester-skíri og íbúðar í St. James’s Palace, á meðan bróðir hans Eðvarð prins býr á Bagshot Park, sem talið er hafa um 120 her­bergi.

Royal Lodge vakti einnig athygli áður þegar Andrew sýndi Ghislaine Maxwell og Jeffrey Epstein húsið í tengslum við grímu­ball sem haldið var árið 2006 í til­efni af 18 ára afmæli dóttur hans, Betu Dísar. Á þeim tíma hafði Epstein þegar verið í brennid­epli banda­rískra yfir­valda.

Andrew sagði síðar í við­tali við BBC Newsnight að hann hefði ekki haft vit­neskju um brot Epsteins þegar boðið var sent út. Hann kvaðst ekki hafa áttað sig á alvar­leika máls­ins fyrr en fjöl­miðlar tóku að fjalla um það.

Þótt ljóst hafi verið um hríð að Andrew myndi þurfa að flytja úr Royal Lodge, stóð honum til boða annað og veg­legra hús­næði áður en Marsh Farm var end­an­lega valið. Um tíma var talið lík­legt að hann flytti í Frogmore Cottage, fyrr­ver­andi heim­ili Harry prins og Meghan Markle, sem hafði verið end­ur­nýjað með aðstoð inn­an­húss­hönn­uð­ar­ins Vicky Charles. Einnig var rætt um að Adelaide Cottage, fyrrum heim­ili prins­ins og prinsessunnar af Wales, kæmi til greina.

Að lokum var þó ákveðið að Andrew myndi setj­ast að í Marsh Farm, húsi á jaðri Sandring­ham-eign­ar­innar, þar sem hann mun nú búa í mun hóg­vær­ari aðstæðum en áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana