Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sérfræðilæknir fær ekki vinnu á Íslandi

Dr. Daria Peremot þjónar til borðs á Land­náms­setr­inu.

Sérfræðilæknir fær ekki vinnu á Íslandi
Dr. Daria Peremot Daria neydd­ist til að flýja stríðið ásamt syni sínum og móður Mynd: Facebook

Daria Peremot, háls-, nef- og eyrna­læknir frá Kharkiv í Úkraínu, vinnur nú við að þjóna til borðs á Land­náms­setr­inu í Borg­ar­nesi þrátt fyrir að hafa lokið lækna­prófi á Íslandi. Þetta kemur fram hjá Skessu­horni í dag.

Daria flúði til Íslands í upp­hafi stríðs­ins í Úkraínu fyrir fjórum árum ásamt móður sinni og syni. Áður starf­aði hún sem yfir­læknir á háls-, nef- og eyrna­skurð­deild á sjúkra­húsi í heima­borg sinni. Hún segir fyrstu sprengj­urnar hafa fallið snemma morg­uns og að raun­veru­leik­inn hafi slegið hana þegar sam­starfs­konur hennar fóru að gráta.

„Ég var vakt­haf­andi yfir­læknir á háls,- nef- og eyrna­skurð­deild­inni á Hér­aðs­sjúkra­hús­inu í Kharkiv, þegar gerðar voru árásir á borg­ina, en það var strax í upp­hafi stríðs­ins. Það hafði verið uppi orðrómur um að það væri að koma stríð en það var eins og eng­inn tryði því fyrr en það gerð­ist. Fæstir voru búnir undir stríð, hvorki búnir að birgja sig upp af mat­vælum eða pakka í flótta­tösku. Um fimm leytið um nótt­ina heyrði ég eitt­hvað sem minnti á flug­elda og það tók mig smá­stund að skilja að þetta voru raun­veru­legar spreng­ingar. Síðan sá ég að konur sem voru með mér á vakt­inni voru farnar að gráta og þá hellt­ist raun­veru­leik­inn yfir,“ segir Daria í við­tali við Skessu­horn.

Missti föður sinn

„Þetta varð síð­asti vinnu­dag­ur­inn minn. Um morg­un­inn sótti ég barnið mitt sem var í pössun hjá for­eldrum mínum. Það var í síð­asta sinn sem ég sá pabba minn en mán­uði síðar var hann dáinn,“ segir Daria og lýsir síðan hvernig hún, móðir hennar og sonur neydd­ust sífellt til að færa sig um set, þar til þau urðu að fara til Póllands og þaðan til Íslands. „Ég er mjög þakk­lát Íslend­ingum fyrir að hafa tekið á móti okkur og fyrst um sinn var mjög nota­legt að vera á Bifröst.“

Hér hefur hún reynt að fá starf sem læknir en þurfti fyrst að sanna hæfni sína með því að taka loka­próf í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands. Hún lauk því prófi í fyrra og varð fyrsti úkra­ínski lækn­ir­inn til að útskrif­ast þaðan.

Þrátt fyrir það hefur hún ekki fengið starf. Hún þarf að starfa í sex mán­uði sem aðstoð­ar­læknir áður en hún fær full rétt­indi en segir að hún hafi sótt um fjölda starfa án árang­urs. Hún hefur aðeins einu sinni fengið boð í við­tal.

„Ég varð ofboðs­lega glöð að klára þetta próf en það virð­ist síðan ekki breyta neinu. Ég fæ engin svör, við­talið á Selfossi var eina við­talið sem ég hef farið í og það skil­aði ekki neinu, ekki heldur þegar aug­lýst var eftir læknum í sum­ar­afleys­ingar á Selfossi,“ segir Daria.

Hún býr nú á Bifröst eins og fram kom hér að ofan, þar sem leiga er ódýr, en segir erfitt að búa fjarri þjón­ustu og atvinnu. Samhliða vinnu sinni á veit­inga­stað er hún að læra íslensku og reynir að bæta tungu­mála­kunn­áttu sína. Segist hún afar þakk­lát Sirrí á Land­náms­setr­inu. „Ég er afskap­lega þakk­lát Sirrý í Land­náms­setr­inu því hún hefur hjálpað mér eins og hægt er og aðlagað vakt­irnar mínar að íslensku­nám­inu.“

Erfið staða

Daria segir stöðu sína valda henni miklum áhyggjum, enda sé erfitt fyrir útlend­inga að kom­ast að á vinnu­mark­aði. Hún ótt­ast að þurfa að snúa aftur til Úkraínu ef hún fær ekki starf.

„Auðvitað er ég orðin mjög hrædd og örvænt­inga­full. Ef ekki ræt­ist úr þá er öll mín bar­átta til einskis,“ segir hún og bætir við að lokum: „Það er farið að tala um að senda flótta­fólkið aftur til Úkraínu, ég get ekki sótt um dval­ar­leyfi hérna ef ég fæ ekki vinnu. Það er því allt undir og ég bið um tæki­færi til að fá að vinna fyrir okkur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil