Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Buffy-stjarna lést í svefni

„Fjöl­skyldan biður um næði á þessum tíma á meðan við syrgjum miss­inn“

Nickolas og meðleikkonur hans í Buffy
Nickolas og með­leikkonur hans í Buffy Buffy-þætt­irnir voru gríð­ar­lega vin­sælir á sínum tíma

Leik­ar­inn Nicholas Brendon, sem var hvað þekkt­astur fyrir hlut­verk sitt sem Xander Harris í sjón­varps­þátt­unum Buffy the Vampire Slayer á árunum 1997 til 2003, er lát­inn, 54 ára að aldri.

Brendon lést í svefni í gær, föstu­dag­inn 20. mars af nátt­úru­legum orsökum, að því er fjöl­skylda hans stað­festi í til­kynn­ingu á Facebook-síðu hans.

„Við erum miður okkar yfir því að til­kynna and­lát bróður okkar og sonar, Nicholas Brendon. Hann lést í svefni af nátt­úru­legum orsökum,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni. „Fjöl­skyldan biður um næði á þessum tíma á meðan við syrgjum miss­inn og minn­umst manns sem lifði með ákefð, ímynd­un­ar­afli og hjarta.“

Brendon fædd­ist í Los Angeles í Kali­forníu og öðl­að­ist frægð á tíunda ára­tugnum fyrir hlut­verk sitt í Buffy the Vampire Slayer, þar sem hann lék í nær öllum 144 þáttum þáttar­að­ar­innar.

Hann kom einnig fram í þátt­unum Criminal Minds þar sem hann lék Kevin Lynch á árunum 2007 til 2014.

Fjöl­skylda hans sagði jafn­framt að þótt flestir þekktu hann fyrir leik­list­ina hefði hann á síð­ustu árum fundið nýja ástríðu í mynd­list.

„Á síð­ustu árum fann Nicky mikla ástríðu í málun og list­sköpun. Hann elskaði að deila þeim hæfi­leika sínum með fjöl­skyldu, vinum og aðdá­endum. Hann var ástríðu­fullur, við­kvæmur og óþreyt­andi í sköpun sinni. Þeir sem þekktu hann best vissu að listin var ein hrein­asta speg­il­mynd hans,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Þar kom einnig fram að Brendon hefði átt við erf­ið­leika að stríða á lífs­leið­inni en hafi verið í með­ferð og bjart­sýnn á fram­tíð­ina þegar hann lést.

Áður en hann sló í gegn í Buffy the Vampire Slayer hafði hann einnig komið fram í vin­sælum þáttum á borð við Dave’s World og Married… With Children.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varði samning ráðuneytisins um ráðgjöf vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu