Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brann út og gjörbreyttist

Helga varar fólk við því að lenda á vegg. Nú fer hún með bæn á kvöldin til að þakka fyrir.

Brann út og gjörbreyttist
Helga Snjólfs­dóttir Segir frá því hvernig hún lenti í kulnun. Mynd: Youtube / Sölvi Tryggvason

Helga Snjólfs­dóttir verk­fræð­ingur og Yoga­kenn­ari seg­ist hafa þurft að gjör­bylta lífi sínu síð­ustu árin, eftir að hafa klesst harka­lega á vegg fyrir 10 árum síðan. Helga, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að hún hafi of lengi hunsað við­vör­un­ar­bjöll­urnar.

Hún seg­ist sjá marga á sömu leið og hún var á sínum tíma og hvetur fólk til að breyta um takt áður en það keyri sig í alvöru kulnun.

„2016 er árið sem ég fór í „burnout“ og lífið eins og ég þekkti það gjör­breytt­ist. Eftir á að hyggja er svo auð­velt að sjá í hvað stefndi. Ég var á mik­illi hrað­ferð í líf­inu, tveggja barna móðir í stjórn­un­ar­stöðu í atvinnu­líf­inu, að kenna yoga og í fjalla­hjóla­mennsku. Ég var alveg eins og konan í í Bak­garðs­hlaup­inu í ára­mótaskaup­inu. Allt annað en að vera kyrr og staldra við. Ég man þegar ég kem á fyrsta fund­inn með teym­inu mínu í vinn­unni eftir sum­ar­frí og til­kynni þeim að ég sé að fara að stofna yoga­skóla. Yoga­stöðin sem ég kenndi í þurfti að loka tíma­bundið og þá fannst mér eðli­leg­ast að stofna bara minn eigin yoga­skóla,“ segir hún.

Landlægur sjúkdómur

Þrátt fyrir trausta ásýnd­ina hafði hún efa­semdir.

„Einhver rödd innra með mér var að reyna að segja við mig að ég yrði að róa mig og þetta væri vond hug­mynd, en þörfin til að halda ímynd­inni var ennþá svo sterk. Ég var algjör­lega hætt að heyra í fugl­unum eða taka eftir umhverf­inu í kringum mig. Allt sner­ist um að halda bara hrað­anum áfram og búa til útkomur sem voru heim­inum þókn­andi. Ég sé því miður að þetta er land­lægur sjúk­dómur og mjög margir eru bara á hraðri leið að klessa á þennan vegg.“

Helga hefur séð sömu ein­kenni hjá mörgum.

„Eftir að ég sneri aftur í atvinnu­lífið hef ég horft upp á marga vera á nákvæm­lega sömu leið og ég var og ég geri mitt besta til að reyna að benda þeim á að taka tím­an­lega í taumana. Það eru óaft­ur­kræfar afleið­ingar af því að keyra sig alla leið í alvöru kulnun. Ég er 10 árum síðar ennþá með belti og axla­bönd og þarf stöðugt að vera með­vituð um hvað ég get tekið mikið að mér til þess að krassa ekki aftur. Þessi síð­ustu 10 ára hafa verið algjör upp­skurður á líf­inu og ég hef þurft að búa til nýjar und­ir­stöður á öllum sviðum. Það að finna sitt eigið virði og byrja að taka eftir litlu hlut­unum í líf­inu er ómet­an­legt.“

Fer með bæn á kvöldin og þakkar fyrir

Helga hefur stundað og kennt yoga í áraraðir og hefur á und­an­förnum árum unnið mikið með konum þegar kemur að heilsu í víðum skiln­ingi. Hún seg­ist sjálf gera tals­vert af hlutum nán­ast alla daga til þess að halda sér í jafn­vægi.

„Það er ákveð­inn bunki af hlutum sem ég geri á hverjum degi fyrir sjálfa mig til þess að næra tauga­kerfið og fara úr hausnum og inn í hjartað og lík­amann. Fastasti lið­ur­inn er lík­lega að fara með bæn á kvöldin áður en ég fer að sofa, finna fyrir lík­am­anum á mér og þakka fyrir dag­inn. Það er algjör kjöl­festa hjá mér og eitt­hvað sem ég hef gert með mis­mun­andi sniði alveg síðan 2019. Svo iðka ég yoga, fer í göngut­úra, lyfti lóðum og hug­leiði. Þetta eru allt hlutir sem hjálpa mér að finna jafn­vægi í lík­ama og huga. En ég held að stærsta gjöfin sem ég hef fengið fyrir að iðka yoga í mörg ár sé að finna núvit­und í dag­lega líf­inu. Auðvitað er ég mennsk og gleymi mér milljón sinnum, en ég næ mjög oft að stoppa mig og þakka fyrir augna­blikið. Hvort sem ég er að drekka gott kaffi, brjóta saman þvott­inn eða tala við börnin mín. Öll skiptin sem ég man að ég er hér og nú eru í raun gjöfin sem býr til ríkt líf.“

Meðvirknin til bjargar og vansa

Helga segir mikla með­virkni hafa ein­kennt íslenska sam­fé­lags­gerð í gegnum árin. Það sé á margan hátt mjög eðli­legt að eldri kyn­slóðir á Íslandi hafi þróað með sér ákveðin hegð­un­ar­mynstur út frá þeim aðstæðum sem við bjuggum við. En verk­efni margra full­orð­inna í dag sé að kynn­ast sjálfum sér upp á nýtt og afskil­yrða gömul for­rit.

„Hvað er vega­nestið okkar út í lífið? Kyn­slóðin sem ól okkur upp er meira og minna með­virk. Finndu fyrir mig ein­hverja fjöl­skyldu á Íslandi sem er ekki með­virk. Ég held að það sé nán­ast ómögu­legt. Það má færa rök fyrir því að þetta hafi á ákveð­inn hátt bjargað fólki. Þar sem við vorum saman í dag­stof­unni, stór fjöl­skylda og alls konar fólk. Margar kyn­slóðir í húsi og vinnu­fólk. Þá kom sér vel að vera ekki of mikið að rugga bátnum til að halda frið­inn. Ef maður setur sig í aðstæður fyrri kyn­slóða er þetta í raun mjög eðli­legt. En svo fær okkar kyn­slóð þetta vega­nesti út í lífið inn í sam­fé­lag sem er allt öðru­vísi. Það var rosa­lega lítið svig­rúm til að vera maður sjálfur og þeim mun mik­il­væg­ara að passa inn í rétta boxið. Og mikið þessi sam­an­burður, sem er líka eðli­legur í fámennu sam­fé­lagi. Fókusinn á það hvað er að ger­ast í næsta húsi, hvort sem að það var að ein­hver væri orð­inn ríkur eða ein­hver væri kom­inn í ræsið. En það var þeim mun minni fókus á það hvernig fólki leið, hverjir væru draumar þess, þrár og þarfir,” segir Helga.

Skoðaði hvað hún vildi sjálf

Hún segir mik­il­vægt að sýna því umburð­ar­lyndi hvaðan eldri kyn­slóðir eru að koma, en á sama tíma að þora að spyrja sjálfan sig hvað maður raun­veru­lega vill.

„Stóra verk­efnið mitt síð­ustu 10 árin eða svo hefur verið að skoða hvað ég vil í líf­inu, hver ég er og hvað mig langar. Maður týnir inn­sæ­inu ef maður er bara fastur á hamstra­hjól­inu í hrað­anum að gera það sem allir hinir eru að gera, bara af því að það hefur alltaf verið gert þannig. Svo þegar maður fer dýpra í þessa veg­ferð þarf maður að mæta óþægi­legum pörtum af sjálfum sér sem er ekk­ert endi­lega gaman að sjá,“ segir hún og lýsir nánar.

„Fyrst heldur maður að með­virkni sé bara að lúffa og kunna ekki að segja nei, en svo fær maður að sjá hina hlið­ina á pen­ingnum, sem er stjórn­semin. Það hefur verið djókað með það heima hjá mér að ég hafi verið stjórn­sjúk áður en ég fór að vinna dýpra í sjálfri mér. Það er gott að geta hlegið að því, en það var örugg­lega ekki gaman fyrir fólkið mitt að þurfa að þola þessa stjórn­semi. Svo áttar maður sig á því að öll þessi þörf til að stjórna fólki og aðstæðum er leið til að minnka ein­hvern innri óróa sem hefur búið innra með manni. Maður veit í raun­inni ekk­ert hver maður er lengur af því að maður hefur svo lengi verið inni í til­finn­inga­lífi ann­ars fólks og spá í hvað annað fólk eigi að gera öðru­vísi. Ég var alltaf að bjóða mann­inum mínum vatn, en kannski var ég bara þyrst!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu