Í tilkynningu frá IKEA kemur fram að búðin hafi ákveðið að innkalla kerti.
„Vegna mistaka í framleiðslu geta sum SMÖJTRÄD kerti verið með auka búta af kveik í kertavaxinu. Í þeim vörum sem um ræðir getur kviknað í auka kveikunum sem veldur þá stærri loga en eðlilegt er og við það skapast eld- og brunahætta,“ segir í tilkynningunni.
„Viðskiptavinir okkar sem eiga umrædd kerti ættu að taka þau úr umferð og koma með þau í IKEA verslunina til að fá nýja vöru eða endurgreiðslu. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu.
Að auki hvetur IKEA viðskiptavini til að láta orðið berast, sérstaklega ef vitað er til þess að vörurnar hafi verið gefnar, lánaðar eða seldar öðrum.“

































Athugasemdir