Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Maki Nicolu Bulley stígur fram eftir harmleikinn

„Þetta getur alveg gleypt mann“

Nicole og hundurinn
Nicole og hund­ur­inn Sófa­spæj­arar gerðu lífið leitt fyrir fjöl­skyldu Nicole á sínum tíma Mynd: Lögreglan í Lancaskíri

Maki Nicolu Bulley heit­innar, Paul Ansell, hefur í fyrsta sinn í tvö ár tjáð sig opin­ber­lega um miss­inn og gefið inn­sýn í það sem fjöl­skyldan gekk í gegnum eftir hvarf hennar.

Að morgni 27. jan­úar 2023 virt­ist dag­ur­inn hefj­ast með venju­bundnum hætti fyrir Nicolu, 45 ára tveggja barna móður. Hún fór með dætur sínar í skól­ann í þorp­inu St Michael's on Wyre í Lancaskíri í Englandi og fór síðan í göngutúr með hund sinn við ána River Wyre.

Skömmu síðar tók hún þátt í vinnufundi á net­inu, sem lauk um klukkan 9:30. Nokkrum mín­útum síðar fannst sími hennar skil­inn eftir á bekk við árbakk­ann, ásamt taum og beisli hunds­ins sem gekk laus. Þá var ljóst að eitt­hvað var ekki í lagi og viða­mikil leit hófst með aðkomu lög­reglu, þyrlna og leit­ar­hunda.

Málið vakti gíf­ur­lega athygli, bæði í Bret­landi og víðar. Íbúar svæð­is­ins tóku þátt í leit­inni, en jafn­framt spruttu upp fjöl­margar sam­sær­is­kenn­ingar á sam­fé­lags­miðlum. Sér­stak­lega vakti athygli að fólk á TikTok reyndi að „leysa“ málið og sumir beindu grun að Paul sjálfum án nokk­urra raka.

Paul hefur nú loks opnað sig um málið og seg­ist hann hafa orðið fyrir miklu álagi frá fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum:

„Þetta var 27. jan­úar 2023 og Nikki fór með stelp­urnar í skól­ann og kom aldrei heim. Ég varð að umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla, í þeim skiln­ingi að spurt var: ‚Hvar er mak­inn? Af hverju tjáir hann sig ekki?‘ eða eitt­hvað þess háttar,“ sagði hann á fyr­ir­lestri sem hald­inn var í London School of Economics (LSE) á mánu­dag­inn,“ segir Paul og heldur áfram:

„Ég fór út úr bílnum og ég held að ég hafi í raun­inni ekki vitað hvað ég var að gera. Ég fór út úr bílnum, svo var ég grip­inn af Sky og á næstu mín­útu var ég í þessu við­tali. En svo ertu auð­vitað, þú veist, sál­greindur, greindur. Augun í þér eru ekki rétt, þú ert með glott. Þetta voru ekki blöðin eða frétt­irnar. Þetta var meira TikTok. Þetta var mjög íþyngj­andi og hræði­leg upp­lifun, sér­stak­lega á sama tíma og við vorum að ganga í gegnum allt þetta. Þetta getur alveg gleypt mann“.

Leitin að Nicola stóð yfir í 23 daga áður en lík hennar fannst í ánni. Dánar­rann­sókn síðar sama ár leiddi í ljós að hún hefði fallið í ískalt vatnið og drukknað nær sam­stundis.

Þrátt fyrir það hélt umræðan áfram á sam­fé­lags­miðlum, og jafn­vel eftir að lík hennar fannst var mynd­band af upp­töku af vett­vangi dreift á net­inu, sem vakti mikla reiði en þar mátti sjá lík Nikolu dregið upp úr ánni.

Paul hefur sagt að hann eigi enn erfitt með að sætta sig við miss­inn og að hann sjái Nicola í dætrum þeirra á hverjum degi:

„Ég á enn erfitt með að tala um Nikki í þátíð. Ég sé hana í stelp­unum á hverjum ein­asta degi,“ sagði hann.

Hann segir þó mark­mið sitt vera að veita dætrum sínum eins eðli­legt líf og mögu­legt er, með stuðn­ingi fjöl­skyldu og vina.

Skýrsla frá College of Policing hefur bent á að áhrif sam­fé­lags­miðla á lög­reglu­rann­sóknir séu vax­andi vanda­mál og geti haft alvar­leg áhrif á bæði rann­sóknir og aðstand­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana