Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Stór-Ísrael“ aftur í umræðunni

„Umboð okkar yfir landi Ísraels er bibl­íu­legt.“

„Stór-Ísrael“ aftur í umræðunni
Stór-Ísrael Síon­istar vilja stækka Ísrael til muna Mynd: Al Jazeera

Nýleg ummæli emb­ætt­is­manna frá Banda­ríkj­unum og Ísrael um hug­mynd­ina um svo­kallað „Stór-Ísrael“ (e. Greater Israel) hafa vakið miklar áhyggjur í Mið­aust­ur­löndum og varpað ljósi á hug­mynda­fræði sem áður var sjaldan rædd opin­ber­lega.

Málið komst í hámæli eftir við­tal sem hægri sinn­aði banda­ríski hlað­varps­stjórn­and­inn Tucker Carlson tók í síð­asta mán­uði við sendi­herra Banda­ríkj­anna í Ísrael, Mike Huckabee. Þar spurði Carlson ítrekað hvort Huckabee, sem er krist­inn Síonisti, styddi að Ísrael hefði yfir­ráð yfir land­svæði sem næði frá Níl í Egypta­land til Efrat í Írak.

Huckabee hafn­aði ekki þeirri hug­mynd að Biblían lof­aði Ísrael slíku landi og sagði meðal ann­ars: „Það væri allt í lagi ef þeir tækju þetta allt.“ Ummælin vöktu reiði í mörgum ríkjum á svæð­inu, þar á meðal hjá nánum banda­mönnum Banda­ríkj­anna.

Síðar lýsti leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar í Ísrael, Yair Lapid, yfir stuðn­ingi við víð­tæk landa­mæri fyrir Ísrael og vís­aði til bibl­íu­legs grund­vallar:

„Síonismi byggir á Bibl­í­unni. Umboð okkar yfir landi Ísraels er bibl­íu­legt … landa­mærin eru landa­mæri Bibl­í­unnar.“

Hug­myndin um „Stór-Ísrael“ byggir í sinni víð­tæk­ustu mynd á bibl­íu­texta þar sem Guð lofar Abrahami landi sem nær frá Níl til Efrat. Það myndi ná yfir hluta eða allt land­svæði ríkja á borð við Egypta­land, Írak, Jórdaníu, Líbanon, Sádí-Arabíu og Sýrland.

Er Ísrael að vinna að „Stór-Ísraels“ markmiðinu?

Í fram­kvæmd hefur Ísrael stækkað yfir­ráða­svæði sitt í gegnum átök, meðal ann­ars eftir stríðið 1967 þegar landið tók yfir Vest­ur­bakk­ann, Gaza-svæðið og Gólan­hæðir. Þrátt fyrir alþjóða­lög hefur landið haldið áfram að her­nema svæði og byggja þar svo­kall­aðar land­nema­byggðir.

Athygli vakti þegar her­maður Ísra­els­hers var mynd­aður með merki „Stór-Ísraels“ saumað á her­bún­ingi sínum árið 2024 en Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins hefur einnig sagst vera í „sögu­legu og and­legu verk­efni“ og að hann tengdi vel við hug­mynd­ina um „Stór-Ísrael“. Í dag þekur land­svæði Ísraels um 20.770 fer­kíló­metra en land­svæðið sem merkið sem her­mað­ur­inn bar á öxl­inni, náði um 500.000 fer­kíló­metra svæði eða um 25 sinnum meira en stærð lands­ins í dag.

Í dag, ef her­teknu svæði Palest­ínu og Gólan-hæðir Sýrlands eru teknar inn í mynd­ina, nær land­svæði Ísraels um 27.000 fer­kíló­metra. Átta hund­ruð þús­und ólög­legir land­nemar hafa komið sér fyrir á her­teknu svæð­unum. New York Times sagði frá því að fjár­mála­ráð­herra Ísraels, Bezalel Smotrich lagði fram aðferða­fræð­ina gagn­vart Vestur-bakk­anum í upp­töku sem lekið var í fjöl­miðla. Þar tal­aði hann um að inn­lima Vestur-bakk­ann án þess að kalla það inn­limun. Kort frá honum sýndi um 82 pró­sent af Vestur-bakk­anum undir stjórn Ísraels. Þá lof­aði hann að bæta við milljón ólög­legum ísra­elskum land­nemum á palest­ínkst land.

Stríðin síð­ustu tveggja ára falla næstum öll innan Stór-Ísra­elskorts­ins og mörg þeirra eiga það sam­eig­in­legt að þar nota Ísraelar sömu taktík­ina, hern­að­ar­að­gerðir, örygg­is­svæði (e. buf­fer zone), varð­stöðvar, land­nám og svo inn­limun.

Mismikill stuðningur innan Ísrael

Stuðn­ingur við útþenslu er mis­mik­ill innan Ísraels. Margir styðja inn­limun Austur-Jer­úsalem og Gólan­hæð­anna, og stjórn­völd hafa unnið að auknum yfir­ráðum á Vest­ur­bakk­anum. Hug­myndir um enn víð­tæk­ari útþenslu, til dæmis inn í Jórdaníu eða alla leið frá Níl til Efrat, eru hins vegar umdeild­ari, þó þær hafi fengið aukið vægi með vax­andi áhrifum öfga­hægri afla í stjórn­málum.

Viðbrögð nágranna­ríkja hafa verið hörð. Arabísk ríki hafa for­dæmt slík ummæli og líta á þau sem ógn við full­veldi sitt. Þau ótt­ast einnig að vax­andi hern­að­ar­stefna Ísraels geti leitt til frek­ari átaka og jafn­vel nýrrar land­töku í Mið­aust­ur­löndum.

Þó að víð­tæk­asta útgáfa hug­mynd­ar­innar sé talin óraun­hæf, ótt­ast margir að þró­unin stefni í átt að auknum átökum þar sem Ísrael gegnir sífellt stærra hlut­verki sem hern­að­ar­legt stór­veldi á svæð­inu. Frétt þessi byggir á umfjöllun Al Jazeera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta