Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Birkir var stundum með „helvítis vesen“ í fermingarfræðslunni

„Veislan var stór­brotin“

Birkir var stundum með „helvítis vesen“ í fermingarfræðslunni
Ferm­ing­ar­dreng­ur­inn Birkir Fjalar Við­ars­son Mynd: Aðsend

Nú er ferm­ing­ar­tíma­bilið hafið og ákvað Mannlíf því að heyra í nokkrum bráð­skemmti­legum ein­stak­lingum til að spyrja þá út í þeirra upp­lifun af ferm­ingum. Bænir, gjafir og Jesús sjálfur.

Fyrstur til að svara ferm­ing­ar­spurn­ingum Mannlífs er Birkir Fjalar Við­ars­son, hlað­varps­þátta­stjórn­andi og söngv­ari rokksveit­ar­innar I Adapt.

Hver var þín upplifun af fermingarfræðslunni?

Hún var fín. Ég man ekki hversu hátíð­legur hann Davíð Bald­urs­son prestur var eða hversu miklu púðri hann eyddi í það að fá okkur til að gang­ast trúnni og Frels­ar­anum á hönd en þetta voru alveg nota­legir tímar. Hann sagði okkur auð­vitað svalar sögur úr trú­ar­rit­unum; alls­konar per­sónur og leik­endur sem gerðu góða og slæma hluti og veltu fyrir sér stað sínum í sköp­un­ar­verk­inu. Prest­ur­inn var ekk­ert að reka ofan í okkur að þessi og hin gildin væru þau einu sönnu og við yrðum að vera kristin. Það hefði senni­lega farið öfugt ofan í mig því ég var þarna byrj­aður að tor­tryggja skipu­lögð trú­ar­brögð og geri enn. Auk­in­heldur var ég á bólakafi í dauðarokki og eitt­hvað af þeim sveitum sem ég hafði mikið dálæti á sungu af mik­illi áfergju gegn Guði, kirkj­unni og fleiru því tengdu; nægir þar að Nefna Deicide, Morbid Angel, Mercyless og Unle­as­hed.

En fræðslan fór fram í kirkju og í tímum í skól­anum. Bekkja­systk­ini mín voru vinir mínir þannig að þetta var bara gaman. Stundum var ég að stríða prest­inum og með hel­vítis vesen sem ein­hvers­konar afstaða gegn kirkj­unni og því sem mér fannst vera vit­leysa. En já, Davið prestur bara las fyrir okkur, lét okkur leysa ein­föld verk­efni tengdum lestr­inum og eitt­hvað í þeim dúr.

Hvernig var veislan?

Veislan var stór­brotin. Hún fór fram heima hjá okkur á Mána­göt­unni. Maturinn var ofboðs­lega góður og mér er sér­lega minni­stæð ban­anakarrýsósa ein­hver sem var algjört hnoss­gæti. Mjög fram­andi fyrir svona út-á-landi gúbba sem þekktir ekk­ert nema fisk, kjöt, kart­öflur, brauð og mjólk­ur­vörur. Þarna var líka hrein­dýr og gott ef þessi sósa var ekki með því. Þetta var allt galdrað fram af mömmu minni, Unni Ölvers­dóttur, og hún var ekk­ert að grín­ast með svona. Það má vera að hún hafi fengið hjálp vin­kvenna sinna. Það var mest gaman að sjá ætt­ingja renna í hlaðið eftir langan akstur að sunnan. Veðrið var gott og það ylj­aði mér að sjá fólk komið langa leið. En veislan var ekk­ert sér­lega fjöl­menn. Mínar fjöl­skyldur eru alls ekki stórar. Heimilið okkar var fremur smátt þegar ég pæli í því en það rúm­aði þennan hóp.

Svo man ég að ég átti eitt­hvað svona dæmi­gerða Mallorca „grall­ara­gjöf“ úr plasti sem var stór kúr­bítur en ef þú opn­aðir hann þá kom í ljós getn­að­ar­limur. Einhver börn höfðu fundið þetta og hlupu um húsið sveiflandi limnum með til­heyr­andi skríkjum og galsa. Við höfðum gaman af þessu.

Hörður Ólafsson og Birkir Fjalar Við­ars­sonStýra saman þætt­inum Stokkið í eld­inn.

Hvernig leið þér í athöfninni?

Mér leið vel í athöfn­inni sem fór fram í kirkju Reyð­firð­inga. Krúttleg kirkja sem ég á bara góðar minn­ingar úr. Davíð prestur og Gunnar, hans hægri hönd, höfðu lag á því að gera kirkj­una aðlað­andi fyrir okkur í þorp­inu. Ekki að maður hafi verið sér­lega mikið þarna en það var ein­hver heim­il­is­legur heil­ag­leiki þarna sem fór vel í mig. Athöfnin var ekk­ert sér­stak­lega löng en ég man bara að mig lang­aði að fara sem fyrst heim að hlusta á dauðarokk í ferm­inga­græj­unum mínum. Það skipti mestu máli. En ég man líka eftir því að hafa fall­ist á að skerða hár mitt fyrir djöf­uls­ins mynda­tök­una. Þarna var ég kom­inn með nokkuð sítt hár en gamla settið vildi að ég liti betur út og hár­skeri þorps­ins klippti á mig „stall“ eins og það var kallað. Mikil var sú skelf­ing enda fór mun meira af dauðarokks­hár­inu í ruslið en ég hafði séð fyrir mér. Raun­veru­legur skellur.

Hvenær fórstu síðast í fermingu og hjá hverjum?

Ég man ekki hvaða ferm­ingu ég sótti síð­ast. Það er alltaf ein­hver reit­ingur. En heilt yfir eru ferm­ingar nú í ein­hverri „pabbamóðu“ hjá mér. Hugsa að það sé vegna þess að ég þarf að hafa augun og hemil á þremur börnum sem eru mín og það er ærið verk­efni. Eina sem ég man úr ferm­ingum nú til dags er að börnin komust klakk­laust frá alls­konar veislum og von­andi verður það áfram þannig. Ef mér skjátl­ast ekki þá er okkur boðið í þrjár veislur á þessu ári. Guð blessi og varð­veiti fólkið sem býður mér og krökk­unum mínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una