Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Uppstoppuð dýr settu svip sinn á fermingarveislu Tinnu

„Ég var smá stressuð“

Uppstoppuð dýr settu svip sinn á fermingarveislu Tinnu
Tinna Rún Jón­as­dóttir Er í dag að læra lög­fræði í HR. Mynd: Aðsend

Nú er ferm­ing­ar­tíma­bilið hafið og ákvað Mannlíf því að heyra í nokkrum bráð­skemmti­legum ein­stak­lingum til að spyrja þá út í þeirra upp­lifun af ferm­ingum. Bænir, gjafir og Jesús sjálfur.

Næst til að svara ferm­ing­ar­spurn­ingum Mannlífs er Tinna Rún Jón­as­dóttir, lög­fræði­nemi og fyr­ir­sæta.

Hver var þín upplifun af fermingarfræðslunni?

Mér fannst ferm­inga­fræðslan vera mjög áhuga­verð og smá skrýtin þar sem ég var þá ekki alveg búin að átta mig á þess­ari sögu sem lá að baki fræðsl­unnar. Mér fannst ferm­inga­fræðslan vera ótrú­lega skemmti­leg og fræð­andi þar sem hún fékk mann til þess að pæla í hlutum tengdum bæði líf­inu og dauð­anum. Minnir að við hitt­umst einu sinni í viku og vorum að fara yfir fræðslu og sögur um það sem var talið æðra mann­kyn­inu. Síðan auð­vitað fórum við í messur sem voru þó nokkrar, held að maður þurfti að fara í minnsta lagi sirka 10 sinnum í messu! Sá sem að fór með ferm­inga­fræðsl­una gerði hana ein­stak­lega skemmti­lega og held að það sé ein af megin ástæðum fyrir því að þetta var jákvæð upp­lifun (Shoutout á Hjalta). Ég fermd­ist með vinum mínum og fannst það örugg­lega skemmti­leg­asti part­ur­inn af öllu, fá að hlægja og hafa gaman af þessu öllu.

Tinna er einnig fyr­ir­sæta

Hvernig var veislan?

Veislan var frekar stór þar sem ætt­ingjar komu og þekkti maður ekki alveg alla á þeim tíma. Ég var með alls­konar veit­ingar og auð­vitað var hent í eina stóra kjúklinga­súpu af honum Sigga kokk, ásamt fjöl­mörgum kökum Veislan var haldin í stóra salnum í Laug­ar­nes­skóla þar sem upp­stopp­uðu dýrin fylgd­ust með fjör­inu.

Spilaði á klar­ínett í eigin ferm­ingu

Hvernig leið þér í athöfninni?

Athöfnin  var haldin í Laug­ar­nes­kirkju og var mjög fal­leg. Mér fannst þetta meira flipp heldur en eitt­hvað sem ég þurfti að taka mikið mark á þá. Ég var smá stressuð yfir því að þurfa að læra texta utanað og þurfa tala fyrir framan alla en fékk síðan að vita að ég mætti vera með blað og lærði eng­ann texta utanað. Mjög metn­að­ar­full en það er bara fyndið að hugsa út í það. Pínu fyndið að ég var búin að kaupa kjól en hann var svo gegn­sær að ég þurfti að kaupa nýjan. Prófaði síðan ferm­inga­kjól­inn um dag­inn og ég pass­aði í hann!

Vorum líka nokkrar sem að spil­uðum saman á klar­ínett í teitum og meðal ann­ars ferm­ing­unni minni. Hún Vilborg Jóns­dóttir skóla­hljóm­sveit­ar­stjóri var alltaf mikil fyr­ir­mynd og er þakk­lát fyrir að hún hafi gefið sér tíma í að mæta í ferm­ing­una mína, hennar er sárt saknað.

Hvenær fórstu síðast í fermingu og hjá hverjum?

Held að ég hafi farið árið 2024 síð­ast í ferm­ingu hjá frænda mínum. Mér er ekki boðið í neinar ferm­ingar á þessu ári og ég er eig­in­lega bara mjög fegin því ég borða alltaf þangað til ég get ekki hreyft mig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina