Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Hljómsveitin VÆB snýr aftur

Lentu í 25. sæti í Eurovision í fyrra

VÆB
VÆB Tóku þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands Mynd: Aðsend

Hljóm­sveitin VÆB mun frum­flytja lag Barna­menningar­hátíðar 2026 í Breið­holtsskóla miðvikudaginn 15. apríl kl. 12:30, að viðstöddum nemendum skólans en þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykja­víkurborg.

Meðlimir sveitarinnar eru bræðurnir Matthías Davíð Matthíasson og Hálfdán Helgi Matthíasson, og munu þeir flytja lagið Sama hver það er í fyrsta sinn.

Þema Barna­menningar­hátíðar í ár er „samkennd og samfélag“. Nemendur í 4. bekk í Reykjavík fengu það verkefni að velta fyrir sér þessum hugtökum og svara spurningum um merkingu þeirra. Texti lagsins byggir á hugmyndum og svörum barnanna sjálfra.

Barna­menningar­hátíð fer fram dagana 20.–26. apríl og býður upp á fjöl­breytta dagskrá um alla borg. Á hverju ári taka um 10.000 börn þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti. VÆB mun einnig flytja lagið við setningu hátíðarinnar í Eldborgarsal Hörpu þann 20. apríl, fyrir fullum sal af börnum.

Viðburðir hátíðarinnar fara fram víðs vegar um borgina og eru ætlaðir börnum og fjöl­skyldum þeirra. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027