Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skólameistari FS hefur fengið nóg og er hættur

Nemendur ætla að skrópa í skól­ann og morgun og mót­mæla við mennta­mála­ráðu­neytið.

Skólameistari FS hefur fengið nóg og er hættur
Kristján Ásmunds­son Kristján er búinn að fá nóg Mynd: FSU

Kristján Ásmunds­son skóla­meist­ari FS hefur sagt starfi sínu lausu, þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skip­un­ar­tíma sínum. Með því lýkur hann tæp­lega 40 ára starfs­ferli við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja, þar sem hann hóf störf árið 1986. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á heima­síðu skól­ans.

Hann greindi starfs­fólki frá ákvörðun sinni á fundi í morgun og vöktu tíð­indin sterk við­brögð. Margir urðu slegnir og sumir felldu tár. Kristján hefur um ára­bil verið far­sæll stjórn­andi og notið mik­illar virð­ingar innan skól­ans.

Að sögn Krist­jáns átti hann fund með full­trúum mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrr um dag­inn þar sem rætt var um fyr­ir­hug­aða við­bygg­ingu við skól­ann. Sú fram­kvæmd hefur verið til umræðu í tvö ár, en á fund­inum kom fram að enn liggja ekki fyrir neinar ákvarð­anir um tíma­setn­ingu eða fram­gang verk­efn­is­ins.

Því er ljóst, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, að skól­inn þarf áfram að búa við þröngan húsa­kost. Kennsla fer nú meðal ann­ars fram í þremur gámum og í leigu­hús­næði á tveimur stöðum í bæj­ar­fé­lag­inu. Þá hefur einnig þurft að breyta geymslum í kennslu­rými og aðlaga bók­náms­stofur að verk­legri kennslu.

Skólinn er fjöl­breyttur og gegnir mik­il­vægu hlut­verki á Suð­ur­nesjum, meðal ann­ars með stórri starfs­braut og nem­endum af ólíkum menn­ingar- og tungu­mála­bak­grunni. Hins vegar er aðstöðu­leysi nú farið að hafa veru­leg áhrif á starf­sem­ina, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Kristján segir að nú sé komið nóg og að hann sjái ekki fram á frek­ari árangur í mál­inu. Hann harmar jafn­framt skort á áhuga stjórn­valda á mál­efnum skól­ans og telur það hafa haft áhrif á ákvörðun sína um að hætta.

Nemendur skipuleggja mótmæli

Tristan Ein­ars­son, for­maður Nem­enda­fé­lags FS segir í sam­tali við Mannlíf að mikil óánægja sé með ástandið í skól­anum og að nem­endur standi við bakið á Krist­jáni.

„Nemendur eru heldur betur óánægðir. Mennta­mála­ráðu­neytið er ekki bara að gefa Krist­jáni skóla­meist­ara, heldur nem­endum öllum, blauta tusku í and­litið.“

Segir Tristan að fyrir löngu sé kom­inn tími á að stækka skól­ann og nefnir sem dæmi að kofar sem nem­endur á húsa­smíða­braut skól­ans smíð­uðu, séu meðal ann­ars not­aðir undir kennslu­stofur og að bóka­safnið hafi verið minnkað.

Að sögn Tristan ætla nem­endur að skrópa í skól­ann á morgun og mót­mæla við mennta­mála­ráðu­neytið.

„Við ætlum að ganga út úr skól­anum á eftir og hvetja fólk til að mæta ekki í skól­ann á morgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina