Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

„Snorri veit nákvæmlega hvað hann er að gera með þessu“

Fyrr­verandi framkvæmdar­stjóri Samtak­anna 78 hjólar í Snorra Másson

Snorri Másson
Snorri Másson Daníel segir Snorra vita nákvæm­lega hvað hann sé að gera Mynd: Víkingur

Daníel E. Arnarsson, fyrr­verandi framkvæmdar­stjóri Samtak­anna 78, gagnrýnir Snorri Másson, vara­formann Miðflokkurinn, harðlega í Facebook-færslu í kjölfar umræðu hans um sýnileika regnboga­fánans í grunn­skólum landsins.

Í færslunni segir Daníel að Snorri viti vel hvað hann sé að gera með ummælum sínum og að umræðan snúist ekki um raun­veruleg vandamál. Hann bendir á að regnboga­fáninn sé tákn hinsegin fólks og að nærvera hans í skólum sé meðvituð ákvörðun starfs­fólks til að skapa öruggt og opið umhverfi fyrir alla nemendur. Daníel skrifar:

„Elsku Snorri. Hugsa til hans. Myndi hlæja ef þetta væri ekki svona skaðlegt. Snorri veit nákvæmlega hvað hann er að gera með þessu. Regnboga­fáninn er tákn okkar hinsegin fólks og er sýnilegur í skólum landsins af því að starfs­fólk skóla vill búa til umhverfi þar sem öll eru velkomin og á sama tíma sýna hinsegin krökkum aukna viðleitni. En Snorri veit þetta alveg.“

Daníel sakar Snorra um að skapa vísvitandi ágreining og beina athyglinni frá mikil­vægari málefnum. Að hans mati sé verið að „trufla, búa til hávaða“ og finna vandamál þar sem þau séu ekki til staðar.

„Ef það er regnboga­fáni í dag þá er það eitthvað annað á morgun, en almætti forði honum að ræða málefni sem raun­verulega skiptir fólkið í þessu landi máli.“

Hann segir jafnframt ámælis­vert að kjörinn fulltrúi Alþingis nýti stöðu sína með þessum hætti í stað þess að vinna að hagsmuna­málum almennings. Hann gagnrýnir að ráðist sé að minnihluta­hópum ítrekað í stað þess að beina kröftum að brýnni verkefnum samfélagsins.

„Mér finnst magnað að maður sem er kjörinn á Alþingi, sem er valda­hlutverk, með mýmörg verkefni til að bæta hag fólks velji frekar að búllía minnihluta­hópa við hvert tækifæri. Það er nóg að gera í öllum mála­flokkum ríkisins, ég er viss um það, en í staðinn velur hann þetta.“

Í færslunni hafnar Daníel einnig þeirri orðræðu sem byggi á ótta við ákveðna hópa og nefnir sérstak­lega innflytjendur og transfólk. Hann segir mikilvægt að samfélagið byggist á viðurkenningu, virðingu og fjöl­breytileika fremur en ótta.

„Það er ekkert að óttast innflytjendur og það er ekkert að óttast trans fólk. Það er ekki hollt að vera hræddur við það sem við ekki þekkjum, þá förum við bara að sofa illa, fá magasár og verðum að lokum reið og döpur.“

Að lokum lýsir hann óánægju með framgöngu kjörinna fulltrúa sem, að hans mati, tali niður til fólks og dragi úr virði ákveðinna hópa. Hann kallar eftir jákvæðari nálgun þar sem lögð er áhersla á að efla samfélagið og styðja við alla landsmenn.

„Ég persónu­lega er kominn með nóg af kjörnum fulltrúum sem tala niður til fólksins í landinu, segja okkur hvað er ekki hægt að gera og tala um að ákveðnir hópar samfélagsins séu minna virði. Því það er alveg hægt að tala fólk upp, fagna fólkinu okkar og vinna fyrir land og þjóð. Eða var þetta fólk ekki kosið til þess að gera það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra