Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 8. apríl síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 27. apríl. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.
Athygli vekur að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er meðal umsækjanda. Hún sagði af sér sem rektor fyrr á árinu eftir að Félag akademískra starfsmanna lýsti vantrausti á hana.































Athugasemdir