Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dökkir Íslendingar tjá ótta eftir sigur hægriflokkanna

„Ég er bland­aður, brúnn hommi og mér finnst ég ekki alveg 100% öruggur“

Dökkir Íslendingar tjá ótta eftir sigur hægriflokkanna
Friðrik Agni Árnason Friðrik er ugg­andi yfir úrslitum kosn­ing­anna Mynd: Aðsend

Ingólfur Shahin, for­stjóri Tra­vels­hift, og Friðrik Agni Árnason, dans­ari og verk­efna­stjóri hjá UNICEF, segj­ast báðir ótta­slegnir eftir nið­ur­stöður sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna um helg­ina, þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn bættu víða við sig fylgi.

Í ítar­legri Facebook-færslu segir Ingólfur að nið­ur­stöð­urnar vekji með sér ótta sem ein­stak­lingi með bland­aðan bak­grunn.

„Ótti, þannig myndi ég lýsa nið­ur­stöðum þess­ara kosn­inga fyrir Íslend­inga með bland­aðan bak­grunn. Það er skelfi­legt að sjá nær helm­ing borg­ar­búa kjósa flokka sem hafa lýst yfir kyn­þátta­hatri og ítrekað farið með fleipur um heil menn­ing­ar­sam­fé­lög í þeim til­gangi einum að hræða fólk til að kjósa sig,“ skrifar hann.

Hann segir sér­stak­lega sárt að sjá fólk úr eigin vina­hópi og fjöl­skyldu styðja flokka sem hann telur hafa gert útlend­inga­andúð og stuðn­ing við Ísrael að hluta af stefnu sinni.

„Til þeirra sem segj­ast styðja þessa flokka nema þegar kemur að útlend­inga­andúð og stuðn­ingi þeirra við Ísrael, þá segi ég þetta: kyn­þátta­hatur og þjóð­ar­morð geta aldrei verið ‘auka­at­riði’,“ skrifar Ingólfur og bætir við að „þegar sam­fé­lag byrjar að umb­una slíku hatri með atkvæðum, þá er hættan ekki lengur fram­tíð­ar­sviðs­mynd, heldur er hún þegar byrjuð.“

Þá gagn­rýnir hann einnig Hildur Björns­dóttir, sem lík­leg er til að verða næsti borg­ar­stjóri Reykja­víkur.

„Vissu­lega er Hildur Björns­dóttir, til­von­andi borg­ar­stjóri, fram­bæri­leg og að mörgu leyti glæsi­leg. Hún hefði samt getað komið fram eftir að ljóst varð að hún yrði borg­ar­stjóri og sagst ætla að vera leið­togi fyrir alla Reyk­vík­inga, sama hvaða upp­runa eða kyn­hneigð fólk hefði,“ skrifar hann.

Ingólfur segir jafn­framt að hann hugsi þessa dag­ana um að vera reiðu­bú­inn að yfir­gefa landið með börnum sínum ef sam­fé­lagið þró­ist áfram í þessa átt.

„Því sagan byrjar aldrei með fanga­búðum eða ofsóknum … hún byrjar með afmennskun,“ skrifar hann.

Hinsegin og brúnn

Í sam­bæri­legum tón skrifar Friðrik Agni að hann finni fyrir óör­yggi í eigin heima­landi eftir þróun síð­ustu miss­era í sam­fé­lags­um­ræð­unni.

„Já ég er ótta­sleg­inn. Ég er bland­aður, brúnn hommi og mér finnst ég ekki alveg 100% öruggur, hér, heima í mínu upp­runa­landi,“ skrifar hann.

Hann segir orð­ræð­una í sam­fé­lag­inu hafa stuðlað að afmennskun fólks sem falli ekki að hefð­bundnum hug­myndum um það hvernig Íslend­ingur eigi að vera.

„Kosn­ing­arnar sanna það að þessi ótti er ekki ástæðu­laus. Og það er ekki ein­ungis hvernig maður hefur lesið í kommenta­kerfi lands­ins heldur er þetta til­finn­ingin á göt­unni. Augnaráð og fram­koma,“ skrifar Friðrik.

Þá segir hann að þró­unin sé ekki bundin við Ísland heldur sjá­ist víða um heim.

„Það hvarflar stundum að manni að færa sig um set en málið er bara að þetta er staðan í heim­inum. Þannig maður spyr sig. Þurfum við bara að berj­ast harðar fyrir okkur sjálf, hafa hærra?“ skrifar hann að lokum.

Óheppilegt orðalag

Í athuga­semd við færslu sína bætir Friðrik Agni því við að hann sé meira að tala um Mið­flokk­inn en Sjálf­stæð­is­flokk­inn og að hann telji Hildi Björns­dóttur ekki vera ras­ista.

„Og P.S. ég er kannski meira að snúa mér að mál­efnum MF heldur Sjálf­stæðis og ég tel nú alls ekki að hún Hildur Björns­dóttir sé ras­isti. Bara svo það sé sagt. Þetta súkkulaði­kleinu orða­lag er samt afar óheppi­legt yfir höfuð og kannski bara hægt að við­ur­kenna það - sér­stak­lega í þessu sam­hengi og í því póli­tíska umhverfi sem við búum í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum