Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjaldgæfur sjúkdómur veldur stöðugum brjóstavexti hjá ungri konu

Summer Robert not­aði C-skál átta ára gömul vegna hins sjald­gæfs sjúk­dóms

Sjaldgæfur sjúkdómur veldur stöðugum brjóstavexti hjá ungri konu
Summer Robert Summer íhugar brjóstaminnkun Mynd: Instagram-skjáskot

Skoska konan Summer Robert segir sjald­gæfan sjúk­dóm hafa gert henni ómögu­legt að sinna mörgum hvers­dags­legum verk­efnum eftir að brjóst hennar hættu aldrei að stækka.

Hin 28 ára gamla Robert glímir við sjúk­dóm sem kall­ast macromastia og veldur stjórn­lausum og stöð­ugum brjósta­vexti.

Hún segir að hún hafi frá barns­aldri þurft að þola niðr­andi augna­ráð og kyn­ferð­is­lega hlut­gerv­ingu frá ókunn­ugu fólki vegna ástands­ins.

Robert þurfti að nota brjósta­hald­ara í skála­stærð C aðeins átta ára gömul og hefur stóran hluta ævinnar reynt að fela lík­ama sinn fyrir öðrum, sem hefur reynst erfitt þar sem hún notar nú brjósta­hald­ara í R-stærð.

Þrátt fyrir að vera aðeins um 150 sentí­metrar á hæð og með brjóst sem urðu marg­falt stærri en D-skála­stærð segir hún að það hafi ekki verið fyrr en hún var 25 ára gömul að læknir greindi hvað væri að ger­ast í lík­ama hennar.

„Ég hafði farið til lækna síðan ég var um 13 eða 14 ára gömul og eng­inn þeirra greindi þetta. Enginn sagði mér að þetta væri raun­veru­legur sjúk­dómur,“ sagði hún í við­tali við People.

„Þeir sögðu bara að þetta væri kyn­þroski eða að ég þyrfti að létt­ast. Það var fárán­legt.“

Fékk útprentaða Wikipedia-síðu

Vegna þess hve sjúk­dóm­ur­inn er sjald­gæfur segir Robert að fáir læknar hafi þekkt hann eða vitað hvernig ætti að greina hann.

Hún segir jafn­vel að einn læknir hafi ein­fald­lega prentað út Wikipedia-síðu um sjúk­dóm­inn og afhent henni.

Að sögn Robert kemur sjúk­dóm­ur­inn fram í vaxt­ar­kippum og aðeins á síð­asta ári hafi hún farið upp um ell­efu brjósta­hald­ara­stærðir.

Hún hefur opnað aðgangs­síðu á OnlyFans þar sem hún sýnir lík­ama sinn, en segir þó að hún íhugi nú mikla brjóstaminnk­un­ar­að­gerð vegna þess að ástandið geri henni lík­am­lega erfitt fyrir að sinna dag­legu lífi.

Læknar hafa þó varað hana við því að þó aðgerð gæti létt á vand­anum til skamms tíma myndi brjósta­vef­ur­inn lík­lega vaxa aftur.

Segir fólk halda að hún vilji athygli

Robert segir að hún þurfi reglu­lega að þola áreitni og mis­munun vegna ástands síns og að sum fyr­ir­tæki hafi jafn­vel vísað henni út vegna þess að starfs­fólk taldi hana vera klædda á óvið­eig­andi hátt.

„Fólk heldur stöðugt að ég vilji sýna brjóstin mín eða sæk­ist eftir athygli,“ segir hún.

„Ég er bara bók­staf­lega að reyna að vera til og ég er ein­fald­lega með stór brjóst.“

Hún segir að jafn­vel þegar hún klæð­ist víðum eða lát­lausum fötum verði hún samt fyrir áreitni og köllum frá fólki á götu úti.

Erfitt að sinna einföldum verkefnum

Robert segir að margt sem flestir taki sem sjálf­sögðum hlut sé orðið mjög erfitt fyrir hana.

Til dæmis reyn­ist henni erfitt að finna föt sem passi og hún þurfi oft að nota bak­stuðn­ing við hvers kyns hreyf­ingu, jafn­vel þegar hún fari í göngutúr eða taki til heima hjá sér.

„Daglegir hlutir sem maður heldur að séu svo auð­veldir eru í raun mjög erf­iðir,“ segir hún.

Þrátt fyrir allar áskor­an­irnar seg­ist hún enn ekki viss um hvort hún vilji fara í aðgerð­ina.

„Lækn­ir­inn sagði að ef þetta væri orðið svo mikið álag gæti ég farið í minnk­un­ar­að­gerð,“ segir hún.

Hún vill þó bíða aðeins lengur áður en hún ákveður sig.

„Hann sagði við mig: „Ég mæli með að þú farir í aðgerð, en þú þarft að ákveða hvenær þú getur ekki lengur borið þetta lík­am­lega.“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta