Lögreglan á Suðurnesjum leitar vitna að umferðaróhappi sem varð á Aðalgötu við Nettó í Reykjanesbæ síðdegis í gær.
Samkvæmt færslu lögreglu á samfélagsmiðlum var ekið á gangandi vegfaranda um klukkan 14:20. Ökumaðurinn mun hafa ekið af vettvangi án þess að stöðva eða huga að þeim sem varð fyrir bifreiðinni.
Sá sem varð fyrir bílnum slasaðist nokkuð á hendi að sögn lögreglu.
Lögreglan óskar nú eftir upplýsingum frá vitnum sem kunna að hafa séð atvikið. Þá eru þeir sem kunna að vera með eftirlits- eða öryggismyndavélar sem ná yfir svæðið einnig beðnir um að hafa samband við lögreglu.































Athugasemdir