Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Starfsmaður Sky Lagoon fær ekkert frá fyrirtækinu eftir vinnuslys

Fyrir­tækið hafnaði ábyrgð

Sky Lagoon
Sky Lagoon Mynd: Laurenmcl/Wikipedia

Héraðs­dómur Reykjaness hefur sýknað fyrirtæki sem rekur baðlónið Sky Lagoon af kröfu fyrr­verandi starfs­manns um viðurkenningu á skaða­bótaskyldu vegna vinnu­slyss sem hún varð fyrir í lok árs 2021 þegar hún rann á blautu gólfi í búnings­klefa og hlaut heila­hristing.

Konan höfðaði málið í október 2025 og krafðist þess að viðurkennt yrði að vinnu­veitandinn bæri ábyrgð á líkams­tjóni sem hún varð fyrir 30. desember 2021. Samkvæmt frásögn hennar var hún að sækja vaðskó áður en hún fór út í lónið þegar hún rann á blautum flísum, féll í gólfið og rak höfuð, öxl og mjöðm í skáp.

Í kjölfar slyssins leitaði hún læknis­aðstoðar og greindist með heila­hristing. Hún lýsti því að hafa glímt við lang­varandi einkenni, meðal annars höfuð­verki, svima, þreytu, minnis­skerðingu, ljós- og hljóð­fælni, kvíða og þunglyndi. Sjúkra­tryggingar Íslands og launþega­trygging vinnu­veitandans höfðu áður viðurkennt bóta­skyldu og konan fékk greiddar bætur úr tryggingunni.

Stefnandi hélt því fram að gólf í búnings­klefanum hefðu verið óforsvaranlega hál og að stjórn­endur hefðu lengi vitað af vandanum án þess að grípa til fullnægjandi úrbóta. Fyrr­verandi starfs­menn báru fyrir dómi að starfs­menn hefðu ítrekað bent á slysa­hættu vegna blautra gólfa og að rætt hefði verið um að leggja mottur á gólfið, en það hefði ekki verið gert.

Fyrir­tækið hafnaði ábyrgð og vísaði meðal annars til þess að gólfefnið uppfyllti gildandi kröfur og að reynt hefði verið að draga úr slysa­hættu með reglulegri þurrkun gólfa, sérstökum efnum á flísum og viðvörunar­skiltum.

Dómurinn féllst á að bleyta og hálka væru eðlilegur fylgi­fiskur starfsemi baðlóns og að ekki yrði gerð sú krafa að útiloka mætti alla fallhættu. Þá taldi dómurinn að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að flísarnar uppfylltu ekki lögbundnar öryggis­kröfur eða að vinnu­veitandinn hefði sýnt af sér saknæma vanrækslu.

Þótt fyrir­tækið hefði ekki tilkynnt slysið til Vinnu­eftirlitsins innan lögboðins frests taldi dómurinn að sú vanræksla hefði ekki haft áhrif á sönnunar­stöðu málsins. Var fyrir­tækið því sýknað af kröfum konunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra