Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

„Þessi turn er svo sann­ar­lega ekki inn­leggið sem þurfti til að gera þetta betra“

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“
Í færsl­unni seg­ist hann vera búinn að horfa mikið á turn­inn sem verið er að byggja við Skúla­götu 26. Mynd: Facebook/Páll Jakob Líndal

Skiptar skoð­anir eru á útliti á nýju hót­eli Radisson við Skúla­götu. Í opin­berri færslu segir Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði, að hót­el­turn­inn falli illa inn í umhverfið og sé enn eitt skipu­lags­slysið í Reykja­vík.

Páll Jakob Líndal er sér­fræð­ingur í mati á sál­fræði­legum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort sem um er að ræða nátt­úru eða byggt umhverfi. Hann er með dokt­ors­próf í umhverf­is­sál­fræði frá Háskól­anum í Sydney og starfar nú sem for­stöðu­maður við­bót­ar­náms á meist­ara­stigi í umhverf­is­sál­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík. Þá kennir hann umhverf­is­sál­fræði við Háskóla Íslands og Land­bún­að­ar­há­skól­ann á Hvann­eyri, auk þess að vera fyr­ir­les­ari og mark­þjálfi.

Í færsl­unni seg­ist hann vera búinn að horfa mikið á turn­inn sem verið er að byggja við Skúla­götu 26.

„Ég man enn þegar ég fyrst rak augun í þessa, þá fyr­ir­hug­uðu, fram­kvæmd í kringum 2020. Og ekki var það vegna stærð­ar­innar eða útlits­ins per se, sem maður var og er löngu orð­inn vanur. Miklu frekar hnaut ég um orð þau orð arki­tekts­ins 1) að nú ætti að skapa nýtt kenni­leiti í Reykja­vík sem kall­ast ætti á við Hall­gríms­kirkju og 2) að hug­myndin með hönn­un­inni væri að skapa „ein­staka bygg­ingu“ sem kæmi til með að tengja saman Reykja­vík og nátt­úru Íslands.“

Athuga­semd­irnar láta ekki á sér kræla og leggur Egill Helgason fjöl­miðla­maður sitt lóð á vog­ar­skál­ina og segir við færslu Páls: „Þetta er ekki í lagi. Nefni líka bygg­ing­arnar á Heklu­reitnum. Þær eru skelf­ing.“

Agnar Már Másson, frétta­maður hjá SÝN hafði sam­band við Pál og leit­aði eftir skoðun Páls á bygg­ing­unni. Páll segir í færslu sinni að hann hafi náð að kom­ast yfir margt í við­tal­inu en hafi haft fleiri punkta sem hann hefði viljað hafa haft tíma til að útskýra betur.

Hann fór nánar yfir þessa punkta í færslu sinni og segir að list­inn sé samt sem áður fjarri því tæm­andi:

„Skali og eins­leitni. Bygg­ingin er úr skala við umhverfið, þó vissu­lega hafi skal­inn stækkað á und­an­förnum ára­tugum og 200 m vestar standi dökkar yfir­litum blokk­irnar sem kenndar eru við Skugga. Þær blokkir eru líka úr skala. Og fátt er það sem drepur mann­líf með jafn sann­fær­andi hætti og umhverfi sem ekki er í skala. Þá er eins­leitnin í algleym­ingi, ekki bara bygg­ingin og skipu­lagið heldur einnig sam­fé­lagið sem þarna skap­ast. Við tölum um að varð­veita fjöl­breyti­leik­ann, en við mótum umhverfi okkar með svo eins­leitum hætti að það hrein­lega svíður undan.

Veð­ur­fars­leg áhrif - kringum svo háar bygg­ingar mynd­ast vind­strengir sem hafa nei­kvæð áhrif á nærum­hverfi og spilla upp­lifun okkar. Þetta vitum við öll. En eins og alltaf er sagt, þá hefur þessi turn að sjálf­sögðu verið hann­aður m.t.t. veð­urs. En það voru líka Skugga­blokk­irnar og hinn alræmdi Höfða­túns­turn, þar sem fólk hefur verið í stór­hættu vegna hættu­legra vind­strengja sem hafa skap­ast kringum bygg­ing­una.

Útsýni og sjón­línur - við erum ein­fald­lega að múra okkur frá hinu glæsi­lega útsýni yfir Sundin, Esjuna, Akra­fjallið og Skarðs­heið­ina. Við erum að taka þetta útsýni til að selja útvöldum hót­el­gestum og eig­endum íbúða í þessum háhýsum. Enn­fremur eru við að stór­skaða þær glæsi­legu og ein­kenn­andi sjón­línur sem blasa við þegar farið er um Laugaveg eða Hverf­is­götu og horft niður þver­göt­urnar.

Kenni­leiti - þetta atriði kemur fram í frétt­inni. Er það okkar helsta ósk að Radison RED á Skúla­götu verði kenni­leiti í borg­inni og það kall­ist á við Hall­gríms­kirkju? Að bygg­ing erlendrar hót­el­keðju sé kenni­leiti í höf­uð­borg­inni - hvernig hljómar það?

Sagan - þetta atriði kemur fram í frétt­inni. Við Skúla­götu byggð­ist upp fyrir um 100 árum iðn­aðar- og athafna­svæði. Þarna risu stór­hýsi þeirra tíma og voru umdeild. Þarna stóðu t.d. hús SS, timb­ur­versl­unin Völundur og Kveld­úlfs­skáli, allt bygg­ingar sem nú myndu vafa­laust sóma sér vel við Skúla­göt­una, en viku fyrir skamm­sýni og stað­leysum. En í stað þess að stoppa og læra, þá er haldið áfram búa til stað­leysur og þær seldar í nafni nátt­úr­unnar, höf­uð­borg­ar­innar, mann­lífs, gleði og fram­fara. Við eigum að byggja á sög­unni ekki afmá hana - það gefur umhverf­inu ótví­rætt gildi ef við getum tryggt menn­ing­ar­sögu­lega sam­fellu - og það hefur ein­stak­lega áhuga­verð sál­fræði­leg áhrif í för með sér.

Mér er svo oft hugsað til þess hvað við hefðum getað gert ofsa­lega áhuga­vert og spenn­andi umhverfi við Skúla­götu, ef hefðum virt sög­una og byggð­ina. Vissu­lega var svæðið farið að láta á sjá á 10. ára­tug síð­ustu aldar, þegar "fram­fara­sinnar" lögðu af stað. Auðvitað mátti alveg byggja þarna og taka til. En þegar við erum að búa til umhverfi sem nem­endur mínir í umhverf­is­sál­fræði lýsa með þeim hætti að þeim finn­ist þeir vera að kafna þegar þeir ganga til og frá íbúðum sínum í stúd­enta­görð­unum við Lind­ar­götu - þá getum við varla sagt að vel hafi tek­ist til.

Og þessi turn er svo sann­ar­lega ekki inn­leggið sem þurfti til að gera þetta betra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi