Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórhallur dæmdur fyrir grófa líkamsárás á fyrrverandi kærustu

Hlaut fjög­urra mán­aða skil­orðs­bund­inn fang­els­is­dóm

Þórhallur dæmdur fyrir grófa líkamsárás á fyrrverandi kærustu

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Þórhall Hjálmar Frið­jóns­son í fjög­urra mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir grófa lík­ams­árás á fyrr­ver­andi kær­ustu sína á heim­ili hennar í Reykja­vík sum­arið 2023. Auk þess var honum gert að greiða kon­unni rúm­lega 861 þús­und krónur í miska­bætur og sjúkra­kostnað.

Samkvæmt dómnum átti árásin sér stað að kvöldi 11. júlí og fram yfir mið­nætti 12. júlí 2023. Þar segir að Þór­hallur hafi tekið far­síma kon­unnar af henni, komið í veg fyrir að hún kæm­ist út úr íbúð­inni og beitt hana ítrek­uðu ofbeldi. Hann tók hana meðal ann­ars ítrekað háls­taki, hélt fyrir vit hennar, tog­aði í hár hennar, kýldi hana í síðu og sló hana í and­litið. Þá reif hann hana úr nær­bux­unum.

Konan hlaut fjölda áverka, þar á meðal rif­brot, mar­bletti, blóð­spreng­ingar í augum og á hálsi auk ann­arra áverka víðs vegar um lík­amann. Hún leit­aði til læknis dag­inn eftir árás­ina og síðar kom í ljós rif­brot sem stað­fest var með tölvu­sneið­mynd. Læknar báru fyrir dómi að áverkar hennar væru í sam­ræmi við frá­sögn hennar.

Þór­hallur ját­aði frá upp­hafi þá hátt­semi sem honum var gefin að sök og við­ur­kenndi meðal ann­ars að hafa tekið kon­una háls­taki, haldið henni niðri og bannað henni að fara út. Hann sagð­ist jafn­framt telja mögu­legt að rif­brotið hefði orðið þegar hann sett­ist ofan á hana eða hélt henni fastri.

Sak­sókn­ari ákærði Þórhall fyrir brot í nánu sam­bandi. Hér­aðs­dómur taldi hins vegar ósannað að hann og brota­þoli hefðu verið í sam­búð í skiln­ingi lag­anna þrátt fyrir að hafa verið í nánu sam­bandi. Því var hátt­semin ekki felld undir ákvæði um ofbeldi í nánu sam­bandi heldur undir almennt ákvæði hegn­ing­ar­laga um stór­fellda lík­ams­árás. Dómurinn taldi þó að tengsl þeirra ykju alvar­leika brots­ins við ákvörðun refs­ingar.

Þór­hallur var jafn­framt ákærður fyrir að hafa brot­ist inn í síma og spjald­tölvu kon­unnar og skoðað sam­fé­lags­miðla hennar í heim­ild­ar­leysi. Dómurinn sýkn­aði hann af þeim ákæru­lið þar sem brotið var talið fyrnt þegar ákæra var gefin út.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn meðal ann­ars til þess að Þór­hallur hafði ekki áður gerst sekur um refsi­vert brot, ját­aði brotin strax og sýndi iðrun. Refs­ingin var ákveðin fjög­urra mán­aða fang­elsi en fulln­ustu hennar frestað til tveggja ára, að upp­fylltu almennu skil­orði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi