Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Stökk inn í bílinn á nokkrum sekúndum og fékk háa sekt

„Sterkt dæmi um skort á aðstæðu­vit­und, dóm­greind, og umburð­ar­lyndi“

Stökk inn í bílinn á nokkrum sekúndum og fékk háa sekt
Frúin að sækja Dadda í mið­bænum „Í síð­ustu viku náð­ist slíkt atvik á mynd þegar að frúin stöðv­aði í ein­hverjar sek­úndur til að pikka mig upp“ Mynd: Facebook/Daddi Gudbergsson

Kjartan Guð­bergs­son, yfir­leitt kall­aður Daddi Disco, segir frá leið­indum sem hafa náð langt fram úr með­al­hófi í opin­berri færslu.

Daddi og kona hans Sara Páls­dóttir fram­kvæmda­stjóri Sam­skipta hafa verið að deila bíl vegna þess að þau starfa bæði í mið­bænum. Þau vinna hvort á sínum vinnu­staðnum svo Daddi seg­ist ávallt stökkva inn og út nærri sínum vinnu­stað. Bíllinn var að sögn Dadda stopp í ein­hverjar sek­úndur uppi á gang­stétt þegar stöðu­mæla­vörður sektaði þau og sendi sekt­ar­til­kynn­ingu upp á tíu þús­und krónur.

„Við hjónin höfum í sumar deilt bíl á leið í og úr vinnu þar sem við störfum bæði í mið­bænum. Þar sem við erum á sitt­hvorum vinnu­staðnum þarf ég að stökkva út og inn nærri minni starf­stöð. Sökum ald­urs er mér ókleift að gera það á ferð, þannig að líkt og flestir leyfum við okkur að stoppa örstutt þar sem ekki er hætta og mér hleypt út, eða eftir atvikum - inn.

Í síð­ustu viku náð­ist slíkt atvik á mynd þegar að frúin stöðv­aði í ein­hverjar sek­úndur til að pikka mig upp. Þar var að verki árvök­ull stöðu­mæla­vörður sem er í fullum rétti þar sem ekki má stöðva eða leggja uppi á gang­stétt. 6 mínutum síðar var komin sekt­ar­til­kynn­ing á ísland.is og greiðslu­seð­ill upp á 10 þús­ara í heima­lands­bank­ann.“

Daddi bendir á að ekki hafi verið mikil hætta á ferð þá stund­ina og er ekki skemmt. Þó segir hann í kald­hæðni að hann hafi nú verið nálægt Seðla­bank­anum svo kannski hafi þau bara verið nærri því að fella krón­una.

„Ég and­mælti, vit­andi að nið­ur­staðan yrði alltaf vísun í umferða­lög og bann við stöðvun og/eða lagn­ingu uppi á gang­stétt. Andmælti ekki af því að ég taldi mig/okkur ekki hafa brotið lög, heldur af því að þarna er sterkt dæmi um skort á aðstæðu­vit­und, dóm­greind, og umburð­ar­lyndi. Þetta eru leið­indi langt fram úr með­al­hófi, og lík­lega afleið­ing per­sónu­legra áfalla sem brýst fram í hvata til að bara fokk­ing sekta þetta lið sem fer ekki eftir reglum.

Reglum sem eru settar til að forða slysi eða tjóni á fólki og verð­mætum.

Eins og sést á mynd­inni sem var tekin, stefndi þetta skeyt­inga­leysi okkar fólki, fé og atvinnu­starf­semi í bráða hættu. Öll þessi öku­tæki í kringum okkur hefðu getað lent í ógöngum, já og allt þetta gang­andi fólk sem sést á mynd­inni er heppið að sleppa lif­andi. Ég meina Seðla­bank­inn er þarna nærri og við vorum nærri því að fella krón­una. Ingólfur næstum dott­inn af stall­inum og gera þurfti hlé á rétt­ar­höldum í Hæsta­rétti.

Mér er lífs­ins ómögu­legt að skilja hvernig er ætl­ast til að við hefðum átt að leysa þetta. Finna stæði fyrir örugga upp­í­t­öku? Já gangi okkur vel með það í mið­bænum.

Nei í alvöru, fyrir tíu fokk­ing þús­und kall hef ég, reyndar ekki sam­kvæmt lögum öðrum en óska­lögum, fullan rétt til að tuða yfir þessu. Njótið mynd­ar­innar. Ekki oft sem þessir leggir sjást berir í bænum.“

Mynd var tekin af brot­inu sem Daddi fékk senda frá Reykja­vík­ur­borg eftir að hann and­mælt.

„Vil hæla ynd­is­legu kon­unni í Þjón­ustu­veri Reykja­vík­ur­borgar sem gat sent mér mynd­ina eftir að hún hvarf úr sekt­ar­til­kynn­ing­unni (í kjöl­far and­mæla minna). Höfundum og eig­endum flutn­ings­réttar á Borg­ar­brag Gunnars Þórð­ar­sonar bendi ég að banna notkun tón­list­ar­innar sem bið­tóna í Þjón­ustu­verum. Býr til nei­kvæða hug­ræna teng­ingu þeirra sem hringja inn við þá frá­bæru tón­list sem platan geymir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina