Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Sendi­herranum var „falið að sitja fundinn fyrir Íslands hönd til að fylgjast með umræðum“

Svanhildur Hólm Valsdóttir
Svan­hildur Hólm Vals­dóttir Svan­hildur Hólm sótti fund Marco Rubio Mynd: chamber.is

Svanhildur Hólm Vals­dóttir, sendi­herra Íslands í Washington, sat alþjóð­lega ráðstefnu sem Marco Rubio, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, boðaði til um það sem bandarísk stjórn­völd kalla endur­vakta ógn frá öfgahópum á vinstri væng stjórn­málanna.

Þetta stað­festir utan­ríkis­ráðuneytið í svari við fyrir­spurn Mannlífs.

Ráðstefnan fór fram 15. júlí og sátu hana fulltrúar frá rúmlega 60 ríkjum, þar á meðal ráðherrar, sendi­herrar og hátt­settir embættis­menn. Þegar fyrst var greint frá fundinum lá ekki fyrir hver hefði mætt fyrir Íslands hönd.

Samkvæmt utan­ríkis­ráðuneytinu var það Svanhildur Hólm sem sótti fundinn.

„Ísland sendi ekki utan­ríkis­ráðherra til þátttöku og var því sendi­herra Íslands í Washington falið að sitja fundinn fyrir Íslands hönd til að fylgjast með umræðum,“ segir í svari ráðuneytisins.

Þar kemur jafnframt fram að Banda­ríkin hafi boðið til ráðherra­fundarins undir yfir­skriftinni The Resurgence of Political Terrorism.

„Samkvæmt upplýsingum frá bandarískum stjórn­völdum sóttu rúmlega sextíu ríki fundinn, ýmist ráðherrar, sendi­herrar eða hátt­settir embættis­menn.“

Fundurinn vakti athygli þar sem Trump-stjórnin hefur lagt aukna áherslu á að berjast gegn því sem hún skilgreinir sem öfga­hreyfingar á vinstri væng stjórn­málanna. Marco Rubio sagði í opnunar­ræðu sinni að um væri að ræða alþjóð­lega ógn sem ríki þyrftu að bregðast sameiginlega við.

Í frétt Time um fundinn kom hins vegar fram að fyrir­liggjandi rann­sóknargögn sýni að hægri öfgamenn hafi valdið fleiri banvænum árásum í Banda­ríkjunum en öfgamenn á vinstri vængnum á undan­förnum árum, þótt atvik tengd vinstri öfgum hafi farið fjölgandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum